Fréttablaðið - 25.01.2003, Qupperneq 25
TÓNLIST Söngkonan Björk Guð-
mundsdóttir hefur opinberað á
heimasíðu sinni www.bjork.com að
henni hafi upphaflega verið boðið
að semja og syngja „Gollum’s
Song“ í nýju Lord of the Rings-
myndinni. Hún segir fyrirspurnina
hafa komið einum mánuði fyrir
fæðingu Ísadóru dóttur sinnar og
því hafi hún ekki treyst sér í verk-
ið.
Stuttu síðar var haft samband
við hana aftur og henni sagt að
Howard Shore, tónlistarhöfundur
myndarinnar, hafi samið lag sér-
staklega með hana í huga sem hún
var beðin um að syngja. Þetta var
aðeins nokkrum dögum fyrir fæð-
ingu dóttur hennar og því kastaði
Björk verkinu frá sér. Henni var þá
sagt að þrjár aðrar söngkonur sem
væru líkar henni í „stíl“ kæmu
einnig til greina. Hún frétti það svo
síðar að Emilíana Torrini hefði ver-
ið ráðin.
Hún segist sjá eftir því að hafa
afþakkað tilboðið þar sem henni
finnist að annað hvort eigi tónlist-
armenn að sjá um alla tónlistina
fyrir kvikmyndir eða enga. Henni
finnst þó leiðinlegt að framleiðend-
um myndarinnar finnist það í góðu
lagi að herma eftir stíl annarra
listamanna.
Hún segist oft fá tilboð um að
gera lög fyrir kvikmyndir eða sjón-
varpsauglýsingar, sem hún afþakki
yfirleitt. Þá hafi hún tekið eftir því
að algengt sé að endanlegu útkom-
unni svipi til sinna verka. Hún kall-
ar þetta glæpsamlegt þar sem það
sé hennar lífsstarf að skapa sér
sinn eigin stíl. ■
25LAUGARDAGUR 25. janúar 2003
Fótboltakappinn
Sharpe kostar sitt
Dagbjartur stendur þétt við
bakið á sínum mönnum í fót-
boltaliði Grindvíkinga. Þeir hafa af
miklum stórhug byggt stúku við
völl sinn sem tekur 1.500 manns.
„Ég á nú reyndar eftir að upp-
lifa það að sjá hana fulla. En við
hugsum stórt, það er rétt. Og á bak
við þetta eru örfáir menn sem eru
ógurlega duglegir við þetta. Ég tel
mig nú ekki til þeirra. Ég stend á
hliðarlínunni og reyni að láta í mér
heyra þar.“
Sægreifinn og frístundabóndinn
tekur undir það að gegndarlaus
metnaður ráði för í íþróttamálum í
Grindavík og magnað að eiga tvö
lið sem eru í toppbaráttunni í fót-
bolta og körfubolta. Honum finnst
sérkennilegt að Jónas Þórhallsson
og hans líkar hverfi bara ekki upp,
slík sé bjartsýnin!
„Fyrirtæki hér hafa stutt mynd-
arlega við bakið á þessu og mikill
er samhugurinn. Þetta kostar nátt-
úrulega allt sitt. Nú er það Lee
Sharpe næst. Hann vill bara fá svo
mikið fyrir sinn snúð.“
Grindvíkingar standa í viðræð-
um við knattspyrnumanninn Lee
Sharpe, sem þótti mikið efni og
kom aðeins 17 ára gamall til
Manchester United á sínum tíma.
Þaðan var hann seldur til Leeds
fyrir fimm milljónir punda.
Meiðsli og óregla hafa síðan sett
strik í reikninginn hjá Sharpe. En
hvernig er þetta allt til komið?
Dagbjartur segir svo frá að sonur
hans hafi ásamt vini sínum farið til
Manchester, meðal annars til að
horfa á fótboltaleiki. Leið þeirra lá
á pöbb þar sem þeir frægu halda til
og rákust þar á Sharpe.
„Já, hann lenti í óreglu og svona
en þeir fóru sem sagt að ræða við
hann og þá kemst þetta í umræð-
una, hvort hann sé ekki til í að
koma til Íslands. Þetta þróaðist og
menn hafa verið í sambandi við
hann síðan. Enn hefur ekki gengið
að ganga frá samningum. En Jónsi
minn, hann ætlar að fara með fisk
til hans og það kannski dugar. Þetta
eru nú fiskætur, Englendingarnir.
Svo er þetta spurning um að ein-
hverjir fuglar, eins og ég og fleiri,
láti eitthvað af hendi rakna.“ Og út-
gerðarbóndinn segist tilbúinn að
opna veskið ef það er innan skyn-
samlegra marka.
„En ég kæri mig ekkert um
þennan blessaða mann ef hann er á
hælunum. Hann verður að vera á
tánum. Og það yrði að vera þannig
að hann fengi visst á leik. Nú vill
hann fá meira en menn eru tilbúnir
í. En menn eru að vonast til að hann
komi hingað meðal annars til að
breyta sínum lífsháttum. Peningar
eru nú ekki allt.“
jakob@frettabladid.is
„Nú er orðið svo
vont að fá leigu
kvóta. Hann kostar svo
mikið. Menn eru búnir að
vera að braska við það
lengi að gera út kvótalaus
skip. Ég hef aldrei botnað í
því. Hvernig í andskotanum
það er hægt að leigja sér
kvóta í sífellu og svo eru
bara einhverjir örfáir tíkall-
ar eftir? Ég hef aldrei skilið
það en það er svo margt
sem ég ekki skil.
,,
Björk Guðmundsdóttir:
Átti að syngja „Gollum’s Song“
BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR
Framleiðendur Lord of the Rings-mynd-
anna vildu upphaflega fá hana til þess að
semja og syngja „Gollum’s Song“. Þegar
hún afþakkaði boðið þar sem hún var
barnshafandi var henni sagt að þrjár aðrar
söngkonur með „svipaðan stíl“ kæmu
einnig til greina. Hún frétti það svo síðar
að Emilíana hefði verið ráðin.