Fréttablaðið - 17.04.2003, Side 1
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 17. apríl 2003
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Bíó 36
Íþróttir 10
Sjónvarp 38
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
VIÐTAL
Slapp með
skrekkinn
PÁSKAR
Höfuðhátíð
kristninnar
FIMMTUDAGUR
91. tölublað – 3. árgangur
bls. 28
TRÚMÁL
Uppalin
í Moskvu
bls. 18
MENNING Passíusálmar Hallgríms
Péturssonar verða lesnir í Hall-
grímskirkju samkvæmt áralangri
hefð á vegum Listvinafélags Hall-
grímskirkju. Lesturinn hefst klukk-
an 13.30 og verður í höndum fyrr-
verandi og núverandi félaga í
Mótettukór Hallgrímkirkju.
Passíusálmarnir
SKEMMTUN Nýstárlegt hagyrðinga-
kvöld verður haldið í Íþróttahöll-
inni á Akureyri klukkan 20.30. Þar
koma saman fulltrúar allra þeirra
fimm stjórnmálasamtaka sem til-
kynnt hafa um framboð til alþingis-
kosninganna í Norðausturkjördæmi
í vor. Einnig verður boðið upp á
söng og „uppistand“.
Hagyrðingakvöld
á Akureyri
MENNING Opnuð verður sýning á
nýjum olíuverkum Sigurbjörns
Jónssonar í sýningarsal Listasafns
Reykjanesbæjar, Duushúsum. Sig-
urbjörn hefur búið og starfað í
New York í mörg ár og sýndi síðast
á Íslandi í Hafnarborg 2001.
Ný olíumálverk
bls. 20
ÞETTA HELST
Fyrrverandi skólastjóri Rafiðn-aðarskólans var dæmdur til
að endurgreiða laun sem hann
þáði sem framkvæmdastjóri End-
urmenntunar rafeindavirkja.
bls. 2
Leiðtogar Evrópusambandsinsundirrituðu formlega í Aþenu
í gær samning um inngöngu tíu
nýrra ríkja í bandalagið.
bls. 2
Saklaus fórnarlömb innrásar-innar í Írak skipta þúsundum.
Fjöldi óbreyttra borgara hefur
látið lífið, verið limlestur eða
skaðast með öðrum hætti.
bls. 4
REYKJAVÍK Suðaustan 5-8
m/s. Lítilsháttar rigning eða
súld með köflum.
Hiti 8 til 12 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 5-10 Skýjað 10
Akureyri 5-10 Skýjað 13
Egilsstaðir 5-10 Skýjað 13
Vestmannaeyjar 5-10 Skýjað 11
➜
➜
➜
➜
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
DÓMSMÁL „Eftir að Arnar Jensson
kom fyrir rétt í síðustu viku og
sagði rannsóknir hafa farið fram
án þess að nokkrar skýrslur þar
um liggi fyrir
varð mér ljóst að
þarna væri víða
pottur brotinn,“
segir Jónas
Freydal, sem
hefur verið í
fréttum undan-
farið sem annar
sakborninga í
Stóra málverka-
fölsunarmálinu.
Kæra frá
honum hefur
verið lögð fram í
Danmörku á
hendur þeim
Jóni H. Snorra-
syni saksóknara
og Arnari Jenssyni rannsóknar-
lögreglumanni en þeir stjórnuðu
rannsókn á meintri málverkaföls-
un sem seinna leiddi til ákæru.
Jón H. er saksóknari í málinu, sem
nú tekur nýja stefnu.
Kæruna leggur Jónas fyrir
réttinn hér um leið og málflutn-
ingur í Stóra málverkafölsunar-
málinu hefst á ný eftir páska.
Jónas er nú á leið til síns heima í
Kanada. Í kærunni eru Jón H. og
Arnar sakaðir um brot á mann-
réttindum, brot gegn dönskum
refsilögum, brot gegn dönsku
stjórnarskránni og brot á reglum
um alþjóðlega samvinnu lögregl-
unnar.
„Bara það að taka skýrslur á ís-
lensku án þess að dönsk lögregla
sé viðstödd dugar eitt og sér,“ seg-
ir Jónas, sem telur að íslenska lög-
reglan hafi farið um eins og
kúrekar í danskri lögsögu.
