Fréttablaðið - 17.04.2003, Page 26

Fréttablaðið - 17.04.2003, Page 26
26 17. apríl 2003 FIMMTUDAGUR Veturinn hefur nú varla komiðhingað til okkar svo sumarið er löngu komið,“ segir Eva G. Þor- valdsdóttir, forstöðumaður Grasa- garðs Reykjavíkur. „Að vísu get- um við alltaf átt von á hreti, ég útiloka ekki neitt. Við verðum því að vera róleg og hegðum okkur ekki eins og það sé komið sumar. Tökum ekki af gróðrinum því þótt margt sé farið af stað er þetta mjög viðkvæmur tími.“ Eva segir að gróðurinn sé ein- um mánuði á undan í Grasagarð- inum. Hún nefnir sem dæmi lyngrósir sem eru byrjaðar að blómgast en venjulega blómgast þær í kringum 20. maí. Lyngrósir eru sígrænar plöntur með stórum, fallegum, klukkulaga blómum. Þær eru bleikar og áberandi. Eva segir að fleiri tegundir séu komnar í blóma. Nefnir hún sem dæmi snotrur, páskaliljur, febrú- arliljur, skógarbláma og lykla. Hún segir að ef ekkert komi upp á séu tegundir sem blómgist snem- ma ekki í hættu. En ef kuldakast geri er erfitt að segja til um hvað gerist. Grasagarðurinn er opinn allt árið. Á veturna frá tíu til sautján en sumrin til tíu á kvöldin. Að- gangseyrir er enginn. Café Flóra, kaffihúsið í Grasagarðinum, setur sterkan svip á garðinn þegar það opnar um miðjan maí. Starfsmenn garðsins hafa fundið fyrir aukinni aðsókn síð- ustu ár. Gestir hafa sótt ókeypis leiðsögn og fræðslu í garðinum og segir Eva Íslendinga mjög áhugasama um plöntur og gróð- ur. „Það er mikið ræktunareðli í Íslendingum enda komnir af bændum. Það sem einkennir áhuga þeirra er hvernig megi nýta gróðurinn. Margir koma hingað og leita ráða og eru að at- huga hvaða plöntur þeir vilja hafa í garðinum hjá sér. Þá kom- ast þeir hins vegar að því að að- eins lítill hluti af plöntunum sem eru hér er til sölu því við erum með mörg þúsund tegund- ir og afbrigði,“ segir Eva. Aðspurð hvenær henni finn- ist sumarið vera komið segir Eva: „Mér finnst sumarið vera komið þegar birkið er útsprung- ið. Það stafar af því að íslensk náttúra er lengur að taka við sér en þessar plöntur sem við erum með í görðunum okkar og eru frá suðlægari löndum. Birkið fer hins vegar ekki að laufgast fyrr en um miðjan maí.“ ■ Ísbúðin í Álfheimum: Salan tekur kipp Hermann Ástvaldsson, eigandiÍsbúðarinnar í Álfheimum, hefur vel orðið var við að sumarið er að koma. „Það er búið að vera nokkuð gott að gera síðustu vikur. Þetta byrjaði hægt en frá síðustu mán- aðamótum hefur þetta verið að aukast,“ segir Hermann. „Ég tala nú ekki um þegar sólin fer að hækka á lofti og fólk er meira á ferðinni á kvöldin. Þá lengist tím- inn sem maður er í bisness.“ Um helgar er fjölskyldufólk helstu kúnnar Hermanns en á kvöldin er það unga fólkið. „Þó er þetta í bland. Þetta er alla vega fólk héðan og þaðan. Það er ótrú- legt hvaðan það er að koma,“ seg- ir íssalinn. Hermann hefur opið allan árs- ins hring. Hann telur að íssalan tvöfaldist miðað við vetrartím- ann. En hvað selur hann mörg tonn af ís á ári? „Það er atvinnu- leyndarmál,“ segir Hermann ís- sali. ■ Golfvöllurinn á Korpúlfsstöðumopnaði laugardaginn fyrir viku, tveimur vikum fyrr en venjulega. „Við höfum alltaf náð að opna í apríl en yfirleitt er það í lok mánað- arins,“ segir Ágúst Jensson, vallar- stjóri á Korpúlfsstöðum. Ágúst seg- ir völlinn koma mjög vel undan vetri. „Vindkælingin reynist vellin- um hér yfirleitt verst en hann hefur sloppið mjög vel í ár,“ segir Ágúst. Opnunardaginn var völlurinn fullbókaður frá klukkan níu að morgni og fram á kvöld. Fólk lék golf til klukkan níu um kvöldið eða þangað til að dimma fór. Um tvö þúsund manns eru skráðir í Golf- klúbb Reykjavíkur. Ágúst segir að klúbburinn sé enn opinn áhugasöm- um en það geti oft reynst þrautin þyngri að komast að á ákveðnum tímum. „Ef veðrið er gott fyllist völlur- inn og það myndast biðraðir á fyrsta og tíunda teig. Það vilja allir komast út,“ segir Ágúst Jensson, vallarstjóri. ■ HERMANN ÁSTVALDSSON Íssalinn í Álfheimum hefur nú nóg að gera þegar sólin er farin að hækka á lofti. Í GÓÐU STANDI Ágúst Jensson, vallarstjóri á Korpúlfsstöð- um, býst við góðu sumri. Opnunarmótið á Korpúlfsstöðum verður innanfélagsmót 26. apríl en fyrsta stórmót, stigamót í Toyota- mótaröðinni, verður tæpum mánuði síðar. Fjöldinn allur af blómum byrjaður að blómgast í Grasagarðinum í Reykjavík: Margar tegundir komnar í blóma Menn muna vart annan eins vetur og sjaldan hafa jafn fáir snjódagar verið. Sumir vilja meina að veturinn hafi aldrei komið. Fréttablaðið leitaði til nokkurra einstaklinga sem tengjast sumrinu á einn eða annan hátt. Flest voru á því að komandi sumar ætti eftir að verða gott og að það væri í raun þegar komið með hækkandi sól og hlýnandi veðri. Er sumarið komið? Korpúlfsstaðavöllur: Golfvorið snemma á ferð FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.