Fréttablaðið - 17.04.2003, Síða 14
14 17. apríl 2003 FIMMTUDAGUR
Áratug eftir að Bashar Assadlagði stund á augnlækningar í
London horfist hann í augu við
það að mesta hernaðarveldi heims
hefur einsett sér að skikka ríki
hans til hlýðni. Augnlækninga-
neminn fyrrverandi gerði ekki
ráð fyrir því að taka við völdum í
Sýrlandi af föður sínum, Hassan
Assad. Búist hafði verið við því að
Basel, eldri bróðir Bashars, yrði
fyrir valinu. Þegar hann lést í bíl-
slysi fyrir níu árum var Bashar
kallaður heim í skyndingu og bú-
inn undir það að taka við völdum
að föður sínum gengnum.
Of ungur til að verða forseti
Bashar er sagður hafa haft lít-
inn áhuga á stjórnmálum á þess-
um tíma. Hann tók þó við hlut-
verki bróður síns og bjó sig und-
ir að taka við landsstjórninni af
föður sínum. Þegar Hassan
Assad féll frá í júní 2000 var
Bashar 34 ára að aldri, sex árum
of ungur til að verða forseti sam-
kvæmt lögum Sýrlands. Þá voru
góð ráð dýr.
Baath-flokkur-
inn, sem fer
með valdataum-
ana í Sýrlandi,
ákvað að breyta
lögunum þannig
að menn þyrftu
að hafa náð 34
ára aldri til að
geta gegnt for-
setaembættinu.
Þingið sam-
þykkti laga-
breytinguna og
kaus Bashar
einhljóða.
Bashar vann sér fljótt vinsæld-
ir fyrir að hefja baráttu gegn
spillingu og hefja nútímavæðingu
Sýrlands. Honum hefur þó ekki
orðið mikið ágengt við að bæta
spillt og staðnað efnahagslíf í
landinu eftir að hann tók við völd-
um. Að sumu leyti hefur hann
þegið stefnu sína í arf frá föður
sínum. Þannig hefur hann neitað
að semja um frið við Ísraela nema
þeir skili Gólanhæðum, sem þeir
hertóku í Sex daga stríðinu árið
1967. Hann heldur líka áfram
stuðningi við Hezbollah-hreyfing-
una sem hefst við í Líbanon og
berst gegn Ísraelum.
Aftur í ónáð
Bandaríkjamenn lofuðu ríkis-
stjórn Assads fyrir þann stuðn-
ing sem hún sýndi baráttu Banda-
ríkjamanna gegn hryðjuverkum
eftir árásirnar á tvíburaturnana
11. september 2001. Sýrlendingar
greiddu atkvæði með ályktun
Sameinuðu þjóðanna númer 1441
þar sem Írökum var fyrirskipað
að sýna samvinnuvilja eða vera
viðbúnir því að taka afleiðingum.
Það hefði því mátt ætla að sam-
skipti ríkjanna færu batnandi.
Sýrland var þó ekki tekið út af
lista Bandaríkjanna yfir þau ríki
sem styðja við bakið á hryðju-
verkum. Bashar lýsti andstöðu
við innrásina í Írak og gekk
reyndar lengra. Hann lýsti þeirri
skoðun sinni við líbanskt dagblað
í síðasta mánuði að hann vonaðist
til þess að Bandaríkjamönnum
tækist ekki að hernema landið.
Hann spáði mikilli andstöðu með-
al almennings ef það gerðist,
andstöðu sem gæti leitt til upp-
reisna.
Ólíkt mat stórvelda
Bandaríkjamenn hafa farið
hörðum orðum um sýrlensk
stjórnvöld að undanförnu. Ari
Fleischer, talsmaður Bandaríkja-
forseta, sagði Assad vera óreynd-
an leiðtoga og varaði hann við því
að verða ekki við kröfum Banda-
ríkjanna um að hætta stuðningi
við hryðjuverk, láta af tilraunum
með gjöreyðingarvopn og aðstoð
við Íraka.
Jack Straw, utanríkisráðherra
Bretlands, hafði öllu jákvæðari
sýn á forsetann. „Reynsla mín af
kynnum við Bashar forseta og
Farouk al-Sharaa (utanríkisráð-
herra) er að þetta séu skynsamir
menn sem láta sér annt um fram-
tíð og velferð þjóðar sinnar.“
Straw sagði að Sýrlendingar yrðu
að svara nokkrum spurningum
um meinta efnavopnaeign sína.
Það væri þó ekki hægt að stað-
hæfa neitt um hana að svo stöddu.
Boð um flugskeytaárás
Eitt af því sem hefur farið fyrir
brjóstið á Bandaríkjamönnum er
grunur þeirra um að Sýrlendingar
hafi hjálpað leiðtogum Íraks við að
komast undan. Þótti sumum hand-
taka bróður Saddams Husseins
nærri sýrlensku landamærunum
renna stoðum undir þennan grun.
Aðrir hafa haft meiri efasemdir.
