Fréttablaðið - 17.04.2003, Qupperneq 22
Það voru svo sannarlega skiptarskoðanir um nýjasta James
Bond-lagið, „Die Another Day“,
sem Madonna gerði. Kannski eðli-
legt í ljósi þess að það eru yfirleitt
skiptar skoðanir á öllu sem
drottning poppsins tekur sér fyrir
hendur. Hvort sem það er að gera
heila bók af nektarmyndum af
sér, vinum sínum og dýrum,
blandaða vangaveltum um kynlíf
sitt og kynfæri. Eða að tæla kaþ-
ólskan prest og leika sér með
ímynd Krists og Maríu meyjar í
einu myndbanda sinna.
Hún náði jafnvel að hneyksla
Kanann í heimildarmyndinni „In
Bed with Madonna“. Þar sýndi
hún á bjórflösku hvernig best
væri að fullnægja karlmanni með
munninum að ógleymdu fróunar-
atriði í miðju lagsins „Like a Virg-
in“ sem hún flutti á sviði á hverju
kvöldi á „Blonde Ambition“-tón-
leikaferð sinni um heiminn.
Á þriðjudaginn eftir páska gef-
ur Madonna út níundu breiðskífu
sína (ef við teljum ekki með ara-
grúa af safnplötum, kvikmynda-
tónlistarskífum eða öðrum grip-
um), „American Life“, og kveður
þar við nýjan tón.
Skelkaðir samstarfsmenn
Nýja platan er sögð þó nokkuð
melódískara en hið vélstirða
Bond-lag, þó það fái að fljóta með.
Undirstaðan er teknótaktur,
vökvakenndar hljómborðslínur,
stórar dramatískar strengjaút-
setningar blandaðar við viðlög
sem leikin eru á önnur órafmögn-
uð hljóðfæri. Ekki láta ykkur
koma á óvart ef raftístin leiða allt
í einu í gospelkór í einu laganna.
Madonna vann „American Life“
með svissneska útsetjaranum
Mirwais Ahmadzai sem vann
einnig lítillega að síðustu plötu
hennar. Það ætti þó að vera óhætt
að fullyrða að plöturnar séu tals-
vert ólíkar.
„Við vildum reyna að sameina
heima rafmagnaðrar og óraf-
magnaðrar tónlistar,“ útskýrir
Madonna. „Þetta er annað skref
áfram en mig hefur aldrei langað
til að endurtaka mig. Ég vil ekki
gera sama hlutinn tvisvar.“
Madonna hefur alla tíð unnið
mikið með öðrum, bæði í laga-
smíðum og útsetningum. Það er
þó algengur misskilningur að lög-
in séu samin fyrir hana. Yfirleitt
ræður hún ferðinni og velur sér
samstarfsmenn gaumgæfilega.
Hún passar sig einnig á því að
halda hljóm sínum ferskum og
skiptir út samstarfsmönnum
reglulega. Hefur aldrei gert fleiri
en tvær plötur með sama fólkinu.
Þannig gerði popparinn Patrick
Leonard tvær plötur með henni á
níunda áratuginum, William Orbit
gerði með henni snilldarverkið
„Ray of Light“ árið 1998 og það
telst því til tíðinda að Mirwais sé
mættur aftur til leiks.
„Það eru ólíkir hlutir sem ýta
mér af stað í því að semja tónlist.
Kannski er ég í gítartíma og fæ
einhverja hugmynd. Eða Mirwais
sendir mér einhverja tónlist,
ókláraða og óútsetta, hljóma eða
lagahugmyndir. Nánast öll
„American Life“ varð til þannig.
Til þess að ég geti samið texta
verður tónlistin að hreyfa við
mér. Stundum sem ég heilan söng-
kafla upp úr þurru. Ég ferðast
með skrifblokk og skrifa niður
hugmyndir sem ég fæ eftir lestur
dagblaða eða bóka.“
Er ekki erfitt að finna sam-
starfsfólk sem ekki er skíthrætt
við þig?
“Ég spyr nú enga að því hvort
þeir séu hræddir við mig. Auðvit-
að tek ég samt eftir hvort fólki líð-
ur vel í kringum mig. Þá er hægt
að spjalla eðlilega og hlæja. Ég
hef samt aldrei tyllt mér niður
með einhverjum sem mig lang-
aði að vinna með og ekki samið
við hann. William Orbit var samt
mjög stressaður þegar hann hitti
mig fyrst, missti hluti út um allt
og svoleiðis. Mér fannst það bara
sætt.“
Madonna hefur lifað hátt í
rúm 20 ár. Hún hefur selt rúm-
lega 140 milljónir platna. Á
tveimur safnplötum hennar var
að finna 32 smelli og var þó
mörgum sleppt. Oddhvassi
brjóstahaldarinn hennar seldist á
rúmlega 1,8 milljónir króna. Á síð-
asta ári var gróði fyrirtækisins
sem hún hefur byggt í kringum
tónlistarsköpun sína rúmlega 4,6
milljarðar króna.
Veistu hvað þú átt mikla pen-
inga í bankanum?
“Ekki nákvæmlega. Næsta
spurning.“
Falskt aðdráttarafl glæsilífsins
Táningapopp er nú allsráð-
andi á bandarísku vinsældar-
listunum. Áhrif Madonnu í tón-
list annarra eru því meiri en
nokkru sinni fyrr. Pink, Christ-
ina Aguilera og Britney
Spears hafa án efa allar notað
hana sem fyrirmynd í því að
fóta sig á framabrautinni.
„Ég kom til sögunnar á allt
öðruvísi tímum,“ útskýrir
Madonna og blæs á samlíking-
una við yngri poppstúlkur.
