Fréttablaðið - 15.02.2003, Síða 32
32 15. febrúar 2003 LAUGARDAGUR
Dagbækur og persónulegirannálar fortíðarinnar hafa
löngum heillað sagnfræðinga,
ekki síst þá sem aðhyllast einsög-
una sem hefur rutt sér til rúms á
undanförnum árum, en þá leitast
sagnfræðingar við að rita söguna
út frá persónulegri reynslu þeirra
sem skráðu atburðina þegar þeir
gerðust. Íslenskir annálaritarar
voru liðtækir á árunum 1400-1800
en hafa nú gengið í gegnum end-
urnýjun lífdaga, nefnast nú blogg-
arar og skrifa annála sína beint á
Netið.
Bloggið hefur verið við lýði allt
frá árdögum Netsins og upphaf
þess má rekja til þess að nýjum
tenglum var safnað saman á
ákveðnum vefsíðum. Netscape
byrjaði til að mynda með What’s
New tenglasafnið sitt í júní 1993
og í janúar 1994 opnaði Justin
Hall Heimasíðu Justins sem varð
síðar Tenglar úr undirdjúpunum.
Slashdot opnaði fréttasíðu sína
fyrir nörda í september árið 1997
og í desember það ár kom Jorn
Barger fram með hugtakið web
log. Peter Merholz lét þau boð út
ganga snemma árs 1999 að hann
hygðist bera web log fram sem
„wee-blog“, sem var svo aftur
stytt niður í blog. Pyra hleypti svo
Blogger af stokkunum í ágúst
1999 sem gerði almennum netnot-
endum auðvelt að birta skrif sín á
Netinu og bloggæðið byrjaði.
Tjáningarþörfin brýst fram á
blogginu
Salvör Gissurardóttir, lektor í
upplýsingatækni og tölvunotkun í
námi og kennslu í Kennarahá-
skóla Íslands, hefur bloggað um
árabil og hefur velt eðli þessa fyr-
irbæris heilmikið fyrir sér. Hún
telur að í blogginu brjótist fram
sambland af tjáningarþörf og við-
leitni bloggarans til að henda reið-
ur á lífi sínu og umhverfi, ekki
síst óreiðunni á Netinu.
„Vefannálar eru ný ritunarað-
ferð – það er eins og hægt sé að
vera frjálsari og innilegri og láta
allt vaða (alltaf hægt að breyta
seinna), setja fram hugmyndir
sem eru að kvikna og seinna verð-
ur unnið úr. Margir nota annála til
að skrifa dagbækur á Netinu.
Þessar dagbækur eru oft mjög
persónulegar og andstæða við
fréttabréf.“ Salvör segir að hér sé
um nýjan miðil að ræða og blogg-
inu fylgi öðruvísi fréttamat.
„Það má setja þetta í samhengi
við einsöguna sem segja má að sé
sagnfræði nútímans. Tími hins
stóra sannleika er liðinn og nú
tíðkast að skoða ævisögur, skrifa
út frá einstaklingnum og flétta
stærri atburði inn í þá sögu. Ævi-
saga Jóns Sigurðssonar er dæmi
um þetta.“ Hvað telst fréttnæmt
er því orðið einstaklingsbundið og
Salvör sér ekki ástæðu til að gera
lítið úr hversdagslegum blogg-
færslum fólks og bendir á að þær
segi kannski meira um það hvað
það er sem skiptir fólk máli. „Mín
vegna má fólk gera lítið úr okkur
en við höldum áfram að segja sög-
una eins og hún birtist okkur.
Bloggið þarf alls ekki að vera á
neitt lægra vitsmunastigi en ann-
að og það sem virðist kannski
ómerkilegt á blogginu í fyrstu
getur til dæmis breyst í mikil-
væga þjóðfélagsumræðu.“
Björn Bjarnason er virðu-
legur bloggari
Björn Bjarnason borgarfull-
trúi er sem kunnugt er fyrsti ís-
lenski stjórnmálamaðurinn sem
tileinkaði sér nettæknina með
góðum árangri og skrif hans á
heimasíðu sinni www.bjorn.is
hafa oft orðið fréttaefni og hann
hefur blandað sér í stjórnmálaum-
ræðuna með þeim. „Björn Bjarna-
son er tvímælalaust bloggari,“
segir Salvör, sem flokkar einnig
Siv Friðleifsdóttur umhverfisráð-
herra sem bloggara. „Björn er
virðulegri í skrifum sínum en al-
mennt gerist á bloggi og hann ber
þess merki að hann á rætur í hefð-
bundinni blaðamennsku en hefur
tileinkað sér nýja tækni. Þá vísar
Björn ekki mikið í aðrar síður á
Netinu og tekur því ekki beint
þátt í blogg orðræðunni.“
Allar nánari upplýsingar á www.knattspyrnuskoli.com
Upplýsingar í símum: 896-1523 og 820-5769
Skráning fer fram á:
skraning@knattspyrnuskoli.com
Knattspyrnuskóli
fyrir stráka og stelpur
Aldurstakmark 13 ára og eldri
15.000 kr.
