Fréttablaðið - 17.04.2003, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
STEINUNNAR STEFÁNSDÓTTUR
Ég verð að viðurkenna að égsakna páskanna eins og þeir
voru áður, að minnsta kosti eins og
þeir voru í minningu minni. Langir,
hátíðlegir, hljóðlátir og hægir. Mér
finnst að tíminn frá skírdegi að öðr-
um í páskum hafi verið ógnarlangur
og ég hafi í æsku velt því fyrir mér
hvort það gæti staðist að föstudag-
urinn langi væri raunverulega
lengri en aðrir dagar ársins.
ÞAÐ eru ekki mörg ár síðan ekkert
var opið á föstudaginn langa, í
mesta lagi neyðarvakt í einu apó-
teki. Á þeim tíma var heldur ekki
nema ein útvarpsrás, gamla góða
gufan þar sem fluttar voru messur
og passíur allan daginn, að minnsta
kosti í minningunni. Mér þótti þetta
nú ekki sérstaklega skemmtilegt í
æsku en nú horfi ég til þessara tíma
með ákveðna glýju í augunum. Heill
dagur alveg án áreitis hávaða og
hraða. Hver myndi ekki þiggja einn
slíkan? Heill dagur til að íhuga og
vera með sínum nánustu án þess að
eiga einu sinni möguleika á að ger-
ast þiggjandi menningar eða
skemmtunar.
LÍKLEGA er það þó undir manni
sjálfum komið að búa sér til svona
dag. Hann þarf auðvitað ekki að
vera á föstudaginn langa þótt sá
dagur henti vissulega vel til íhugun-
ar. Auðvitað er hægt að stilla bara á
Rás 1 og láta eins og hinar rásirnar
og geislaspilarinn séu ekki til eða
sleppa því jafnvel alveg að hlusta á
útvarp og horfa á sjónvarp. Taka
daginn snemma, gera fátt og mjög
hægt. Hugsa þeim mun meira,
íhuga tilgang lífsins, sitt eigið líf og
sinna nánustu.
UM þessa páska ætti maður líka að
verja einhverjum tíma í að íhuga
hvernig maður vill verja atkvæði
sínu í kosningunum fram undan.
Hvað finnst okkur skipta máli þar
og hvernig stjórnvöld viljum við
næstu fjögur ár? Sömuleiðis liggur
beint við að íhuga hvort almenning-
ur í Írak sé „frelsinu“ feginn, til
dæmis litli handalausi og brenndi
drengurinn sem við höfum fengið
að fylgjast með í fjölmiðlum síðustu
daga. Fyrir honum og löndum hans
verður vonandi beðið í öllum kirkj-
um um páskana. ■
Tími til
íhugunar
s: 554-5022 Nýbílavegi 20 Kóp.
Veitingahús
Súpa og 4réttir kr. 1390 á mann