Kæru sína byggir Jónas meðal
annars á því að þegar málið var til
rannsóknar var hann búsettur í
Danmörku og samkvæmt dönsk-
um lögum voru ekki fullnægjandi
ástæður fyrirliggjandi svo að til
ákæru gæti komið. Jan Erik
Kornerup, lögmaður Jónasar, seg-
ir að samkvæmt upplýsingum frá
dönsku ákæruvaldi hafi ekki verið
óskað eftir að ákæra væri gefin út
á Íslandi fyrir sölu á meintum
fölsuðum málverkum á hendur
Jónasi. Slíkt sé hins vegar lykil-
forsenda þess að Jónas sé sakhæf-
ur miðað við dönsk lög og búsetu á
dönsku landi. Farið er fram á að
allar danskættaðar kærur á hend-
ur Jónasi verði felldar niður í
tengslum við stóra málverkaföls-
unarmálið og að opinber rannsókn
fari fram á hvernig staðið var að
rannsókn málsins í Danmörku.
„Það eina sem ég fer fram á er
að fá réttláta dómsmeðferð. Og ég
get ekki neitað því að mér blöskr-
ar að hafa verið kynntur sem mál-
verkafalsari á danskri grund árið
1997 án þess að hafa nokkurn tíma
verið kærður fyrir slíkt,“ segir
Jónas, sem neitar því aðspurður
að vera með þessu að koma höggi
á saksóknara.
jakob@frettabladid.is
Kærir saksóknarann
Stóra málverkafölsunarmálið ætlar að vinda upp á sig. Annar sakborninga hefur kært
saksóknara og stjórnanda rannsóknarinnar fyrir brot á dönskum lögum og krefst þess
að allar ákærur á hendur sér verði dregnar til baka.
STJÓRNMÁL „Ég tel fulla ástæðu til
að tala um hvernig þeir sem
stjórna í samfélaginu fara með
vald sitt,“ sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir í ræðu í Borgarnesi í
fyrrakvöld, sem vakið hefur hörð
viðbrögð í röðum sjálfstæðis-
manna. Ingibjörg kallaði fundinn
Borgarnesfund hinn síðari, og
sagðist telja ástæðu til að taka
upp þráðinn frá þeim fyrri. „Í því
efni hlýt ég sérstaklega að ræða
um Sjálfstæðisflokkinn og for-
ystu hans,“ sagði Ingibjörg. „Í
krafti stærðar sinnar og þess að
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið
í ríkisstjórn í um 50 ár á síðustu
70 árum, ræður flokkurinn lögum
og lofum í íslensku samfélagi. Því
fylgir mikil ábyrgð sem forystan
umgengst ekki af virðingu. Hún
hamast á fólki sem ekki vill lúta
þeirra pólitísku forsjá og valdi.“
Það vekur athygli að í ræðu
sinni nefndi Ingibjörg forsetann
og biskup sem tvo af þeim aðilum
sem forysta Sjálfstæðisflokks
„hefur alltaf hamast á,“ eins og
hún orðaði það, „ef þessir æðstu
menn þjóðar og kirkju tala ekki
eins og forystunni er þóknan-
legt“.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra sendi frá sér yfirlýsingu í
gær þar sem hann segist ekki
hafa í hyggju að „taka þátt í
stjórnmálaumræðu sem byggist á
dylgjum og hálfkveðnum vísum.“
Samkvæmt upplýsingum frá for-
setaskrifstofu er engra yfirlýs-
inga að vænta frá forseta Íslands
um málið. ■
Ingibjörg Sólrún gagnrýnir forsætisráðherra:
Davíð svarar engu
„Mér
blöskrar að
hafa verið
kynntur sem
málverkafals-
ari á danskri
grund árið
1997 án þess
að hafa
nokkurn tíma
verið kærður
fyrir slíkt.
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 73% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í FEBRÚAR 2003.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur 25 til 49
ára samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
febrúar 2003
27%
D
V
90.000 eintök
73% fólks lesa blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu á
fimmtu-
dögum?
63%
76%
JÓNAS FREYDAL
Hefur nú kært Arnar Jensson og Jón H.
Snorrason fyrir það hvernig staðið var að
rannsókn í Stóra málverkafölsunarmálinu í
Danmörku.
LITLIR SÆTIR PÁSKAUNGAR Í KRINGLUNNI Þessir krakkar skoðuðu litlu páskaungana vel og vandlega í Kringlunni í gær. Ungarnir
hafa vakið verðskuldaða athygli hjá yngstu kynslóðinni. Sumir höfðu reyndar áhyggjur af því hvað yrði um þá þegar páskarnir væru búnir.
TÓNLIST
bls. 10
Frægðin
er bull
ÍÞRÓTTIR
Bíður spenntur eftir
Imola
bls. 22