Fréttablaðið - 17.04.2003, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 17.04.2003, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 17. apríl 2003 23                       !" #$"%$"           ! "#$$%&%%'()(*+,-,./-,0- (1-.!+!-2..!2.3,.'4 5550-,0-6-'#7'  forníu höfum við verið að tala um að flytjast aftur til Englands. Það er hundleiðinlegt hérna.“ Hefur þú aldrei látið þig dreyma um að láta þig bara hverfa? “Við Guy höfum rætt það. En ég myndi aldrei gera það. Ég er of ábyrgðarfull.“ Vertu bjartsýn, þú gætir verið Michael Jackson. “Ég hef ekki séð þessa heim- ildarmynd, „Living with Michael Jackson“, en lýsingin á henni er hryllileg. Hljómar eins og Martin Bashir hafi notfært sér vinskap þeirra. Að gera lítið úr einhverj- um opinberlega fyrir persónuleg- an gróða mun draga dilk á eftir sér. Ég get fullvissað þig um það að allt þetta fólk á eftir að sjá eft- ir þessu. Guð mun refsa því.“ Dauðinn og Madonnan Móðir Madonnu dó úr brjóstakrabbameini þegar hún var 6 ára. Í laginu „Mother and Father“ tekur hún á þessum raunveruleika sínum. Lagið er sagt vera hjartnæmasta lagið á nýju plötunni. „Með því lagi er ég að kveðja þá atburði, fjarlæg- ast sorgina og halda áfram. Ég hef verið að leita að til- gangi í mínu lífi frá því að mamma mín dó. Flestir spyrja sig einhvern tímann hvað þeir séu eiginlega að gera hérna en velta sér svo ekki of mikið upp úr því. Vill fólk ekki vita hvað hlutverk þess er hérna? Haldið þið að lífið snúist bara um það að fæðast, verða ríkur, finna einhvern til þess að giftast, eignast börn og deyja svo?“ Ertu þá byrjuð að velta þér meira upp úr and- legum málefn- um eftir því sem þú eldist og finnur meira fyrir dauð- leika þínum? “Ég hef alltaf orðið vör við dauð- leika minn. Þegar ég var að vaxa úr grasi var mikið um dauða í kringum mig. Mamma mín dó, frændi minn dó og afi minn dó. Allt á stuttu tíma- bili. Pabbi minn gifti sig aftur og eignaðist barn með s t j ú p m ö m m u minni, sem dó svo. Þegar ég fluttist til New York árið 1978 dóu sex menn úr alnæmi í kringum mig. Ég horfði á þá taka síðasta andardráttinn. Ég hef alltaf velt því fyrir mér hver sé tilgangur lífs og dauða. Síðan eignast maður börn og finnur svo mikla ást frá þeim. Maður hugsar með sér að ef eitthvað slæmt komi fyrir þau þá muni maður kála sér. Ekki í bók- staflegri merkingu. Öllum þessum spurningum skýtur stanslaust upp í kollinum og maður hlýtur að vera fáviti að vilja ekki svör.“ Og ertu með einhver svör? “Já, ég er með svarið. Við erum hérna til þess að deila með öðrum, að gefa, að elska. Þegar þú deyrð hættir líkami þinn að vera til, en sálin, hvernig þú elskaðir og hvað þú gafst fylgir þér áfram. Ég trúi á endurholdgun og að allar lífverur verði á endanum sameinaðar. Ég er alveg viss um að þetta er ekki fyrsta líf mitt í líkama og þetta verður ekki það síðasta heldur. Er ég að hræða þig?“ Nei. Hefur þú einhvern tímann látið dáleiða þig og flytja þig aftur fyrir fæðingu þína til að komast að einhverju um fyrri æviskeið þín? “Nei. Það er heldur ekki á dag- skránni. Of mikið að gera.“ Madonna og ástin Tvennt er í mestu uppáhaldi í lífi Madonnu, að horfa á son sinn dansa allsberan og að tala við eig- inmann sinn fram eftir nóttu um lífið og tilveruna. Móðurhlutverkið og hjónabandið hafa fært henni meiri hamingju en hún hefur nokkurn tímann upplifað. Á plöt- unni „American Life“ eru lögin „Nothing Fails“, „Intervention“ og „X-Static Process“ sem allt eru ástarjátningar til eiginmanns hennar, Guy Ritchie. Breska slúð- urpressan virðist þó handviss um að ástarævintýrið eigi eftir að enda í einu stóru táraflóði. „Hið illa auga öfundsýkinnar sefur aldrei. Fjölmiðlar vilja ekki að ég sé hamingjusamlega gift með börn. Alvöru ást þarfnast mikillar vinnu og oft verður maður fyrir vonbrigðum. En það er líka alltaf hægt að finna von. Ef maður elskar einhvern þá stendur maður við hlið hans sama hvað gengur á. Öll þessi lög eru speglun á þessari tilfinningu. Ég á stundum hræði- lega vond rifrildi við manninn minn og verð bálreið út í hann. En það endar alltaf vel því að ég trúi á alvöru ást og á samband okkar.“ Þú lést hafa eftir þér í myndinni „In Bed with Madonna“ að Sean Penn hafi verið stóra ástin í lífi þínu? “En þá hafði ég ekki hitt Guy, er það? Mér fannst ég vita hvað ást var þegar ég gifti mig í fyrra skipt- ið. Ég vaknaði upp frá þeim draum. Ást er ekki það sem maður heldur í fyrstu.