Fréttablaðið - 17.04.2003, Blaðsíða 4
4 17. apríl 2003 FIMMTUDAGUR
■ Evrópa
Færðu páskaegg?
Spurning dagsins í dag:
Ferðu í kirkju um páskana?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
35%
47%
Nei
19%Veit ekki
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
FJARSKIPTI Sameinað félag Tals og
Íslandssíma hefur gert samning
um víðtækt samstarf við Voda-
fone. Framvegis mun sameinaða
félagið nota vörumerkið „Og
Vodafone“ í öllum viðskiptum sín-
um á Íslandi.
Í daglegu tali verður nafnið
Og Vodafone notað en formlegt
nafn félagsins er Og fjarskipti
hf. Vodafone er stærsta farsíma-
fyrirtæki í heiminum í dag og
þjónar yfir 112,5 milljónum við-
skiptavina. „Markmið okkar hér
eftir er að gera Og Vodafone að
sterkasta vörumerkinu á síma-
markaðnum á Íslandi,“ segir
Thomas Nowak, framkvæmda-
stjóri samstarfssviðs Vodafone.
Félagið hefur þegar kynnt sam-
ræmda verðskrá en á næstu dög-
um og vikum verða ný tilboð og
þjónustuleiðir kynntar. ■
Hæstiréttur:
Braut
vopnalög
DÓMSMÁL Karlmaður var dæmdur
til að greiða 20 þúsund krónur fyrir
vopnalagabrot með því að eiga
haglabyssu án
þess að hafa öðl-
ast skotvopna-
leyfi. Haglabyss-
an var gerð upp-
tæk. Einnig fund-
ust 238 lítrar af
áfengi í bifreið hans en þó að um-
búnaður áfengisins og magn bentu
til þess að ekki væri um að ræða
löglegan varning sem ætlaður væri
til einkaneyslu var ekki talin fram
komin næg sönnun þess að um væri
að ræða ólöglegan innflutning. ■
ÍRAK, AP Menningarmálastofnun
Sameinuðu þjóðanna ætlar að
senda sérfræðinga til Írak til þess
að leggja mat á þær skemmdir
sem orðið hafa á fornmunum í
landinu samfara innrás Banda-
ríkjamanna og Breta. Sendinefnd-
inni er ætlað að heimsækja söfn
og ýmsa sögufræga staði, finna
leiðir til enduruppbyggingar og
útvega styrktaraðila. „Menning
getur gegnt lykilhlutverki í því að
koma á friði,“ sagði fram-
kvæmdastjóri stofnunnarinnar.
Ljóst er að brotist var inn í
þjóðminjasafn Íraks og stolið
þaðan ómetanlegum fornmunum
auk þess sem kveikt var í
íslamska bókasafninu í Bagdad.
Menningarmálastofnunin hefur
hvatt liðsmenn innrásarhersins
til þess að grípa tafarlaust til
aðgerða til þess að vernda menn-
ingarstofnanir og fornminjar í
landinu. Enn fremur hafa
nágrannalönd Íraks, tollverðir,
lögregla og listaverkasalar verið
beðin að leggja sitt af mörkum til
þess að koma í veg fyrir að stoln-
ir íraskir fornmunir gangi
kaupum og sölum. ■
ALMENNINGUR Myndir af Ali Is-
maell Abbas, tíu ára dreng sem
missti handleggi sína og foreldra
í sprengjuárás innrásarherjanna
í Írak, hafa vakið óhug meðal
margra. Hann er þó aðeins einn
af þúsundum saklausra borgara
sem hafa orðið illa úti í stríðsá-
tökum eftir að Bretar og Banda-
ríkjamenn hófu innrás í Írak.
Fréttamaður BBC ræddi við
Abid Hassan Hamoodi, 72 ára
íbúa Basra. Hann missti tíu fjöl-
skyldumeðlimi þegar herflugvél
bandamanna varpaði sprengjum
á heimili hans. Aðeins þrír af
þrettán nánustu ættingjum
Hamoodis sem höfðust við á
heimili hans lifðu árásina af.
„Ég hef skrifað Tony Blair
bréf,“ segir Hamoodi. „Komu
bandamenn hingað til að frelsa
Íraka eða til að drepa saklausa
borgara?“ Sprengjum hafði verið
varpað á næsta nágrenni
Hamoodis og fjölskyldu hans.
Þau töldu sig þó tiltölulega örugg
þar sem þau höfðust við í einu
herbergja hússins. Það öryggi
hvarf fljótt þegar sprengja féll á
húsið. Yfirstjórn innrásarherj-
anna hefur síðar sagt að ætlunin
hafi verið að varpa sprengju á
hús þar sem einn af yfirmönnum
Írakshers hafðist við.
