Fréttablaðið - 15.02.2003, Blaðsíða 22
Íkönnun sem Fréttablaðiðgerði fyrir viku kemur fram
að Björk ber höfuð og herðar
yfir kollega sína í listageiran-
um. Spurt var „Hvaða Íslending-
ur í lista- og menningarlífinu
finnst þér skara fram úr um
þessar mundir?“ Vissulega
nokkuð víðtæk spurning en nið-
urstaðan er engu að síður óvé-
fengjanleg. Björk nýtur mestra
vinsælda og mestrar virðingar
meðal landsmanna. Það þarf
kannski ekki að koma á óvart.
Þó Björk hafi ekki sent frá sér
neina tónlist nýlega hefur húna
á undanförnum árum gert garð-
inn frægan á alheimsvísu og
vegsemdin kemur ekki síst að
utan. Þá er sú kenning er sann-
færandi að þráðbeint og rökrétt
samhengi sé milli niðurstöðu í
skoðanakönnun og umfjöllunar
fjölmiðla. Þannig virki einfald-
lega skammtímaminnið. Sam-
kvæmt því er tónlistin í öndvegi
á ritstjórnarskrifstofum ís-
lenskum og kannski einkum
dægurlagatónlistin því þannig
má flokka alla þá sem raða sér í
efstu þrjú sætin: Björk, Birgitta
og Bubbi.
Samkvæmt kenningunni um
fjölmiðlaumfjöllun og gott
gengi í skoðanakönnunum má
benda á að Björk var í vel
heppnuðu Kastljósviðtali
skömmu áður en könnunin var
gerð og Birgitta nýlega kosin
með látum poppstjarna Íslands.
Bubbi má því vel við una en
hann er ótvírætt í þriðja sætinu.
Hann hefur svo sem ekki haldið
sig til hlés en hefur ekki verið
líkt því eins í sviðsljósinu und-
anfarið og Birgitta.
Það að spurningin vísi jafn-
framt til þess að nefna til sög-
unnar einstakling sem skarað
hefur fram á sviði menningar-
lífs setur inn ákveðinn
óvissufaktor í könnunina. Að
vísu nefndu flestir til sögunnar
einhvern sem skýlaust getur
flokkast sem listamaður en ekki
er þó hægt að afskrifa sem ein-
skært grín og fíflaskap það að
menn nefndu einstaklinga á
borð við Ólaf Stefánsson, sem
samkvæmt víðustu skilgrein-
ingu hefur með menningarlíf
landsmanna að gera. Þannig
fékk Ólafur Ragnar Grímsson
einnig atkvæði sem og Vigdís
Finnbogadóttir en Ólafur Ragn-
ar ætlar seint að losna við “Vig-
dísarvinsældadrauginn“ ef svo
má að orði komast. En í þessu
samhengi má teljast ákveðinn
ósigur fyrir yfirmann menning-
armála Íslands, sjálfan Tómas
Inga Olrich menntamálaráð-
herra, að komast ekki á blað.
ÞEIR SEM SKARA FRAM ÚR
1. Björk Guðmundsdóttir 20,8%
2. Birgitta Haukdal 9,6%
3. Bubbi Morthens 5,6 %
4. Kristján Jóhannsson 3,2%
5. Stefán Karl Stefánsson 2,8%
6.-7. Björk Jakobsdóttir 2,4%
6.-7 Baltasar Kormákur 2,4%
8.-10. Arnaldur Indriðason 2,0%
8.-10. Sigur Rós 2%
8.-10. Kristinn Sigmundsson 2%
Yfirburðir tónlistarinnar
Alveg liggur ljóst fyrir
að tónlistin er sú listgrein
sem landsmenn horfa
fyrst og fremst til þegar
þeir eru spurðir um hver
skarar fram úr á lista-
og menningarsviðinu.
Hvorki meira né
minna en 61 prósent
þeirra sem tóku af-
stöðu nefndi einhvern
tónlistarmann. Þetta eru
ótvíræðir yfirburðir tónlist-
arinnar og lúta aðrar listgreinar í
gras. Velta má því fyrir sér hvað
valdi. Dægurtónlistarmenn þurfa
ekki að kvarta undan því að þeir
njóti ekki virðingar og munar
auðvitað mestu um þær Björk og
Birgittu auk þess sem Bubbi
heldur alltaf sínu. Við samantekt
voru „atkvæði“ flokkuð milli
kynja og milli landsbyggðar og
höfuðborgar. Var eftirtektarvert
að Björk skoraði talsvert betur á
höfuðborgarsvæðinu og betur
meðal karla en kvenna. Þess má
og geta að Birgitta Haukdal sigr-
aði Björk í einum hópnum sem
var konur á landsbyggðinni og
það nokkuð örugglega. Fylgi
Bubba dreifðist hins vegar mjög,
bæði milli karla og kvenna, sem
og milli landsbyggðar og höfuð-
borgarsvæðis.
En þó dægurlagasöngvarar
megi vel við una er vert að benda
á að klassíska deildin á sér
greinilega sitt fasta fylgi eins og
sjá má á meðfylgjandi lista.
Bergþór Pálsson, Ólafur Kjartan
Sigurðsson (sem vakið hefur at-
hygli upp á síðkastið fyrir vask-
lega framgöngu í Macbeth), Guð-
ný Guðmundsdóttir, Jóel Pálsson
og Jón Ólafsson voru öll nálægt
því að komast inn og vantaði
herslumuninn. Meðal annarra
sem nefndir voru eru Egill Ólafs-
son, Magnús Kjartansson, Gunn-
ar Þórðarson, Tómas Tómasson
og þá voru einnig 4 klassískar,
Geir Ólafsson, Ske, Hera og Móri
nefnd. Í klassísku deildinni voru
þau Hörður Áskelsson, Sigrún
Eðvarðsdóttir, Haukur Tómasson
og Kjartan Ólafsson einnig nefnd
til sögunnar.