„Áður en stórfyrirtækin byrj-
uðu að efna til hæfileikakeppni í
fjölmiðlum, í leit að stelpu sem
hefur rétt útlit og heldur lagi.
Svo velta þeir sér upp úr því
seinna hvernig þeir eigi að
markaðssetja hana. Ég er ekki
að segja að þessar stelpur geti
ekki vaxið í eitthvað mikil-
fengara seinna, en ég skil
ekki hvert þessi heimur er
að fara. Allt er orðið svo nið-
urnjörvað.“
Af textum á nýju plöt-
unni að dæma mætti halda
að Madonnu fyndist hún
vera á skjön við frægð
sína. Á titillagi plötunnar,
þar sem Madonna rappar í
lokin, telur hún til dæmis
upp fólk á launaskrá sinni.
Lögfræðinga, aðstoðar-
menn, umboðsmann, bíl-
stjóra, flugmann, kokk,
þrjár barnapíur, fimm líf-
verði, einkaþjálfara, stílista og
garðyrkjumann. Að upptalningu
lokinni segir hún að öll þessi fríð-
indi geti ómögulega fært sér lífs-
hamingju.
Er þetta ekki bara hið týpíska
væl stórstjörnunnar?
“Ég veit að það hljómar eins og
klisja en ég hef verið fræg og rík
í 20 ár. Ég held að ég megi nú
ákveða sjálf hvað frægð og auð-
æfi eru. Allir eru svo uppteknir af
því að verða frægir. Frægð er
bara bull, og hver ætti að vita það
betur en ég? Áður en fólk verður
frægt fyllist það af hugmyndum
um hversu mikla gleði hún færir
því og hversu yndislegt allt verði.
Síðan gerist það... Í Ameríku,
meira en annars staðar, fær fólk
frelsi til þess að verða það sem
það langar til. Sem er mjög gott,
en slíku verður þá að fylgja gott
gildismat sem mér finnst við ekki
hafa lengur. Það eina sem gildir
núna er að gera hvað sem þarf til
þess að komast alla leið á toppinn.
Þetta er falskt aðdráttarafl af
glæsilega lífinu... „Tileinkaðu þér
þetta útlit ef þú vilt vellíðan.
Keyrðu á svona bíl ef þú vilt
verða vinsæll. Klæðstu svona föt-
um og þá mun fólk vilja ríða
þér.“... Þetta er mjög sterk tálsýn
sem fólk fellur fyrir. Ég gerði það
líka en ekki lengur.“
Madonna og leiklistin
Madonna heldur áfram að leika
þrátt fyrir hvern sleggjudóminn á
fætur öðrum. Myndin „Swept
Away“, sem var endurgerð ít-
alskrar myndar frá 1974, fékk
hræðilega dóma og Madonna var
sérstaklega jörðuð fyrir frammi-
stöðu sína. Myndin floppaði í
Bandaríkjunum og fer beint á
myndband í Evrópu.
„Það sem gagnrýnendur refsa
mér mest fyrir núna er það sem
ég geri með eiginmanni mínum,
Guy. Allir í Bretlandi eru búnir að
afskrifa myndina án þess að hafa
séð hana, er það ekki frábært!
Finnst þér það ekkert fáránlegt?
Ég held að gagnrýnendur hefðu
beint spjótum sínum að Guy hvort
eð er, jafnvel þó að hann hefði
ekki komið nálægt mér. Honum
gekk svo vel með fyrstu tvær
myndir sínar. Þannig virka fjöl-
miðlar, á endanum verða þeir að
fella þig.“
Af hverju heldur þú þá áfram
að leika?
“Af því að ég hef gaman af því,
þetta er skemmtilegt. Mér er al-
veg skítsama hvað fólki finnst um
leik minn eða tónlistina mína.“
Það er nú nokkuð augljóst að
það er ekki satt!
“En maður má ekki láta það
stjórna ákvörðunum sínum. Mað-
ur verður að lesa hluti með aðgát,
það er ekkert eins og það virðist
vera.“
Eftir að Madonna fluttist til
London leið ekki sá dagur sem
ekkert var skrifað um hana eða
eiginmann hennar í bresku slúð-
urblöðunum. Hún átti að hafa lent
í vandræðum hér og þar, hjóna-
bandið átti að vera í molum, hún
átti að vera ófrísk af þriðja barni
sínu og sitthvað fleira. Eftir að
hún fluttist þaðan breyttust sög-
urnar í það að hún hefði fengið
nóg af Bretlandi vegna mikils
raka í loftslaginu og hversu illa
húsin eru byggð.
„Kaldhæðnin á bak við allar
þessar greinar er að alveg frá því
að við fluttumst hingað til Kali-
22 17. apríl 2003 FIMMTUDAGUR
HELSTU
PLÖTUR MADONNU:
1983 Madonna
1984 Like a Virgin
1986 True Blue
1989 Like a Prayer
1992 Erotica
1994 Bedtime Stories
1998 Ray of Light
2000 Music
Strax eftir páska gefur Madonna út breiðskífuna „American Life“. Í eina viðtalinu sem Madonna veitti evrópskum
miðli talar hún um poppsöngkonur í dag, tálsýn frægðarinnar, floppmyndina „Swept Away“, Bandarík-
in, fjölskyldu sína, nýfundna hamingju og nýju plötuna auk þess að sjálfa ráða lífsgátuna.
■ TÓNLIST
MADONNA
Madonna er án
efa frægasta kona
heims. Hún lendir nánast
aldrei í því að fólk þekki hana
ekki þegar það hittir hana.
„Frægðin er bull“