Fréttablaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 14
Viltu vakna með nýrri ríkis-stjórn? Viltu vakna við að
kona sé í fyrsta skipti orðin for-
sætisráðherra á Íslandi? Viltu
taka þátt í að innleiða nýja og
ferska stjórnarhætti? Viltu taka
þátt í að breyta? Þetta eru spurn-
ingarnar sem menn þurfa að gera
upp við sig, áður en þeir ganga að
kjörborðinu í dag. Þeir, sem svara
játandi, gera best í því að kjósa
Samfylkinguna.
Sérstaða Samfylkingarinnar
Samfylkingin hefur borið uppi
baráttuna fyrir breytingum og
andófið gegn ríkisstjórn Davíðs
Oddssonar. Hún er brjóstvörn
þeirra, sem vilja nýja ríkisstjórn.
Um það efast enginn lengur. Hún
hefur skapað skýran valkost við
Sjálfstæðisflokkinn. Í því felst
sérstaða hennar. Það var athyglis-
vert, að Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri grænna, sagði í
sjónvarpsþætti, að Vinstri grænir
ættu sér engan höfuðandstæðing.
Öðru vísi mér áður brá. Einu sinni
voru Vinstri grænir nefnilega
samstiga okkur í Samfylkingunni
um að forgangsverkið í íslenskum
stjórnmálum væri að koma Sjálf-
stæðisflokknum út úr Stjórnar-
ráðinu.
Það hefur verið stefna okkar í
Samfylkingunni að beita öllum
kröftum okkar gegn stjórnar-
flokkunum. Við höfum haft það
sem algert forgangsverkefni að
koma nýrri ríkisstjórn til valda.
Það hefur hins vegar vakið at-
hygli mína, að það er engu líkara
en Vinstri grænir telji mikilvæg-
ara að berjast gegn Samfylking-
unni en ríkisstjórninni. Ögmund-
ur Jónasson var á baráttufundi í
Óperunni í fyrrakvöld og eyddi
púðri sínu ekki á Sjálfstæðis-
flokkinn, heldur Samfylkinguna.
„Hver treystir Samfylkingunni?“
var yfirskrift fréttar frá fundin-
um. Svona talar formaður BSRB
tveimur dögum fyrir kosningar.
Ég hélt í barnaskap mínum að það
væri sameiginlegt verkefni okkar
Ögmundar að fella ríkisstjórnina,
en ekki snúa spjótum hvor gegn
öðrum.
Þetta undirstrikar sérstöðu
Samfylkingarinnar. Við erum
nógu stöðug og öflug til að eyða
ekki púðri á félaga okkar í stjórn-
arandstöðunni. Stefnan okkar er
kristaltær: Samfylkingin efast
ekkert um það að höfuðandstæð-
ingurinn er ríkisstjórn Davíðs
Oddssonar. Við ætlum að breyta
til. Þess vegna verða allir, sem
vilja nýja ríkisstjórn, að styðja
Samfylkinguna. Það borgar sig
ekki að kjósa þá sem eyða púðrinu
í árásir á aðra andstæðinga
stjórnarinnar.
Skemmtileg kosningabar-
átta
Kosningabaráttan hefur verið
einmuna spennandi og skemmti-
leg. Á hana hefur varla fallið
dökkur skuggi, ef frá eru taldar
ómálefnalegar tilraunir LÍÚ til að
sverta Samfylkinguna. Kvóta-
kóngar á hennar vegum um allt
land gerðu einarða tilraun til að
blekkja þjóðina með kolröngum
útreikningum til að trúa því að
Samfylkingin ætlaði að setja öll
fyrirtæki í sjávarútvegi á haus-
inn. Enginn þarf heldur að efast
um að stórútgerðin hefur styrkt
hressilega þá flokka, sem hafa
haldið fastast í óbreytt kvóta-
kerfi.
Hatrammar árásir á stefnu
Samfylkingarinnar í fiskveiðimál-
um hafa staðfest svo ekki verður
um villst að við erum eini flokkur-
inn, sem stórútgerðinni stafar ógn
af. Ástæðan er einföld. Stefna
okkar gengur út á aukið réttlæti.
Hún er skýr og einföld. Fólkið
styður hana. Það veit, að Samfylk-
ingin er eini flokkurinn sem er
gegnheill í því að innkalla veiði-
heimildir og úthluta þeim upp á
nýtt með réttlátum og sanngjörn-
um hætti.
Ingibjörg og Vigdís
Í dag stöndum við frammi fyr-
ir einstæðu sögulegu tækifæri.
