Fréttablaðið - 17.04.2003, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 17.04.2003, Blaðsíða 11
G RI LL IÐ SENT HEIM SA M SETT & T IL BÚ IÐ ! Fiesta XT34540 39.900 kr. Fiesta EA34540 27.900 kr. Fiesta 2 4025 16.900 kr. Fiesta E30035 21.900 kr. F í t o n / S Í A Á næstu ESSO stöð finnur þú grillið sem hentar þér. Þú getur fengið grillið sent heim samdægurs samansett og tilbúið til notkunar. Auðveldara getur það ekki verið. Það eina sem þú þarft að gera er að snúa kjötinu. Samansett heimsent*& *Á höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesbæ og Akureyri. 7 dagar til sumars! 11FIMMTUDAGUR 17. apríl 2003 FÓTBOLTI Harry Redknapp, knatt- spyrnustjóri Portsmouth, hrósaði leikmönnum sínum í hástert eftir að sæti í ensku úrvalsdeildinni var í höfn eftir 1:0 sigur á Burnley í fyrrakvöld. „Síðustu sex mínúturnar voru þær lengstu í mínu lífi en bæði leikmennirnir og áhorfendurnir eiga þetta skilið,“ sagði Redknapp eftir sigurinn. „Það sem við höf- um áorkað undanfarna tólf mán- uði er ótrúlegt. Ég er forviða á því sem hefur átt sér stað og það sást bara á viðbrögðum fólksins í Portsmouth þegar flautað var til leiksloka. Það var frábært.“ Redknapp hefur gjörbreytt gengi liðsins síðan hann tók við liðinu í mars í fyrra eftir að hafa verið rekinn frá West Ham. Þar hafði hann verið stjóri í sjö ár. Hann segist ekki ætla að sækjast eftir leikmönnum frá sínu gamla félagi fari svo að það falli úr úr- valsdeildinni. Orðrómur hefur verið uppi um að Joe Cole muni hugsanlega ganga til liðs við Portsmouth. „Ég held að West Ham haldi sér uppi og ég hlakka til að spila við þá á næstu leiktíð,“ sagði Redknapp. ■ Portsmouth í ensku úrvalsdeildina: Redknapp himinlifandi BRADBURY Lee Bradbury, leikmaður Portsmouth (í miðjunni), með boltann í leiknum gegn Burnley sem háður var á Fratton Park, heimavelli Portsmouth. Portsmouth er í efsta sæti 1. deildar með 89 stig eftir 42 leiki. Leicester City er í öðru sæti með 87 stig. AP /M YN D ■ Enski boltinn ATLI Atli Eðvaldsson skoraði í leik gegn Finnum fyrir 21 ári. A-landslið karla: Tíundi leik- urinn gegn Finnum FÓTBOLTI Íslendingar leika gegn Finnum í tíunda sinn þegar þjóð- irnar mætast í Vantaa í lok mán- aðarins. Íslendingar unnu 2:0 í fyrsta leik þjóðanna fyrir 55 árum og þann síðasta 1:0 árið 2000. Rík- harður Jónsson skoraði bæði mörk Íslands árið 1948 og dóttur- sonur hans og nafni, Ríkharður Daðason, eina mark leiksins fyrir þremur árum. Tveimur leikjum þjóðanna hef- ur lokið með jafntefli en Finnar hafa unnið fimm sinnum, síðast 3:2 í Helsinki árið 1982. Atli Eð- valdsson landsliðsþjálfari skoraði annað mark Íslands í leiknum. Íslenski hópurinn: Birkir Kristinsson (ÍBV), Árni Gautur Arason (Rosenborg), Rúnar Krist- insson, Arnar Grétarsson, Arnar Þór Viðarsson og Marel Baldvins- son (Lokeren), Guðni Bergsson (Bolton), Hermann Hreiðarsson (Charlton), Þórður Guðjónsson (Bochum), Lárus Orri Sigurðsson (WBA), Brynjar Björn Gunnars- son (Stoke), Heiðar Helguson (Watford), Eiður Smári Guðjohn- sen (Chelsea), Ívar Ingimarsson (Brighton), Jóhannes Karl Guð- jónsson (Aston Villa), Gylfi Ein- arsson og Indriði Sigurðsson (Lil- leström). ■ Byggingu á nýjum knatt-spyrnuleikvangi Arsenal á Ashburton Grove hefur verið frestað vegna fjárhagsörðug- leika. Til stóð að leikvangurinn yrði tilbúinn fyrir leiktíðina 2005/06 en einhver bið verður á því. Nýi völlurinn verður stein- snar frá Highbury og geta stuðn- ingsmenn félagsins enn farið um neðanjarðarlestarstöðina sem nefnd er eftir félaginu. Hann mun rúma um 60 þúsund áhorf- endur en Highbury, sem hefur verið heimavöllur Arsenal í 90 ár, rúmar 38.500 áhorfendur. Yeovil Town leikur í 3. deild-inni ensku á næsta tímabili eftir yfirburðasigur í Nationwide Conference-deildinni. Yeovil var stofnað árið 1895 og hefur lengi verið meðal sterkustu utandeild- arfélaga Englands. Stærsta stundin í sögu félagsins hingað til var 2:1 sigur á Sunderland í 4. umferð bikarkeppninnar árið 1949. Fulham flytur ekki heim áCraven Cottage fyrir næstu leiktíð. Félagið flutti þaðan í fyrra því til stóð að endurbyggja völlinn. Ekkert varð úr bygging- aráformum og leikur Fulham því áfram á Loftus Road, heimavelli QPR. ■ Enski boltinn

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.