Í ítarlegri úttekt breska blaðs-
ins The Independent er meðal
annars fjallað um sprengingar á
Shaab- og Shuala-mörkuðunum í
Bagdad. 115 óbreyttir borgarar
féllu í þeim árásum. Kannanir
blaðsins á vettvangi leiddu í ljós
að báðar árásirnar voru gerðar af
herþotum Breta og Bandaríkja-
manna. Þá er rifjuð upp árásin á
veitingahús þar sem talið var að
Saddam Hussein hefðist við. Lík
fjórtán saklausra borgara hafa
fundist. Bandaríkjastjórn vissi
að hætta væri á mannfalli meðal
óbreyttra borgara. Árásin var
samt sem áður framkvæmd þrátt
fyrir að Genfarsáttmálinn um
stríðsrekstur banni að lífi
óbreyttra borgara sé stefnt í
hættu.
Þá eru ótalin atvik þar sem
klasasprengjum var varpað að
óbreyttum borgurum, konur,
börn og gamalmenni skotin af
bandarískum hermönnum sem
óttuðust sjálfsmorðsárásir og
aðrar sprengjuárásir á svæði þar
sem óbreyttir borgarar höfðust
við. ■
NEITAR SÖK Ian Huntley, sem er
sakaður um að hafa myrt tvær
tíu ára stúlkur á Englandi, neitar
sök. Hann viðurkennir þó að hafa
reynt að afvegaleiða lögregluna.
DROTTNING MIÐLAR MÁLUM
Hollandsdrottning hefur skipað
tvo milligöngumenn til að hjálpa
tveimur stærstu flokkum lands-
ins við að mynda stjórn. Kosning-
arnar fóru fram 22. janúar.
Stjórnarmyndunarviðræður hafa
engum árangri skilað.
RÆTT VIÐ HERMENN
Tony Blair ræddi meðal annars við breska
hermenn á ferð sinni um Skotland.
Skosku kosningarnar:
Endalok
Bretlands
GLASGOW Ef Skoski þjóðarflokkur-
inn fagnar sigri í kosningum til
skoska þingsins boðar það enda-
lok Bretlands eins og við þekkjum
það, sagði Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, á kosningafundi
í Glasgow. Blair var mættur á
staðinn til að hjálpa frambjóðend-
um Verkamannaflokksins í kosn-
ingabaráttunni.
Blair sakaði þjóðernissinna um
að leyna raunverulegu markmiði
sínu í kosningabaráttunni, sem
væri sjálfstæði Skotlands. Sam-
kvæmt könnunum eru Verka-
mannaflokkurinn og Skoski þjóð-
ernisflokkurinn jafn stórir. ■
Samningur við stærsta
farsímafyrirtæki heims:
Vodafone
á Íslandi
OG VODAFONE
Nýtt vörumerki sameinaðs félags Íslandssíma og Tals var kynnt í Smáralind í gær.
Söfn og sögufrægir staðir lögð í rúst:
Menning í þágu friðar
ÞJÓÐMINJASAFNIÐ Í BAGDAD
Aðkoman í þjóðminjasafninu í Bagdad er vægast sagt hörmuleg enda hafa þjófar látið þar
greipar sópa. Áður en stríðið í Írak hófst voru yfir 100.000 fornmunir í safninu.
Átti að sprengja annað hús
Saklaus fórnarlömb innrásarinnar í Írak skipta þúsundum. Fjöldi óbreyttra borgara hefur
látið lífið, verið limlestur eða skaðast með öðrum hætti.
FYLGIR SYNI Á SJÚKRAHÚS
Íraskur karlmaður heldur í hendi sonar
síns. Sonur hans slasaðist þegar hann tók
upp ósprungna sprengju. Óttast er að
margir eigi eftir að slasast af þeim sökum.
Notkun klasasprengja var sérstaklega
gagnrýnd af þessum sökum.
FANGAÐI HUG MARGRA
Ali Ismaell Abbas varð illa úti í sprengju-
árás sem kostaði foreldra hans lífið. Söfn-
un hefur verið hafin honum til hjálpar.
Þúsundir til viðbótar hafa orðið illa úti.
Framhaldsaðalfundur
Félags einstæðra foreldra
Framhaldsaðalfundur Félags einstæðra foreldra
verður haldinn föstudaginn 2. maí 2003 í Skeljahelli, sal félagsins,
í Skeljanesi 6, kl. 16:00.
Dagskrá:
1. Fundur settur, skipan fundarstjóra
og fundarritara.
2. Lagabreytingar. Tillaga til
breytingar á 2., 9. og 10. gr. laga félagsins.
3. Kosning í stjórn og nefndir
og kosning formanns.
4. Kosning löggiltra endurskoðenda.
5. Fundi slitið.
Á aðalfundi ræður afl atkvæða úrslitum og hafa allir skuldlausir
félagsmenn rétt til að kjósa. Hver félagsmaður hefur eitt atkvæði.
Styrktarmeðlimir hafa rétt til setu á aðalfundi en ekki atkvæðisrétt.