Fréttablaðið - 17.04.2003, Page 46
Hrósið 46 17. apríl 2003 FIMMTUDAGUR
Ég get ekki neitað því en ég erennþá frekar efins hvort ég eigi
að segja ykkur þessa sögu. En einu
sinni sagði góður maður við mig að
það væri fyrsta og síðasta skylda
hvers óþverra að fá fólk til að hlæja
og því læt ég hana flakka.
Þessi atburður átti sér stað á
þorrablóti í febrúar árið 1992 austur
á Norðfirði. Ég var sextán vetra
gamall og var í fjötrum míns fyrsta
ímyndaða ástarþríhyrnings, þ.e. ég
og félagi minn vorum hrifnir af
sömu stúlkunni. Ég komst að því
síðar að sú hrifning var ekki gagn-
kvæm hvað mig varðar en það er
önnur saga og vandræðalegri.
Í febrúar – eftir langt og árang-
urlaust viðreynslutímabil – fékk ég
gullið tækifæri til að sýna hvað í
mér byggi því stúlkan bauð okkur
báðum á þorrablót með fjölskyldu
sinni. Þannig háttaði til að ég fékk
sæti á móti henni við langborðið en
félagi minn sat við hlið hennar – til
vinstri frá mér séð. Ég hrósaði
happi því með þessu móti gafst mér
betra tækifæri til að ná þessu klass-
íska augnkontakti án þess að hafa
mikið fyrir því. Eftir nokkra brenni-
vínssjússa, söng og tralala lét ég
slag standa og hóf svona kálfanudd
undir borði. Svo við tölum bara
tæpitungulaust: Ég byrjaði að káfa
á henni og notaði til þess mínar risa-
stóru lappir (skóstærð 45). Þessi að-
ferð virtist ekki virka neitt voða-
lega vel því þrátt fyrir hið „eró-
tíska“ nudd virtist hún hafa meiri
áhuga á því að stinga augun úr ein-
hverjum sviðahaus. Ég prófaði að
nudda af meiri áfergju og að lokum
ákvað ég að fara alla leið. Ó, já...
Við þessa taktík tók ég eftir því
að félagi minn og sessunautur
stúlkunnar byrjaði að hósta upp úr
sér súrmetinu og þegar ég þrýsti af
meiri krafti engdist hann sundur og
saman af kvölum - í það minnsta
held ég að það hafi verið sársauki
sem orsakaði krampaköstin.
Nú, það er skemmst frá því að
segja að ég rataði greinilega á rang-
an stað eða kannski er betra að
segja að ég rataði á ranga mann-
eskju. Við þessa uppgötvun afsak-
aði ég mig og gekk heim
skömmustulegur og skammast mín
reyndar ennþá. En ég þakka samt
Guði almáttugum að ég notaði
vinstri löppina við þessar aðfarir
því hægra megin við stúlkuna sat
afi hennar. ■
Sagan
JÓN KNÚTUR ÁSMUNDSSON
■ blaðamaður segir frá vandræðalegu
þorrablóti og skorar á Kristínu Atladóttur,
kvikmyndaframleiðanda og„töffara frá
náttúrunnar hendi“, að segja næstu sögu.
Fær Jóhannes í Bónus fyrir aðlækka verð á páskaeggjum svo
um munar.
Fréttiraf fólki
Hræðileg endalok á efnilegu kvöldi
JÓN KNÚTUR ÁSMUNDSSON
„Eftir nokkra brennivínssjússa, söng og tra-
lala lét ég slag standa og hóf svona kálfa-
nudd undir borði.“
Stelpa sem kippir
hlutum í lag
Mér fannst ekkert gaman aðrólurnar væru slitnaðar,“
segir Elín Sóley Reynisdóttir
sem skrifaði Högna Bærings-
syni, bæjarverkstjóra í Stykkis-
hólmi, bréf. Í bréfinu bað hún
Högna að laga tvær rólur á leik-
velli. „Frændi minn var að reyna
að róla sér í rólunni og hann bara
datt úr rólunni.“ Elín Sóley sá að
við svo búið mátti ekki standa og
þar sem frændinn er bara fimm
ára og getur ekki skrifað bréf til
yfirvaldanna tók hún af skarið.
„Ég sendi honum bréfið þegar
kvöldmaturinn var búinn og
næsta dag þegar ég kom úr skól-
anum voru rólurnar komnar,“
segir Elín Sóley.
Hún er afar ánægð með við-
brögðin og segist vera mikið úti
að leika sér og fylgist ágætlega
með umhverfi sínu. „Ég fer oft
út á róló eða í bátaleik. Svo fer
ég út að hjóla.“
Nú er páskafrí og þá segist
Elín Sóley vera mikið úti að
leika sér. Hún neitar því þó ekki
að stundum sé hún svolítill sjón-
varpssjúklingur, en samt ekkert
mikill. Um páskana ætlar hún að
fara til pabba síns í Borgarnesi.
Kannski að það séu bilaðar rólur
í Borgarnesi. Hún er mikill
Hólmari og finnst Stykkishólm-
ur bæði skemmtilegur og falleg-
ur bær. ■
KOMIN Á RÓL
Elín Sóley Reynisdóttir rólar sér í nýviðgerðri rólu. Högni Bæringsson bæjarverkstjóri
lagaði rólurnar um leið og hann fékk bréf frá Elínu Sóleyju um ástand þeirra.
Persónan
ELÍN SÓLEY REYNISDÓTTIR
■ á heima í Stykkishólmi. Hún lætur
sig varða hvort hlutir séu í lagi og ýtti
á eftir því að rólum á leikvelli væri
komið í lag.
Á fundi Samfylkingarinnar íBorgarnesi á þriðjudags-
kvöldið var Össur Skarphéðins-
son í miklum
ham. Hann
rifjaði meðal
annars upp að
Jóhann Sigur-
jónsson, for-
stjóri Hafró,
hefði sagt í út-
varpi fyrir
þremur vikum
að það væri
„stílbrot“ að
leggja til
aukna úthlut-
un þorksk-
kvóta á grund-
velli sömu
gagna og Dav-
íð Oddsson
notaði nú til
að tilkynna 30
þúsund tonna viðbótarkvóta.
Össur sagði að ef yfirstjórn
Hafró æti nú ofan í sig fyrri yf-
irlýsingar og tæki við tilskipun-
um frá Davíð um ástandið í
sjónum væri það enn ein sönn-
unin fyrir tilvist bláu handar-
innar og væri illt til þess að vita
að yfirstjórn Hafró væri orðin
að fremsta kögglinum á löngu-
töng bláu handarinnar!
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Ingibjörg
Sólrún er ekki í framboði í Borgarnesi.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Arsenal og Man. United.
Heiðar Már Jónsson.
Magnús Jónsson.
1. lítri af ís úr vél
kr: 350,-
(gegn framvísun auglýsingarinnar)
Opið alla páskana
Tilboð
Verið
velkomin
Á r m ú l a 4 2