Fréttablaðið - 17.04.2003, Side 38
17. apríl 2003 FIMMTUDAGUR
Það er heldur farið að halla und-an fæti hjá vini mínum Tóný
Sópranó. Efnahagsstjórn Bush er
að gera honum lífið leitt og hjóna-
bandið hangir á bláþræði. Þætt-
irnir eru þó enn frábærir. Banda-
ríkjamenn voru eitthvað að tuða
yfir því að þættirnir væru farnir
að slappast þegar þessi árgangur
var frumsýndur ytra. Ég fæ þó
ekki betur séð en að vandinn liggi
hjá þeim sjálfum fremur en hand-
ritshöfundunum, sem hafa sýnt
snilldartakta í persónusköpun.
Þessi þáttaröð er þó vissulega
frábrugðin því sem á undan er
komið og þar liggur snilldin. Þætt-
irnir þróast og persónurnar, sem
flestar eru byggðar á erkitýpum,
koma stöðugt á óvart. Hverjum
hefði til dæmis dottið í hug að
hinn miskunnarlausi handrukkari
Furio væri rómantískur sveim-
hugi og að skepnan Ralphie væri
pervert með mömmukomplexa?
Þetta er eitursnjallt en hefur að
vísu haft þau áhrif að það eru
miklu færri drepnir í þessum
þáttum en áður. Ætli það sé ekki
þessi skortur á ofbeldi sem
pirraði Kanann?
Þó það sé vissulega nauðsyn-
legt að koma mönnum í hel af og
til í svona glæpaþáttum þá er það
svo magnað við The Sopranos að
maður saknar drápanna ekkert
sérstaklega. Mannlega dramað
rígheldur. Við erum búin að skoða
samband Tónýs við móður sína og
börnin og erum komin á kaf í
hjónabandið. Hljómar ekki spenn-
andi, en er það nú samt.
Við tækið
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON
■ heldur tryggð við Tóný Sópranó
og hafnar því alfarið að þættirnir séu
á niðurleið.
20.00 Kvöldljós með Ragnari
Gunnarssyni
21.00 Freddie Filmore
21.30 Joyce Meyer
22.00 700 klúbburinn
Á Breiðbandinu má finna 28
erlendar sjónvarpsstöðvar sem
seldar eru í áskrift og þar af eru
6 Norðurlandastöðvar. Að auki
sendir Breiðbandið út flestar ís-
lensku útvarpsrásirnar ásamt 10
erlendum tónlistarrásum með
mismunandi tónlistarstefnum.
16.00 NBA (Philadelphia - Was-
hington)
18.30 Western World Soccer
Show (Heimsfótbolti West World)
19.00 Pacific Blue (33:35)
20.00 Kraftasport (Bikarmót
Galaxy Fitness) Fylgst er með
keppni í kvennaflokki.
20.30 US PGA Tour 2003
(Bellsouth Classic)
21.30 US PGA Tour 2003 (Golf-
mót í Bandaríkjunum)
22.00 Football Week UK (Vikan í
enska boltanum)
22.30 Swann Ljóðskáldið Mary
Swann var myrt á hrottalegan hátt.
Málið vekur mikla athygli en Mary
var um margt einstök kona. Met-
söluhöfundurinn Sarah Maloney
ætlar að gera sér mat úr morðinu
og hefur efnisöflun. Hún ræðir m.a.
við undarlega sveitakonu, Rose
Hindmarch, sem síðust sá ljóð-
skáldið á lífi. Aðalhlutverk: Miranda
Richardson, Brenda Fricker, David
Cronenberg. Leikstjóri: Anna Ben-
son Gyles. 1996.
0.05 HM 2002 (Túnis - Belgía)
1.50 Dagskrárlok og skjáleikur
9.00 Morgunstundin okkar
9.01 Bláklukkukanínurnar (1:4)
9.27 Ballerína (Ballerina)
9.38 Fagriskógur (8:10)
9.45 Franklín og græni riddarinn
10.58 Bangsímon
11.20 Elskarðu mig, mamma?
11.50 Ég minnkaði börnin, elskan
13.20 Landsmót á skíðum
14.30 Faust (1:2)
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Stundin okkar
18.25 Snjókross (8:10)
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Ísland í öðru ljósi
20.25 Sívagó læknir (1:2) (Doctor
Zhivago) Meðal leikenda eru Hans
Matheson, Keira Knightley, Sam
Neill, Alexandra Maria Lara, Kris
Marshall, Daniele Liotti, Bill Pater-
son, Celia Imrie, Anne-Marie Duff,
Hugh Bonneville og Maryam d’Abo.
