Fréttablaðið - 25.01.2003, Qupperneq 2
2 25. janúar 2003 LAUGARDAGUR
Í gær var bóndadagur og að fornum sið eiga konur
að vera góðar við menn sína þann dag. Bryndís
Hlöðversdóttir alþingismaður brást ekki þeim
skyldum.
Við erum í okkar sælureit vestur í Hnappa-
dal þar sem við slökum vel á saman. Ég
eldaði góðan mat fyrir hann og á borðum
var fallegur blómvöndur ætlaður honum.
SPURNING DAGSINS
Bryndís, hvað gerðir þú fyrir
bóndann í gær? Hryðjuverkamenn handteknir:
Aðgerð gegn al Kaída
MADRÍD Lögreglan á Spáni handtók í
gær sextán manns sem grunaðir
eru um aðild að al Kaída-hryðju-
verkasamtökunum.
Handtökurnar voru liður í lög-
regluaðgerð þar sem ráðist var inn í
a.m.k. tólf íbúðir í norðausturhéruð-
um landsins, í nágrenni borganna
Barcelona og Gerona. Einnig var
lagt hald á mikið magn sprengi- og
eiturefna auk ýmissa skjala, en þar
á meðal voru fölsuð vegabréf.
Að sögn spænskra yfirvalda er
talið að mennirnir, sem nú eru í
haldi lögreglu, tilheyri Spánardeild
al Kaída-samtakanna en rassían
tengdist handtökum á meintum
hryðjuverkamönnum í Bretlandi og
Frakklandi að undanförnu. Menn-
irnir eru flestir alsírskir ríkisborg-
arar og meðlimir öfgahópa þar í
landi en leiddar hafa verið líkur að
því að margir þeirra hafi hlotið
þjálfun í búðum Osama bin Laden í
Afganistan.
Alls hafa 35 manns nú verið
handteknir á Spáni vegna gruns um
aðild að íslömskum hryðjuverka-
samtökum síðan árásirnar voru
gerðar á World Trade Center. ■
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands fjallar um þéttbýlismyndun:
Búsetubylting á Íslandi
BÚSETA Vegna fámennis er ekki efni-
viður í meira en einn til tvo stóra
þéttbýliskjarna á Íslandi. Þetta er
ein helsta ástæðan fyrir því hversu
stór hluti þjóðarinnar býr á höfuð-
borgarsvæðinu, að því er fram kem-
ur í skýrslu Hagfræðistofnunar Há-
skóla Íslands um þéttbýlismyndun.
Í skýrslunni segir að frá árinu
1980 hafi átt sér stað gífurlegar
kerfisbreytingar í íslensku þjóðlífi
sem hafi valdið því að ungt fólk hér-
lendis hafi farið á flakk. Í raun eru
búsetubreytingarnar svo örar að
hægt er að tala um búsetubyltingu,
að landsmenn flytji úr minni byggð-
arkjörnum um allt land og til
Reykjavíkur.
Samkvæmt niðurstöðum skýrsl-
unnar munu áhrif þessarar bylting-
ar ekki koma að fullu fram fyrr en
eftir nokkra áratugi þegar stórir ár-
gangar sem nú byggja landsbyggð-
ina fara á eftirlaun. Öll frávik frá
þeirri spá hljóta að byggjast á því
að fólk flytji aftur frá Reykjavík,
þar sem náttúrulegri fólksfjölgun á
landsbyggðinni hljóta að vera mikil
takmörk sett ef fólk á barneignar-
aldri býr ekki lengur á svæðinu.
Skilorðsdómar
fyrir sendilsrán
Tveir piltar sem rændu pitsusendil í september hafa verið dæmdir í
skilorðsbundið fangelsi. Þrátt fyrir árásina kom sendillinn pitsunni í
hendur viðtakanda en mátti þola nýja atlögu er hann sneri aftur.
DÓMSMÁL Tveir piltar hafa verið
dæmdir í fjögurra og níu mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir að
ræna pitsusendil frá Domino´s.
Piltarnir voru
sautján og átján
ára gamlir í sept-
ember í fyrra þeg-
ar þeir réðust að
pitsusendli sem
var um miðja nótt
að leita að réttri
dyrabjöllu við fjöl-
býlishús í Breið-
holti. Þeir felldu
hann um koll og
kýldu í andlit áður
en þeir náðu af
honum peningaveski með 7.880
krónum.
Þrátt fyrir árásina hélt pitsu-
sendillinn sínu striki og kom pits-
unni til skila til viðtakandans í
húsinu. Þegar sendillinn kom út
aftur voru ræningjarnir enn fyrir
utan. Sá yngri sló hann þá í andlit-
ið og krafði hann um meiri pen-
inga. Sendillinn komst þó undan
inn í bíl sinn og beið þar uns árás-
armennirnir höfðu sig á brott.
