Fréttablaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 42
Leikhús 42
Myndlist 42
Bíó 44
Íþróttir 20
Sjónvarp 46
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
TÓNLIST
Villtir
drengir
VIÐTAL
Menning er
ekki lúxus
LAUGARDAGUR
10. maí 2003 – 106. tölublað – 3. árgangur
bls. 24 bls. 38
SAMKOMA Fjölskylduhátíð hefst í
Vetrargarðinum í Smáralind klukk-
an 14. Kynnir er Halldóra Geir-
harðsdóttir. Birgitta Haukdal og
Írafár flytja nokkur lög. Einnig
verður sýndur dans og fimleikar.
Fjölskylduhátíð
í Smáralind
KOSNINGAR Kosið verður til Alþingis
í dag. Kjörstaðir opna að öllu jöfnu
klukkan níu og kosningu lýkur
klukkan tíu í kvöld. Sex flokkar
bjóða fram í öllum kjördæmunum
sex, en sjö flokkar bjóða fram í
Suðurkjördæmi. Alls eru 211.289
kjósendur á kjörskrá, tæpum 5%
fleiri en fyrir fjórum árum.
Alþingiskosningar
FÓTBOLTI Breiðablik mætir Val í úr-
slitaleik deildabikarkeppni kvenna
í knattspyrnu klukkan 16.30. Leik-
urinn fer fram á Kópavogsvelli.
Úrslit í
deildabikarnum
SÝNING Fyrsta Vorhátíð Listaháskól-
ans hefst klukkan 14. Hátíðin hefst
með opnun útskriftarsýningar
myndlistar- og hönnunarnemenda í
Listasafni Reykjavíkur í Hafnar-
húsinu.
Vorhátíð
Listaháskólans
KOSNINGAR Íslendingar ganga til
kosninga í dag. Mikil spenna er í
loftinu þar sem skoðanakannanir
hafa ýmist sýnt að núverandi
stjórn sé fallin eða muni haldi
naumum meirihluta. Úrslitin ráð-
ast í nótt.
Kosningabaráttan hefur verið
löng og ströng fyrir frambjóðend-
ur flokkanna, en flestir eru sam-
mála um að hún hafi farið drengi-
lega fram. Árni M. Mathiesen,
sjávarútvegsráðherra og þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, segir
að baráttan hafi verið hörð.
„Það er mikil spenna, en við lif-
um það af,“ segir Árni. „Það hefur
verið fín stemning hjá okkur og
ekki neinir erfiðleikar eða hnökrar
á baráttunni.“
Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt-
ir, þingmaður Samfylkingarinnar,
segist vera sátt við kosningabar-
áttuna.
„Venjulega er það þannig að
spjótin beinast að stjórnarflokkun-
um,“ segir Ásta Ragnheiður. „Við
höfum í raun látið þá mikið til í
friði með ýmislegt, þannig að mér
finnst við hafa rekið mjög heiðar-
lega kosningabaráttu. Það hefur
líka verið mikil gleði í okkar hópi.“
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri grænna, segist
vera bærilega sáttur.
„Við höfum barist vel og heiðar-
lega á þeim forsendum sem við
völdum okkur, að leggja áherslu á
málefni,“ segir Steingrímur J. „Við
sögðum að okkar markmið væri að
fella ríkisstjórnina og mynda vel-
ferðarstjórn. Við sögðum að tækist
stjórnarandstöðunni að ná meiri-
hluta ætti hún að mynda ríkis-
stjórn. Það er í sjónmáli og ég vil
halda í þá von að svo geti orðið.“
Siv Friðleifsdóttir, umhverfis-
ráðherra og þingmaður Framsókn-
arflokksins, segir kosningabarátt-
una hafa verið skemmtilega.
„Það hefur verið mikil leikgleði
og kraftur í okkar hópi og mikið af
ungu og nýju fólki í framboði,“
segir Siv. „Við höfum tekið góðan
endasprett og erum enn að. Það er
gífurleg spenna í loftinu.“
Magnús Þór Hafsteinsson, vara-
formaður Frjálslynda flokksins,
segir kosningabaráttuna hafa ver-
ið ævintýri líkasta.