“ Hvernig skilgreinir þú þá ást? “Að gefa aðeins til þess að gefa og ekki ætlast til þess að fá neitt í staðinn. Þannig er ég farin að skilja skilyrðislausa ást. Hún snýst ekki um skot, og er ekki eitthvað til þess að leika sér að, ekki bara að finna fyrir kynferðislegri löngun til einhvers og dást að hæfileikum hans. Ást er svo miklu meira. Áður en ég hitti Guy hafði ég verið með allt í rugli þegar kom að ástarsam- böndum. Ég var ekki mjög gjaf- mild persóna. Að eignast börn og verða ástfangin fyrir alvöru breyt- ir manni mikið. Það er enginn tími fyrir kjaftæði lengur. Þegar ég heyri í einhverjum sem er í nýju sambandi tala um hversu ástfang- inn hann er hugsa ég... Bíddu bara þangað til að þú ert búinn að vera í sambandinu í fjögur ár.“ Stríðsádeila Nýlega dreymdi Madonnu draum um að Nasistaflokkurinn hefði náð völdum í Bandaríkjun- um. Sett var útgöngubann og mat- ur skammtaður. Gyðingar voru neyddir til þess að bera sérstök merki. Í þessum draum var Madonna uppreisnarseggur. Það er svo skemmtileg tilviljun að hún lék uppreisnarsegg, með Uzi-vél- byssu, í upphaflegu myndbandi lagsins „American Life“ sem síðar var ákveðið að sleppa í birtingu. Fólk innan hennar herbúða aug- lýsti myndbandið sem ádeilu Madonnu á stríðið í Írak. Madonna virðist þó líta á boðskap þess í víð- ara samhengi. „Þetta eru mótmæli gegn stríði, jú, en ekkert endilega gegn þessu stríði. Í okkar heimi eru að minnsta kosti um 30 stríð í gangi og ég er mótfallin þeim öllum.“ Fyrrum eiginmaður Madonnu, Sean Penn, hefur einnig verið virk- ur í mótmælum sínum. Í desember fór hann til Íraks og skrifaði síðar opið bréf til Bush Bandaríkjafor- seta í The Herald Tribune þar sem hann gagnrýndi ákvarðanir forset- ans harðlega. „Sean er einn af þeim fáu. Gott hjá honum. Flest fræga fólkið læt- ur lítið á sér bera. Enginn vill verða óvinsæll. En langflestir Bandaríkjamenn eru gjörsamlega fáfróðir um heimsmálin.“ Fjölskyldulífið Madonna hefur búið ásamt fjöl- skyldu sinni, eiginmanninum Guy Ritchie, sjö ára dóttur sinni Lourdes og tveggja ára syni þeirra hjóna, Rocco, í Kaliforníu síðustu sex mánuði. Madonna segir þau hafa ákveðið að flytjast aftur til Englands bráðlega þar sem lífið í Los Angeles sé of rólegt. Síðustu tvö ár hefur hún verið að læra á gítar og skemmtir sér við að spila með lögum Neil Young, Radiohead og The Smiths. Hún er að lesa bók- ina „Kingdom of Fear“ eftir Hunt- er S. Thompson sem fjallar um hóp vaxtarræktarkvenna sem kalla sig Chemical Pink. Unaðsleg kvöld- stund að hennar mati er kvöld- verður í heimahúsi með eigin- manninum. „Ég hef ekki orðið drukkin síð- an ég átti afmæli síðast, 16. ágúst í fyrra. Ég er Ungfrú Ábyrgðar- full, verð að komast í háttinn, verð að vinna á morgun, má ekki drekka of mikið. Ég stjórna áfengisdrykkju minni algjör- lega.“ Madonna segist vera hörð í upp- eldinu. Börn hennar fá til dæmis ekki að horfa á sjónvarpið, eða „Eiturkassann“ eins og hún kallar það. „Ég er að reyna að fá þau til þess að hugsa sjálfstætt. Við fær- um þeim bækur til þess að lesa í staðinn. Sonur minn er ekki byrj- aður í skóla, og ég er mjög meðvit- uð um hvað kemur dóttur minni fyrir sjónir. Hún biður stundum um hluti sem hún fær ekki. Ef hana langar í Nike-skó þá kippi ég mér ekki upp við það, en hún fær ekki tíu pör. Hún verður að sætta sig við það.“ Þú, af öllum, ætlar þó ekki að fara að segja henni hverju hún megi klæðast, er það? “Jú, ég geri það,“ segir hún. „Ég get það og geri það.“ Hvenær lentir þú síðast í því að einhver þekkti þig ekki? “Um daginn þegar ég fór og sótti dóttur mína í skólann. Ég hef ekki verið með dökkt hár lengi. Einhver stoppaði mig og spurði mig hvar mamma hennar væri, hann hélt að ég væri að ræna henni.“ Þegar þú lítur til baka, er eitt- hvað sem þú hefðir viljað gera á annan hátt öðruvísi? “Ég hefði ekki viljað gera svona mörg mistök. En það er tímaeyðsla að velta sér upp úr þeim. Ég veit það sem ég veit og held bara áfram. Maður rekur sig á og áttar sig á því að maður hefur verið al- gjör fáviti. Ég var algjör fáviti al- veg til fertugs,“ segir hún og hlær hátt. Hvað finnst þér í dag þegar þú sérð þá Madonnu sem söng „Holi- day“? “Hún var krakki. Saklaus og barnaleg.“ Hvað myndir þú ráðleggja henni í dag? “Ekki taka neitt persónulega.“ Viðtalið var tekið af Paul Rees fyrir Q Magazine/Planet Synd- ication. Birt með þeirra leyfi. biggi@frettabladid.is AMERICAN LIFE Madonna hefur alla tíð lagt mikið í ímynd- arsköpun sína. Svona lítur hún út í dag. Hún verður 45 ára á þessu ári.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.