Sendillinn, sem er liðlega tvítug-
ur, slapp með marið og bólgið and-
lit.
Pitsusendillinn gat gefið nokkuð
greinargóða lýsingu á árásarmönn-
unum. Sagði hann annan þeirra
hafa verið „þrekinn og búlduleitan
með þykkar augabrýr“ og hinn
„grannan, kinnfiskasoginn og
píreygðan“. Árásarmennirnir ját-
uðu verknaðinn við yfirheyrslur
tæpum sjö vikum síðar.
Eldri pilturinn fékk harðari
refsingu þar sem hann hefur áður
fengið skilorðsbundna fangelsis-
dóma fyrir glæpi á borð við líkams-
árás og þjófnaði. Hann var einnig
dæmdur nú fyrir innbrot og
skemmdarverk á þremur bílum,
skemmdarverk á póstkassa og
óheimila úttekt af bankareikningi
vinkonu sinnar.
Báðir játuðu piltarnir sekt sína.
Þeir báru því við að ránið hafi ekki
verið skipulagt fyrirfram heldur
verið skyndiákvörðun og „fyllerís-
rugl“.
Piltarnir sögðust hafa tekið sig á
varðani vímuefnamisnotkun. Yngri
pilturinn kvaðst hafa farið á Vog
eftir ránið og staðið sig síðan. Hann
byggi í Noregi og væri þar í vinnu.
„Hann kvaðst hafa verið í óreglu
þegar brotin áttu sér stað, en hafa
tekist á við það og vera nú að vinna
á byggingarkrana,“ segir Héraðs-
dómur Reykjavíkur um eldri pilt-
inn.
gar@frettabladid.is
Þyrluslys:
Fórust við
fíkniefna-
eftirlit
TEXAS, AP Tvær herþyrlur fórust
skammt frá landamærum Banda-
ríkjanna og Mexíkó með þeim af-
leiðingum að fjórir bandarískir
hermenn létust. Þyrlurnar höfðu
verið kallaðar til af landamæra-
eftirlitsmönnum til þess að að-
stoða við fíkniefnaeftirlit. Voru
þær í yfirlitskönnun að næturlagi
syðst í Texas þegar slysið átti sér
stað.
Talsmenn landamæra eftirlits-
ins hafa lítið viljað tjá sig um til-
drög slyssins að svo stöddu en
málið er í rannsókn. ■
ÁRNI M. MATHIESEN
Segir dóm í meiðyrðamáli fréttamanns
gegn sér í andstöðu við dóma Hæstaréttar
sem varða tjáningarfrelsi og hefur áfrýjað.
Meiðyrðamál:
Ráðherra
áfrýjar
DÓMSMÁL „Ég tel að dómur þessi
sé í andstöðu við dóma Hæstarétt-
ar Íslands í málum sem varða
tjáningarfrelsi. Þar sem málið
varðar svo mikilvægt svið sem
tjáningarfrelsið er í nútíma þjóð-
félagi tel ég óhjákvæmilegt annað
en að áfrýja framangreindum
dómi,“ segir Árni M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra.
Hann hefur áfrýjað dómi Hér-
aðsdóms Reykjaness í máli sem
Magnús Þór Hafsteinsson frétta-
maður höfðaði gegn Árna.
Árni var dæmdur fyrir ósönn-
uð ummæli um að Magnús Þór
hefði falsað sjónvarpsfréttaefni
um brottkast um borð í fiskiskip-
um. Einnig fyrir að hafa sagt það
vera stefnu Magnúsar Þórs að
koma höggi á kvótakerfið á er-
lendri grund eða eyðileggja þar
með öðrum hætti fyrir íslenskum
stjórnvöldum. ■
Seltjarnarnesbær:
Sýknaður af
600 milljóna
kröfu
DÓMSMÁL Tæplega 600 milljóna
króna skaðabótakrafa ÁHÁ verk-
taka á hendur Seltjarnarnesbæ hef-
ur verið felld niður í Héraðsdómi
Reykjavíkur.
Verktakafyrirtækið taldi sig
eiga rétt á byggingarlandi vegna
meintra ólögmætra vinnubragða
við útboð. Krafan kom fram í að-
draganda sveitarstjórnarkosninga
og var aðalkrafa gerð um svokall-
aðar efndarbætur á grundvelli þess
að verktakinn hefði fengið samning
um verkið og notið þess hagnaðar
sem af honum leiddi. Að auki voru
sett fram sjónarmið um að bærinn
kynni að hafa notað hugmynd ÁHÁ
um uppbyggingu á Hrólfsskálamel.
