Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.01.2003, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 25.01.2003, Qupperneq 21
21LAUGARDAGUR 25. janúar 2003 TÍSKA Sverrir Bergmann er fram- kvæmdastjóri hjá Herrahúsinu- Adam á Laugaveginum, þar sem hann hefur starfað frá árinu 1990. Sverrir, sem er 48 ára, byrjaði í tískubransanum árið 1976 með Herraríkið á Snorrabrautinni fyr- ir Sambandið. Á þeim tíma rak hann fjórar fataverslanir og voru hinar þrjár staðsettar í Glæsibæ, Hamraborg og í Hafnarfirði. Hann hefur því mikla reynslu í faginu. „Ég var með Herraríkið fyrst. Síðan réði ég mig vestur á Ísafjörð sem kaupfélagsstjóra í þrjú ár. Svo datt ég bara inn í þetta aftur því eigandinn hringdi, vildi semja og ég sló til, það er svo einfalt.“ Sverrir telur að góðir sölu- menn þurfi að vera ýmsum kost- um búnir. „Þeir mega ekki vera of ýtnir, hafa lipra framkomu og það sakar ekki að vera svolítið tungulipur.“ Að sögn Sverris er alltaf eitt- hvað skemmtilegt að gerast í vinnunni. „Það kom maður á laug- ardegi um tólfleytið í öngum sín- um. Hann var að gifta dóttur sína klukkan tvö og hafði ekkert mát- að smókinginn sinn, sem hafði hlaupið í skápnum. Hann komst ekki í hann lengur og það varð að redda því allsnarlega og kalla á saumakonu. Það hafðist þannig að hann gat gift stúlkuna sína.“ Sverrir hefur aðra sögu að segja: „við erum með yfirstærðir, föt upp í 78, sem er gríðarlega stórt. Hér kom inn maður fyrir nokkrum vikum sem hafði verið í þessari stærð og var þá 150 til 160 kíló. Þetta var smiður sem vann mikið inni á verkstæði í kyrrsetu. Síðan skipti hann um vinnu og fór í byggingarstarf þar sem hann sá meðal annars um vinnupalla. Hann þurfti að hlaupa á milli hæða vegna þess að engin lyfta var komin í húsið. Með því að skipta um vinnu og hætta að drekka kók missti hann 48 kíló á átta mánuðum. Það er ótrúlegt hvað er hægt að gera án þess að hlaupa í heilsuræktina.“ ■ Sverrir Bergmann hjá Herrahúsinu-Adam: Tunguliprir en ekki of ýtnir Starfið mitt SVERRIR Sverrir Bergmann, sem byrjaði í tískubransanum árið 1976, telur að mið- borgin sé langt í frá að vera eitthvað að slaka á í samkeppninni við versl- unarmiðstöðvarnar. Hann segir að brúni liturinn sé að koma sterkur inn um þessar mundir sem og teinóttu skyrturnar. Björk Jakobsdóttir tveg- gja ára og skelfingu lostin: Fiskarnir átu prjóna- húfuna Ég man fyrst eftir mér tveggjaára gömul á gangi með Einari frænda í miðbæ Hafnarfjarðar,“ segir Björk Jak- obsdóttir leik- kona. „Einar frændi var að sýna okkur Hafn- arfjarðarlækinn og lyfti mér upp og hallaði mér yfir handrið svo ég sæi til botns. Þá gerist það að prjónahúfan mín dettur af höfðinu á mér og ofan í lækinn. Þetta var skelfilegt og ekki minnkaði skelf- ingin þegar Einar frændi sagði mér að fiskarnir myndu éta húfuna. Ég sá fyrir mér prjónahúfuna mína einhvers staðar langt úti í sjó, sundurtætta eftir nart í fiskunum,“ segir Björk, sem hefur þó alveg náð sér í dag eftir þessa eftirminni- legu fyrstu hremmingu sem hún lenti í. Síðar man Björk líka eftir sér að sökkva ofan í mykjuhaug á Saurbæ í Vatnsdal. „Ég var sokkin upp í mitti þegar systir mín hljóp inn og náði í pabba og mömmu. Verst þótti mér þó að ég var í nýju galladressi sem fór illa við mykju- hauginn. En það er önnur og lengri saga sem sögð verður síð- ar,“ segir Björk Jakobsdóttir. ■ Fyrsta bernskuminningin BJÖRK JAKOBSDÓTTIR Hefur að fullu náð sér eftir gönguferð um miðbæ Hafnar- fjarðar aðeins tveggja ára gömul.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.