Einn þeirra sem draga sann-
leiksgildi ásakana Bandaríkja-
manna í efa er blaðamaðurinn Ro-
bert Fisk, sem hefur fjallað um
málefni Mið-Austurlanda í tvo
áratugi. Hann segir ótrúlegt að
Sýrlendingar myndu leyfa írösk-
um leiðtogum að dvelja í landinu
þó þeir reyndu að fara um landið.
Til þess væri áhættan of mikil.
„Ef Bashar Assad forseti leyfði
Saddam að dvelja í landi sínu sem
gestur væri það líkast því að
bjóða flugskeyti inn í höll sína.“
Möguleikinn er þó sá að íraskir
leiðtogar noti Sýrland sem
áfangastað á leiðinni til Hvíta-
Rússlands, líklegasta staðarins til
að fá hæli.
Verjast ekki Bandaríkjunum
Bandaríkjamenn hafa hótað
Sýrlendingum efnahagsþvingun-
um ef þeir verða ekki við kröfum
þeirra. Sýrlendingar hafa óttast
að Bandaríkjamenn láti til skarar
skríða gegn sér eftir að Írak er
brotið á bak aftur. Ótti við hern-
aðaraðgerðir á næstunni á ekki
við rök að styðjast samkvæmt
fréttum þess efnis að Banda-
ríkjastjórn hafi stöðvað áætlana-
gerð vegna innrásar. Þó er talið
að vilji sumra standi til að gera
innrás. Þar er varnarmálaráð-
herrann tæpitungulausi, Donald
Rumsfeld, sagður fremstur í
flokki.
Leonid Ivashov, sem stýrði al-
þjóðaskrifstofu rússneska varnar-
málaráðuneytisins, sagði blaða-
manni AP að loftvarnakerfi Sýr-
lendinga væru öflugri en loft-
varnakerfi Íraka. Það breytti því
þó ekki að þeir myndu ekki geta
varist innrás Bandaríkjahers ef
til hennar kæmi. Sýrlendingar
gerðu tilraun til þess fyrir
nokkrum árum að kaupa háþróuð-
ustu loftvarnakerfi Rússa, S-300,
sem þeir segja betri en sambæri-
legan búnað Bandaríkjamanna.
Rússar neituðu þeirri beiðni.
Þrýstingur Ísraela
Bashar Assad er hættulegur
þjóðarleiðtogi og hefur sýnt
vafasama dómgreind með því að
taka afstöðu með Írökum og hýsa
meðlimi úr stjórn Saddams
Husseins. Þetta var dómur Ariels
Sharons, forsætisráðherra Ísra-
els, þegar hann hvatti Banda-
ríkjastjórn til að beita Sýrlend-
inga efnahagsþvingunum til að
þrýsta á um að þeir láti af stuðn-
ingi við skæruliða Hezbollah-
hreyfingarinnar.
Orð Sharons hafa verið túlkuð
sem svo að hann vilji hafa sem
mest upp úr því fyrir Ísrael að
Saddam Hussein og félögum hans
var komið frá völdum í Írak. Írak
og Sýrland hafa lengi verið helstu
andstæðingar Ísraela. Ísraelar
hernámu Gólanhæðir í suðvestur-
hluta Sýrlands 1967 og hafa haldið
þeim síðan. Bent hefur verið á að
ef hugur Bandaríkjamanna stend-
ur raunverulega til þess að tak-
marka útbreiðslu gjöreyðingar-
vopna sé Ísrael eitt fyrsta ríkið til
að snúa sér að þar sem Ísraelar
ráði yfir fjölda kjarnorkuvopna.
brynjolfur@frettabladid.is
Litli bróðir á forsetastól
Fyrrum nemi í augnlækningum stýrir nú landi sem Bandaríkin hafa krafist að geri hreint fyrir dyrum sínum. Sýrlendingar eru
sakaðir um að hafa aðstoðað Íraka, reynt að koma sér upp gjöreyðingarvopnum og stutt við bakið á hryðjuverkasamtökum.
MYNDIR AF FORSETANUM TIL SÖLU
Bashar Assad Sýrlandsforseti verður
að taka erfiðar ákvarðanir á næstu
vikum og mánuðum vegna þrýstings
Bandaríkjamanna.
FRIÐUR OG HERNÁM FARA EKKI SAMAN
Sýrlenskur skrautritari býr til borða þar sem veru Bandaríkjanna í Írak er mótmælt. Mikillar
andúðar á Bandaríkjunum gætir í Sýrlandi, sérstaklega í flóttamannabúðum þar sem
400.000 Palestínumenn hafast við.
VINNIÐ MEÐ OKKUR
George W. Bush Bandaríkjaforseti segir að
Sýrlendingar verði að sýna samstarfsvilja.
ÁSAKANIR
BANDARÍKJAMANNA
● Sýrlendingar hafa reynt að koma sér
upp gjöreyðingarvopnum
● Sýrlendingar hafa hjálpað íröskum
ráðamönnum að komast undan
● Sýrlendingar hafa stutt við bakið á
hryðjuverkasamtökum
● Fjöldi Sýrlendinga barðist gegn her-
sveitum Bandaríkjamanna og Breta
„Ef Bashar
Assad forseti
leyfði
Saddam að
dvelja í landi
sínu sem
gestur væri
það líkast því
að bjóða
flugskeyti inn
í höll sína.