Kröfunni og tilboði um samn-
inga var skilyrðislaust hafnað af
Seltjarnarnesbæ og féllst Héraðs-
dómur á rök bæjarins. ■
Dauðasveitir:
Myrða upp-
reisnarmenn
MANILA, AP Tveir fyrrum leiðtogar
kommúnískrar uppreisnarhreyfing-
ar á Filippseyjum hafa verið ráðnir
af dögum síðustu daga. Morðunum
á þeim hefur verið líkt við aftökur
og hefur Gloria Macapagal Arroyo,
forseti Filippseyja, fyrirskipað sér-
staka rannsókn á hugsanlegum
dauðasveitum. Angelo Reyes varn-
armálaráðherra sagði böndin bein-
ast að Nýja alþýðuhernum, komm-
únískri uppreisnarhreyfingu sem
myrtu mennirnir tilheyrðu áður.
Talsmaður uppreisnarmanna skellti
sökinni á CIA. ■
Andlát:
Rúrik
Haraldsson
látinn
ANDLÁT Rúrik Haraldsson leikari er
látinn, 77 ára að aldri. Rúrik fædd-
ist 14. janúar 1926 í Vestmannaeyj-
um. Foreldrar hans voru Kristjana
Einarsdóttir húsmóðir og Haraldur
Sigurðsson, trésmiður á Sandi.
Rúrik lék fjölda hlutverka á
sviði og einnig í fjölmörgum kvik-
myndum og sjónvarpsþáttum. Á
ferli sínum hlaut hann margar við-
urkenningar auk þess að hljóta
heiðurslaun listamanna samkvæmt
ákvörðun Alþingis frá árinu 2001.
Rúrik kvæntist Önnu Sæbjörns-
dóttur hönnuði, sem lést sumarið
1998. Þau láta eftir sig þrjú upp-
komin börn: Björn ljósmyndara og
flugmann, Harald Stein flug-
umferðarstjóra og Ragnhildi
leikkonu. Barnabörn Rúriks og
Önnu eru nú sjö. ■
Yfirtaka House of Fraser:
Hunter
hætti við
VIÐSKIPTI Tom Hunter, sem hugðist
taka yfir verslunarkeðjuna House
of Fraser, er hættur við yfirtökutil-
raunir. Hunter naut stuðnings
Baugs, sem á 8% hlut í fyrirtæk-
inu. Samkvæmt breskum kaup-
hallarreglum má Hunter ekki
hefja yfirtökutilraunir að nýju
fyrr en að sex mánuðum liðnum.
Hunter sagðist myndu fylgjast
grannt með framgangi félagsins.
Hann sagðist hlakka til að sjá
stjórnendur félagsins skila betri
arðsemi en fólst í tilboði hans, sem
var 85 pens á hlut. Gengi bréfa fyr-
irtækisins lækkaði við fréttirnar
og endaði í 68,5 pensum á hlut. ■
VÍGBÚNAR SÉRSVEITIR
Yfir 150 spænskir lögreglumenn auk sér-
þjálfaðra hunda tóku þátt í rassíu gegn
hryðjuverkastarfsemi. Ráðist var inn í á
annan tug íbúða í norðausturhluta lands-
ins og sextán manns handteknir.
REYKJAVÍK
Búsetubreytingarnar hafa verið svo örar frá
árinu 1980 að hægt er að tala um búsetu-
byltingu, samkvæmt skýrslu Hagfræði-
stofnunar Háskóla Íslands.
„Hann kvaðst
hafa verið í
óreglu þegar
brotin áttu sér
stað, en hafa
tekist á við
það og vera
nú að vinna á
byggingar-
krana.“
DOMINO´S
Pitsasendill frá Domino´s var rændur seint um nótt í Krummahólum í fyrrahaust. Árásar-
mönnum lýsti hann þannig að annar hefði verið þrekinn og búlduleitur en hinn grannur,
píreygður og kinnfiskasoginn. Þeir segjast hafa tekið sig á varðandi vímuefnamisnotkun
og vera í vinnu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Akureyri:
Tvær
íkveikjur í
heimahúsi
LÖGREGLUMÁL Tveir unglingspiltar
eru grunaður um að hafa fleygt
brennandi rusli inn um kjallara-
glugga á einbýlishúsi við Borgar-
síðu á Akureyri um níuleytið í
fyrrakvöld. Hjón með tvö börn
voru í húsinu þegar eldurinn kom
upp og náðu þau að slökkva eldinn,
sem hafði breiðst út í þvott sem
þarna var. Á fimmtudag kom upp
svipað dæmi þegar fjórir menn
opnuðu glugga bakdyramegin að
íbúðarhúsnæði og kveiktu í gardínu
sem hékk fyrir glugganum. Að því
búnu hlupu þeir í burtu. Ekki hefur
náðst í brennuvargana.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri eru málin bæði í rannsókn. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M