22.20 Afar þögul mynd (A Very
Very Silent Film) Indversk stuttmynd
um aðstæður fátækra kvenna.
22.30 Notting Hill. Aðalhlutverk:
Julia Roberts, Hugh Grant, Rhys
Ifans og Richard McCabe.
0.35 Fjölskyldumaðurinn. Aðal-
hlutverk: Nicolas Cage og Téa
Leoni. e.
2.35 Dagskrárlok
8.00 Ali Baba
9.15 Biblíusögur
10.00 Með Afa
10.55 102 Dalmatians
12.30 Digging to China (Alla leið
til Kína) Aðalhlutverk: Kevin Bacon
og Mary Stuart Masterson.Leikstjóri:
Timothy Hutton.1997.
14.05 Brink! (Hjólaskautagengið)
Aðalhlutverk: Erik von Detten, Sam
Horrigan og Christina Vidal. 1998.
15.35 Star Wars Episode IV: A
New Hope (Stjörnustríð 4) Aðalhlut-
verk: Mark Hamill, Harrison Ford,
Carrie Fisher, Peter Cushing og Alec
Guinnes. 1977.
17.35 Universe (1:4) (Alheimurinn)
(Big Bang) Breskur myndaflokkur
sem hefur vakið mikla athygli.
18.30 Fréttir Stöðvar 2
19.00 Ruby Wax’s Commercial
Breakdown (1:8) (e)
19.30 Tonga Frábær ferðaþáttur
um mannlíf hinum megin á hnettin-
um.
20.15 Jag (16:24)
21.05 Elton John at the Royal
Opera House
22.10 Captain Corelli’s Mandolin
Aðalhlutverk: Penélope Cruz, John
Hurt, Christian Bale og Irene Papas.
2001. Bönnuð börnum.
0.20 Foyle’s War Aðalhlutverk:
Michael Kitchen, Edward Fox og Ro-
bert Hardy. Leikstjóri: Jeremy Sil-
bertson.2002.
2.00 Jakob, the Liar (Blekkinga-
leikur Jakobs).Aðalhlutverk: Robin
Williams, Alan Arkin, Bob Balaban,
Hannah Taylor Gordon og Michael
Jeter.Leikstjóri: Peter Kassovitz.1999.
Bönnuð börnum.
3.55 Tónlistarmyndbönd frá
Popp TíVí
6.30 Litla risaeðlan 6
10.00 Pushing Tin (Flugdólgar)
12.00 The Animal (Dýri)
14.00 Litla risaeðlan 6
16.00 Ping
18.00 Pushing Tin (Flugdólgar)
20.00 The Animal (Dýri)
22.00 Misery (Eymd)
0.00 Bless the Child (Blessað
barnið)
2.00 Quills (Fjaðurstafir)
4.00 Misery (Eymd)
7.00 70 mínútur
16.00 Pikk TV
20.00 Pepsí listinn
22.03 70 mínútur
23.10 Trailer
23.40 Meiri músík
17.45 Brúðkaupsþátturinn Já (e)
18.30 Fólk - með Sirrý (e)
19.30 Grounded for life (e)
20.00 Malcolm in the middle Hin-
ir feiknavinsælu þættir um
Malcolm í miðið hafa svo sannar-
lega slegið í gegn á Íslandi en þeir
snúast um prakkarastik Malcolm
og bræðra hans og undarleg uppá-
tæki föður hans og móður.
20.30 Life with Bonnie
21.00 The King of Queens Arthur
kveikti í húsinu sínu og situr nú
uppi á Carrie dóttur sinni og Doug
eiginmanni hennar. Hann er þeim
óþægur ljár í þúfu, alltaf á kvenna-
fari og að skemmta sér. En verst er
að hann sefur í sjónvarpsherberg-
inu hans Doug. Carrie er kvonfang
af bestu sort og vinnur á lög-
mannastofu en Doug keyrir sendi-
bíl með aðra hönd á stýri og ávallt
í stuttbuxum.
21.30 Everybody Loves Raymond
22.00 Bachelorette
22.50 Jay Leno
23.40 Law & Order (e)
0.30 Dagskrárlok Sjá nánar á
www.s1.is
Stöð 2
22.10
Skjár 1
21.00
Doug og Carrie halda góða þakk-
argjörðarhátíð og rifja upp fyrstu
þakkargjörðahátíðina sína sam-
an. Þau greinir á um hvort þeirra
sagði „ég elska þig“ á undan.