TOPPLISTI TÓNLISTARMANNA
1. Björk 20%
2. Birgitta Haukdal 9,6%
3. Bubbi 5,6%
4. Kristján Jóhannsson 3,2%
5. - 6. Sigur Rós 2%
5. - 6. Kristinn Sigmundsson 2%
7. - 10. Emilíana Torrini 1,6%
7. - 10. Diddú 1,6%
7. - 10. Stefán Hilmarsson 1,6%
Lúnknir leikarar
Leiklistin má vel við una í
könnuninni. Einhvers staðar
stendur að leikarar nærist á sviðs-
ljósinu og þeim hefur vel tekist að
ota sínum tota í þem efnum. Heil
15 prósent nefndu til sögunnar
einhvern leikara sem mestan
lista- og menningarfrömuð lands-
ins. En þar spila fleiri þættir inn í.
Hafnfirðingarnir Stefán Karl
Stefánsson og Björk Jakobsdóttir
hafa gert garðinn frægan að
undanförnu og njóta þess nú. Stef-
án Karl er auðvitað þekktur fyrir
afskipti sín af málefnum barna
sem orðið hafa fyrir einelti og
Björk sem leikskáld en ekki sér
fyrir endann á velgengni verks
hennar Sellófon. Fréttablaðið
leyfir sér að fullyrða að þessir
þættir spila inn í. Þríeykið Hilmir
Snær, Ingvar E. Sigurðsson og
Baltasar Kormákur er sterkt enda
hafa þeir allir verið að gera góða
hluti, einkum kannski á sviði kvik-
myndanna og eru reyndar áhöld
um hvort flokka beri Baltasar
sem leikara eða kvikmyndagerð-
armann?
Aðrir leikarar sem nefndir
voru í könnuninni eru þeir Örn
Árnason, Halldóra Geirharðsdótt-
ir, Arnar Jónsson, Kjartan Guð-
jónsson, Gunnar Eyjólfsson,
Bergur Ingólfsson, Ólafur Darri,
Karl Ágúst Úlfsson og Arnór Ben-
ónýsson.
TOPPLISTI LEIKARA
1. Stefán Karl Stefánsson 2,8%
2.-3. Björk Jakobsdóttir 2,4%
2.-3. Baltasar Kormákur 2,4%
4. Hilmir Snær Guðnason 1,6%
5. Ingvar E. Sigurðsson 1,2%
Rithöfundarnir
sigla sléttan sjó
Stétt rithöfunda má einnig vera
kát og ljóst er að þeir eru í huga
þjóðarinnar mikilvægur menning-
arinnar póstur. 10 prósent þeirra
sem afstöðu tóku til spurningar-
innar svöruðu henni með því að
nefna til sögunnar rithöfund. Og
þar trónir efstur á lista maður sem
er ekki óvanur listum af ýmsu tagi.
Nefnilega sjálfur Arnaldur Ind-
riðason metsöluhöfundur. Þetta
má telja ótvíræð skilaboð til þeirra
sem teljast til hinnar dularfullu
menningarelítu að fara að virða
betur þá bókmenntagrein sem
heitir reyfarar enda undruðust
margir fjarveru þessa vinsæla
höfundar þegar tilnefningar til ís-
lensku bókmenntaverðlaunanna
lágu fyrir. Að öðru leyti deila rit-
höfundar atkvæðum bróðurlega á
milli sín. Arnaldur er með 2 pró-
sent en Ólafur Jóhann Ólafsson,
Hallgrímur Helgason, Andri Snær
Magnason og Einar Már Guð-
mundsson fylgja honum fast á
hæla. Allir þessir hafa verið að
hasla sér völl á erlendri grundu
(eins og sjá má annars staðar í
blaðinu) og sannast hér hið forn-
kveðna með vegsemdina sem kem-
ur að utan. Aðrir sem nefndir voru
eru Guðbergur Bergsson, Pétur
Gunnarsson, Þórarinn Eldjárn,
Gyrðir Elíasson, Sjón, Björn Th.
Björnsson, Andrés Indriðason, Sig-
urbjörg Þrastardóttir og Ingibjörg
Haraldsdóttir. Kann að virðast sér-
kennilegt að Ingibjörg njóti ekki
meira fylgis í ljósi þess að hún
hlaut nýverið Íslensku bókmennta-
verðlaunin, en ljóðið virðist eiga
undir högg að sækja nú sem fyrr
þrátt fyrir verðlaunin.
Myndlistin má
muna sinn fífil fegurri
Þá fer góðum tíðindum að linna
og samkvæmt þessari könnun er
myndlistin í lægð og mega mynd-
listarmenn heldur betur hysja
upp um sig brækurnar í ímyndar-
fræðum. Löngum áður þóttu
22 15. febrúar 2003 LAUGARDAGUR
Hver er mestur á sviði menningar og lista á Íslandi? Fréttablaðið leit-
aði svara við þeirri spurningu með skoðanakönnun. Ýmislegt fróðlegt
kemur í ljós þó helstu niðurstöður bendi til að umfjöllun fjölmiðla og
gott gengi á erlendum vettvangi skipti sköpum.
Björk mesti
listamaður
Íslands
M
YN
D
/B
JO
R
K.
C
O
M