„Við virðumst vera að ná mark-
miði okkar og gott betur. Við erum
að tvöfalda og kannski þrefalda
fylgi okkar frá 1999,“ segir Magn-
ús Þór. „Við erum mjög þakklát
fyrir þann mikla stuðning sem við
virðumst vera að fá.“
Nánar bls. 2, 4 og 6.
FJÁRSÖFNUN „Við erum himinsælir
og þetta eykur á ánægjuna,“ segir
Sigurður Mar Halldórsson, formað-
ur Karlakórsins Jökuls á Höfn í
Hornafirði, sem heldur upp á 30
ára afmæli sitt með tónleikaferð til
Færeyja. Gleði kórfélaga stafar af
óvæntum fjárstuðningi, bæði frá
fjármálaráðherra og utanríkisráð-
herra, sem báðir reiddu fram 300
þúsund krónur án þess að eftir
þyrfti að ganga. Var sótt um styrk
til fararinnar til þessara aðila eins
og svo margra annarra en ekki bú-
ist við svo skjótum viðbrögðum eða
þvílíkum upphæðum. Rausnarlegir
styrkir ráðherranna gera kórnum
nú kleift að kaupa ný jakkaföt á alla
kórfélagana en þau eru rauð og sér-
saumuð.
Formaður kórsins telur ekki að
ráðherrastyrkirnir eigi eftir að
hafa áhrif á hvað kórfélagar kjósa í
væntanlegum alþingiskosningum:
„Þetta er sundurleitur hópur og ég
held að hver kórfélagi kjósi eftir
eigin sannfæringu,“ segir Sigurður
Mar.
Fjörutíu félagar eru í Karla-
kórnum Jökli og geta þeir nú allir
klæðst nýjum rauðum jakkafötum
þegar þeir koma til Færeyja 17.
maí næstkomandi: „Við fengum
einnig afmælisgjafir í formi fjár-
stuðnings frá sveitarfélaginu og
verkalýðsfélaginu hér á staðnum,“
segir formaður Jökuls. ■
Guðni Ágústsson
skipar 1. sæti á lista
Framsóknarflokksins í
Suðurkjördæmi
Kjósum flokk sem framkvæmir
STA Ð R EY N D UM
MEST
LESNA DAGBLAÐIÐ
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003
22,1%
52,3%
61,7%
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
D
V
KARLAKÓRINN JÖKULL
Mikil gleði vegna óvænts og rausnarlegs
stuðnings frá tveimur ráðherrum samtímis.
REYKJAVÍK Norðaustlæg átt
3-8 m/s og skúrir.
Hiti 5 til 10 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
+
+
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 8-13 Skúrir 8
Akureyri 5-10 Skýjað 10
Egilsstaðir 5-10 Skýjað 10
Vestmannaeyjar 3-8 Skúrir 7
➜
➜
➜
➜
+
+
Munið
Íslandsbylgjuna!
S A M F Y L K I N G A R F Ó L K :
Karlakórinn Jökull í afmælisferð til Færeyja:
Jakkaföt fyrir rausnarskap ráðherra
Tvísýnustu kosningar
í mjög langan tíma
Stjórnarsamstarfið hangir á bláþræði samkvæmt skoðanakönnunum. Mikil spenna er í loftinu.
Kjörstaðir opna klukkan níu. Alls eru 211.289 kjósendur á kjörskrá.
Kjörstaðir undirbúnir:
Í nógu að
snúast
KOSNINGAR „Það er mikið um snún-
inga,“ sagði Gunnar Eyjólfsson,
húsvörður í Lækjarskóla, sem
hafði umsjón með því í gær að
breyta kennslustofum skólans í
kjördeildir fyrir kosningarnar í
dag. „Það er búið að kjósa hérna í
mörg ár þannig að þetta liggur að
mestu klárt fyrir,“ bætti Gunnar
við. Hann hefur kynnst verkefn-
inu áður. Kosningarnar í dag eru
þær sjöttu sem hann hefur undir-
búið í skólanum.
Mikið verk var að vinna í skól-
um, íþróttahúsum og öðrum stöð-
um um allt land þar sem kosið
verður í dag. ■KOSNINGARNAR UNDIRBÚNAR
Það var nóg að gera í Lækjarskóla á fimmta tímanum í gær þegar skólastofum var breytt í kjördeildir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T