Fréttablaðið - 17.04.2003, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 17.04.2003, Blaðsíða 33
■ ■ TRÚARLÍF  11.00 Fjölbreytt dagskrá um þján- ingu og lausn verður í Neskirkju. Séra Örn Bárður Jónsson leiðir dagskrána og les ritningarlestra.  11.00 Leikmenn úr Garðabæ lesa Passíusálma Hallgríms Péturssonar í Vídalínskirkju í Garðabæ. Athöfnin hefst með helgistund. Milli sálma flytja Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Gunnar Kvaran sellóleikari tónlist eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Kirkjugestir geta komið og farið hvenær sem er yfir dag- inn. Dagskránni lýkur klukkan fjögur.  13.30 Passíusálmar Hallgríms Péturssonar verða lesnir í Hallgríms- kirkju samkvæmt áralangri hefð á veg- um Listvinafélags Hallgrímskirkju. Að þessu sinni er lesturinn í höndum fyrr- verandi og núverandi félaga í Mótettukór Hallgrímkirkju. Á kaflaskilum verður flutt orgeltónlist. Auk þess flytja Magnea Tómasdóttir óperusöngkona og Guðmundur Sigurðsson orgelleikari nokkur vers úr sálmunum með gömlu íslensku lögunum í útsetningu Smára Ólasonar. Lestrinum lýkur skömmu fyrir klukkan sjö.  20.15 Friðarsamvera í Fríkirkjunni í Reykjavík. Carl Möller píanisti og org- elleikari, Anna Sigríður Helgadóttir, söngkona og söngstjóri, og Kór Fríkirkj- unnar í Reykjavík flytja tónlist. Hugvekju flytja Njörður P. Njarðvík prófessor, Guðrún Ásmundsdóttir leikkona og Hjörtur Magni Jóhannsson fríkirkju- prestur. ■ ■ FUNDUR  20.30 Afmælisfundur AA-samtak- anna á Íslandi verður haldinn að venju föstudaginn langa í Laugardalshöllinni. Nokkrir AA-félagar tala og einnig gestur frá Al-Anon samtökunum. ■ ■ TÓNLIST  21.00 Schola Cantorum flytur í Hallgrímskirkju barokktónlist eftir Scarlatti og Lotti og rómantíska tónlist eftir Bruckner og Brahms ásamt stjórn- anda sínum, Herði Áskelssyni orgelleik- ara.  17.00 Kór Langholtskirkju frum- flytur í kirkjunni ásamt Kammersveit Langholtskirkju og einsöngvurunum Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur, Mörtu Hrafnsdóttur, Birni I. Jónssyni og Eiríki Hreini Helgasyni Guðbrandsmessu eftir Hildigunni Rúnarsdóttur. Tónleikarnir eru liður í 50 ára afmælishátíð kórsins á þessu ári.  21.00 Tónlistarhópurinn Lux terrae flytur fjölbreytta sálmatónlist að eigin hætti á tónleikum í Skálholtskirkju. Tónlistarhópinn skipa Hilmar Örn Agn- arsson orgelleikari, Sigurgeir Sigmunds gítarleikari, Jóhann Stefánsson trompet- leikari og Maríanna Másdóttir söngkona. ■ ■ SKEMMTANIR  Á móti sól leikur í Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum.  Hljómsveitin Karma spilar á Players í Kópavogi.  Gullfoss & Geysir verða í Leikhús- kjallaranum.  Rally-Cross sér um fjörið á miðhæð- inni á Laugavegi 22.  Óskar Einarsson trúbador leikur á Ara í Ögri.  Hljómsveitin Í svörtum fötum verð- ur á Broadway í Reykjavík ásamt Páli Óskari, sem bæði hitar upp sem plötu- snúður, klæðist diskógallanum í hálfleik og syngur með hljómsveitinni.  15.00 Leikhópurinn Lab Loki stendur fyrir Ördansahátíð í Nýlend- unni að Nýlendugötu 15a. Á hátíðinni verða sýndir ördansar. ■ ■ OPNANIR  15.00 Þrjár myndlistarkonur opna sýningar í Hafnarborg, Menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar. Björg Þor- steinsdóttir opnar sýningu á akrýlmál- verkum og vatnslitamyndum, sem unnar eru á tveimur síðustu árum. Auður Vésteinsdóttir opnar tvær sýn- ingar á listvefnaði og ljósmyndum. Loks opnar Sigríður Ágústsdóttir sýn- ingu á handmótuðum, reykbrenndum leirverkum.  16.00 Nemendur Listaháskóla Ís- lands opna myndlistarsýningu í Reykja- víkur Akademíunni, Hringbraut 121, undir yfirskriftinni Fórn eða fífldirfska. ■ ■ KVIKMYND  16.00 Kvikmyndasafn Íslands sýn- ir meistaraverk japanska leikstjórans Akira Kurosawa Tengoku to jigoku eða Barnsránið frá 1963. Myndin hefur verið nefnd ,,High and Low“ á ensku. Sýnt verður í sýningarsal Kvikmyndasafnsins í Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði.  