Æft í Fífunni og Egilshöll
Morgunæfingar kl. 06.30 - 07.30
þriðjudags, miðvikudags og fimmtudags morgna
5 vikna námskeið hefst 24. Febrúar – 29. Mars
Léttur morgunmatur áður en farið er í skólann
Dagbækur nútímans kallast blogg. Þær eru skrifaðar á Netinu og eru ólíkar
hefðbundnum dagbókum að því leyti að þær eru aðgengilegar öllum og sitt
sýnist hverjum um hvort bloggarar séu keyrðir áfram af ríkri tjáningarþörf
eða hreinni athyglissýki.
BLOGG
Bloggarar úttala
sig um allt milli
himins og jarðar
í netdagbókar-
færslum sínum.
Stjórnmál, næt-
urlífið, heim-
spekilegar vanga-
veltur, pirringur,
skítkast, matar-
uppskriftir og
veikindi unga-
barna er meðal
þess sem oft má
vinna á blogginu.
Þannig að það
þarf svo sem
engan að undra
þótt bloggið
freisti forvitinna
netverja á vafri
sínu.
Annálaritarar
samtímans
SALVÖR GISSURARDÓTTIR
„Fórum svo á árshátíð á Sögu í gærkvöldi,
aðalræðumaðurinn var hann Jón heilbrigð-
isráðherra, hann sló í gegn með fínni og
fyndinni ræðu og móðgaði engan. Jón er
nú eiginlega stjarna vikunnar...“ Á blogginu
sínu sem hún kallar Metamorphoses
stebbifr.blogspot.com
Virkur í umræðunni
Ég er bara að þessu afþví að ég hef mikinn
áhuga á að tjá mig,“ segir
Stefán Friðrik Stefánsson,
sem er sjálfsagt einn öfl-
ugast málsvari Sjálfstæð-
isflokksins á Netinu. Hann
bloggar aðallega um það
sem er efst á baugi í
stjórnmálaumræðunni
hverju sinni og hefur und-
anfarið ekki síst beint
spjótum sínum gegn Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladótt-
ur og Samfylkingunni.
„Ég sest oftast niður í lok dags
og tek þá yfirleitt fyrir einhver
tvö mál. Oftast nær tengjast þau
pólitík en ég hef einnig gaman af
því að skrifa um kvikmyndir.“
Stebbifr, eins og
hann kallar sig á
Netinu, hefur um
árabil tekið virkan
þátt í stjórnmála-
umræðum á Inn-
herjaspjalli Vís-
is.is og hefur
nokkra sérstöðu
þar sem hann tjáir
sig undir nafni, en
drifkraftur spjall-
þráða af þessu tagi er alla jafna
einmitt fólginn í nafnleynd þeirra
sem taka þátt. „Það tók nú ein-
hver þá ákvörðun fyrir mig með
því að nafngreina mig á Innherj-
unum,“ segir Stebbi, sem
lætur það ekki á sig fá
þótt spjallfélagar hans
geri oft harða hríð að sér.
„Ég er bara opinskárri ef
eitthvað er eftir að ég
byrjaði að skrifa undir
nafni og hika ekkert við
að viðra skoðanir mínar.“
Stebbi segist fá mikið
af heimsóknum og hefur
orðið var við það að fleiri
en sjálfstæðismenn lesi
skrif sín og kannast við
það að vinstrimenn séu
öflugir í blogginu. „Hægrimenn
virðast vera færri á blogginu og
blogga ekki jafn reglulega.“
Bloggið hans Stebba virðist
samkvæmt gestabókinni
hans vera vinsælt les-
efni hjá áhrifamönn-
um í Sjálfstæðis-
flokknum en meðal
þeirra sem hafa
kastað á hann
kveðju og hvatt til
dáða eru Björn
Bjarnason, og Gísli
Marteinn Baldurs-
son. „Margir af þeim
sem hafa sent mér línu í
gestabókinni eru vinir mínir,“
segir Stebbi, sem kippir sér síður
en svo upp við það að pólitískir
andstæðingar kynni sér skrifin og
geri þau að umræðuefni utan
STEFÁN FRIÐRIK
STEFÁNSSON
Einn af duglegustu
hægribloggurum.
Ræða Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur borgarfulltrúa
staðfesti það endanlega að
hún er ekki á leið í lands-
málin á málefnalegum for-
sendum heldur einvörðungu
þeim forsendum að hún er
með Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra á heilanum.
stebbifr