Þau spyrja Arthur sem þau
hefðu betur látið ógert því hann
rifjar upp ýmsar þakkargjörðar-
hátíðir þar á meðal þá er hann
var kynntur fyrir Doug.
Sópranós enn og aftur
King of Queens
Mandólín Corellis kapteins, eða
Captain Corelliís Mandolin, er
dramatísk ástarsaga með Pené-
lope Cruz, John Hurt, Christian
Bale og Irene Papas í aðal-
hluverkum. Pelagia er ung grísk
kona sem horfir á unnusta sinn
hverfa til átaka í síðari heims-
styrjöldinni. Ítalir hertaka litla
þorpið hennar og Pelagia verður
fljótt náinn vinur yfirmanns í
setuliðinu. Vinskapurinn hefur
ýmis vandkvæði í för sér og
samband þeirra virðist ekki eiga
neina framtíð. Leikstjóri er John
Madden. Myndin, sem er frá ár-
inu 2000, er bönnuð börnum.
38
Ástarsaga með
Penélope Cruz
Við gerum betur
Njóttu
þess
að
ferða
st um
landi
ð
á góð
um bí
l
Avis dagsleiga, helgarleiga, vikuleiga. Eyddu minna í bílinn en meira í sjálfan þig og þína.
Kynntu þér tilboð Avis á bílaleigubílum.
Hringdu í Avis sími 5914000
Knarrarvogur 2 – 104 Reykjavík – www.avis.is
* Opel Corsa, innifalið 50 km, vsk. og trygging
Aðeins2.850á dag
*
FÓLK Dagblaðið Daily Mail hefur
beðið milljarðamæringinn Steve
Bing og lögfræðing hans afsökun-
ar á því að hafa sagt að þeir hefðu
vísvitandi reynt að eyðileggja
orðspor Liz Hurley. Afsökunar-
beiðnin kom síðast liðinn þriðju-
dag en Bing og félagar kærðu
blaðið fyrir meiðyrði.
Í desember birtist grein í Daily
Mail þar sem sagt var að Bing og
lögfræðingur hans, Martin Singer,
hefðu vísvitandi reynt að niður-
lægja leikkonuna eftir að Bing
hún og skildu. Félagarnir brugð-
ust ókvæða við og eftir að hafa
farið með málið fyrir rétt féllust
útgefendur blaðsins á að greiða
háa summu til góðgerðamála.
„Útgefendur hafa fallist á að
hafa farið með rangt mál og þeir
biðjast innilegrar afsökunar á
þessu vandræðalega og óþægi-
lega máli sem þeir hafa ollið Bing
og Singer,“ sagði Rebecca
Jackson, lögfræðiráðunautur. ■
Daily Mail:
Biður
Bing af-
sökunar
LIZ HURLEY
Daily Mail bað fyrrverandi eiginmann
hennar afsökunar á því að hafa birt grein
þess efnis að hann hafi ætlað að eyði-
leggja mannorð hennar.
Samstarfssjóður
Nuuk-Reykjavíkur-Þórshafnar
auglýsir eftir styrkumsóknum
Reykjavíkurborg er aðili að sjóði höfuðborga Færeyja, Grænlands og Íslands.
Sjóðurinn hefur að markmiði að efla skilning og samstarf milli þessara borga,
íbúa þeirra, samtaka og stjórnmálamanna og veita fjárstyrki til verkefna sem
þjóna þessum markmiðum.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til verkefna sem tengjast
samskiptum milli bæjanna og efla tengsl þeirra með einhverjum hætti, t.d. á
sviði menningar, fræðslu eða íþrótta.
Í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum ítarlega, fyrirkomulagi þeirra,
tímasetningu og kostnaði.
Skriflegri umsókn skal beint til:
Samstarfssjóður Nuuk-Reykjavíkur-Þórshafnar
b.t. Gunnars Eydal, skrifstofustjóra borgarstjórnar
Ráðhúsi Reykjavíkur
101 Reykjavík
Umsóknir berist eigi síðar en 17. maí n.k. og koma umsóknir sem síðar
kunna að berast ekki til afgreiðslu. Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að
ræða. Æskilegt er að umsókn fylgi þýðing á dönsku.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu borgarstjórnar, Ráðhúsi Reykjavíkur,
s: (354) 563 2000. Stjórn sjóðsins mun afgreiða umsóknir í júní n.k.
Reykjavík, 15. apríl 2002
Borgarstjórinn í Reykjavík