Efnt verður til aukasýningar á ein- leiknum Sellófon eftir Björk Jakobsdótt- ur í Sjallanum á Akueyri. ■ ■ SKEMMTANIR  Hljómsveitin Í svörtum fötum og Páll Óskar skemmta í Miðgarði í Skagafirði.  Rússneska hljómsveitin Tequila Jazz er vinsælasta hljómsveitin í Rússlandi þessa dagana. Hún heldur stórtónleika á Gauknum á laugardagskvöld.  Skítamórall spilar í Hvíta Húsinu á Selfossi.  DJ Biggi á miðhæðinni á Laugavegi 22.  Benni þeytir vinsælustu lögum síð- ustu alda í Leikhúskjallaranum.  Óskar Einarsson trúbador spilar á Ara í Ögri.  Hljómsveitin Cadillac leikur fyrir dansi á Kringlukránni.  Sýningin Þrjár systur verður frum- sýnd í NASA við Austurvöll. Systurnar þrjár eru þær Ingibjörg, Dísella og Þór- unn Lárusdætur. Söngur og gleði verða í fyrirrúmi. Með þeim spilar hljómsveit skipuð Jóni Ólafssyni, Jóhanni Hjör- leifssyni og Friðrik Sturlusyni.  Stuðmenn spila í Tjarnarborg á Ólafsfirði.  Hljómsveitin Á móti sól spilar í Vík- inni á Höfn í Hornafirði.  Hljómsveitin BSG spilar á Players í Kópavogi.  6.00 Eins og undanfarin ár verður messuhald í Þingvallakirkju við sólar- upprás á páskamorgun. Skálholtsrektor, séra Bernharður Guðmundsson, predikar og þjónar fyrir altari. Þeir sem aldir eru upp í sveitþekkja vel þessa tilfinningu sem fylgir því að liggja á jörð- inni og sjá ekkert nema jörðina, grasið í kringum sig og svo him- ininn. Manni finnst maður liggja í miðju alheimsins,“ segir Þor- gerður Sigurðardóttir listamað- ur. Hún sýnir þessa dagana sext- án blýteikningar á hvítum akrýl- grunni í Listasafni ASÍ við Freyjugötu. Sýningunni lýkur á mánudaginn. Myndirnar eru allar byggðar upp á tveimur einföldum grunn- formum, hringnum og ferningn- um, sem eru ævaforn trúarleg tákn. „Ferningurinn stendur fyrir jörðina, manninn og allt sem er áþreifanlegt og jarðbundið. Hringurinn er fyrir eilífðina og þá um leið himininn, sólina og guðdóminn. Þessi tákn eru sennilega jafn gömul mannin- um.“ Þorgerður leikur sér með þessi einföldu form á ýmsan hátt, raðar þeim saman og lætur þau tengjast á ólíka vegu. Hún hefur áður unnið mikið með trúarleg tákn í list sinni. Mest hefur hún fengist við graf- ík, en ákvað að gera teikningar fyrir þessa sýningu. „Þetta er auðvitað bara fram- hald af því sem ég hef verið að gera, teikning og grafík eru svo skyldar greinar. Maður hugsar svolítið svipað. Salurinn er líka svo bjartur og fallegur að mér fannst teikningar falla mjög vel inn í hann.“ ■ FIMMTUDAGUR 17. apríl 2003 ✓ ✓ ✓ ✓ 33 hvað?hvar?hvenær? 15 16 17 18 19 20 21 APRÍL Föstudagur hvað?hvar?hvenær? 16 17 18 19 20 21 22 APRÍL Laugardagur hvað?hvar?hvenær? 17 18 19 20 21 22 23 APRÍL Sunnudagur Í miðju alheimsins ÞORGERÐUR SIGURÐARDÓTTIR Himinn og jörð nefnist sýning hennar í Listasafni ASÍ við Freyjugötu. ■ MYNDLISTARSÝNING La n d lis t/ E R A N MUNDU: Bjóði einhver vel - að Bónus býður ALLTAF betur! ekkert brudl- Allar búðir opnar í dag -frá tíu til sex Hjá Sigga Hall á Óðinsvéum Páskalambið hjá Sigga Hall á Óð- insvéum er með angan af ís- lenskri nátt- úru. Úrvals lambafile og rifjasteik eru á matseðlin- um, þar sem kraftur og ilm- ur íslenskrar náttúru nýtur sín til fulls. „Ís- lenskt lambakjöt er besta lamba- kjöt í heimi,“ segir Siggi Hall. Skólabrú Páskalambið er kryddlegið. Ferskar kryddjurtir Miðjarðar- hafsins. Timi- an, basilika og hvítlaukur ráða ríkjum og fléttast saman við angan ís- lenskra heiða. „Það er gaman að matreiða lamb, sérstaklega íslenskt,“ segir Tómas kokkur á Skólabrú. Sommelier Páskalambið á Sommelier er með sterkri hnetusósu. Dulúð krydd- markaða Austurlanda fjær og ís- lenskt sumar í einni sæng. „Hnetubragð- ið verður ekki mjög afger- andi og fellur vel að bragði kjöts- ins,“ segir Róbert Egilsson, kokk- ur á Sommelier. Páska-lambið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.