Við getum breytt Íslandssögunni
með atkvæði okkar. Í hundrað ár
hefur óslitin röð karla streymt inn
í Stjórnarráðið í stól forsætisráð-
herra. Við eigum í dag einstakt
tækifæri til að gera dugmikla og
farsæla konu að forsætisráðherra
í fyrsta sinn í sögu Íslendinga.
Ingibjörg Sólrún hefur sýnt það,
að hún er vandanum vaxin, og
eflist við hverja raun.
Verði Ingibjörg Sólrún forsæt-
isráðherra verða þessar kosning-
ar ógleymanlegar öllum. Fyrst og
fremst okkur sem greiddum
henni atkvæði okkar. Þetta rifjar
upp sögulegt forsetakjör Vigdísar.
Ég gleymi aldrei, þegar ég fór í
lest hundruð mílna sem námsmað-
ur erlendis til að kjósa Vigdísi.
Kjör hennar var ævintýri, og mér
fannst ég eiga sterka hlutdeild í
því.
Í dag getur þú, kæri lesandi,
eignast þína hlutdeild í öðru sögu-
legu ævintýri. Gríptu tækifærið.
Það gefst bara í dag. ■
14 10. maí 2003 LAUGARDAGUR
Ávörp
foringjanna
Ágætu kjósendur. Í dag göng-um við Íslendingar að kjör-
borðinu og veljum hvaða flokkur
það er sem við viljum að hafi for-
ystu í málefnum þjóðarinnar á
næsta kjörtímabili. Atkvæði allra
skipta máli. Það skiptir máli að
sem flestir nýti sinn lýðræðis-
lega rétt og greiði atkvæði í dag.
Góðar undirtektir og velvilji
Við lok þessarar kosningabar-
áttu er mér efst í huga þakklæti
til þess fjölda fólks sem ég hef
kynnst og átt ánægjuleg sam-
skipti við undanfarnar vikur. Ég
hef hitt mikinn fjölda fólks að
máli víða um land, hlustað eftir
sjónarmiðum kjósenda og kynnt
mín stefnumál og okkar fram-
sóknarmanna. Ég hef, eins og aðr-
ir frambjóðendur Framsóknar-
flokksins, hvarvetna fengið góðar
undirtektir og mætt velvilja al-
mennings.
Um leið og ég þakka ánægjuleg
kynni fyrir hönd okkar allra, fram-
bjóðenda og starfsmanna Fram-
sóknarflokksins, vil ég nota þetta
tækifæri til þess að árétta hvað
það er sem mér er efst í huga við
lok kosningabaráttunnar – hvað
það er sem ég tel að kosningarnar
snúist um í raun og veru:
Kosningarnar snúast
um framtíðina
Okkur Íslendingum hefur geng-
ið vel undanfarin ár og útlitið er
bjart. Ég vil að allir landsmenn
njóti ávaxtanna af því sem byggt
hefur verið upp. Horfurnar eru
góðar en við megum ekki tefla stöð-
ugleikanum í tvísýnu. Þess vegna
skipta kosningarnar í dag miklu
máli – þær snúast um framtíðina.
Sammála um
grundarvallaratriðin
Ef þið - eins og ég - viljið að við
höldum áfram að bæta kjörin, og
styrkja velferðarkerfið, þá erum
við sammála um grundvallarat-
riðin.
Kosningarnar snúast um stöð-
ugleika í efnahagslífinu og vel-
ferð fólksins í landinu. Ég bið um
ykkar stuðning. Hann skiptir
miklu máli. ■
Atkvæði allra
kjósenda skipta máli
Ávarp
foringjanna
HALLDÓR
ÁSGRÍMSSON
■ formaður
Framsóknarflokksins.
Ávarp
foringjanna
ÖSSUR SKARP-
HÉÐINSSON
■ formaður
Samfylkingarinnar.
Ágæti lesandi. Ég vil hvetja þigtil að nýta atkvæðisrétt þinn í
dag. Í dag höfum við tækifæri til
að tryggja stöðugleika og velmeg-
un á Íslandi. Við skulum grípa það
tækifæri.
Lífskjör okkar Íslendinga hafa
batnað meira en þeirra þjóða sem
við berum okkur helst saman við.
Í níu ár samfleytt hefur kaup-
máttur launa vaxið og erum við
Íslendingar nú í hópi þeirra ríkja
sem lengst hafa náð í þessum efn-
um. Mest hefur þó vaxið kaup-
máttur lægstu launa og er það ein-
stakur árangur sem við getum öll
verið stolt af.
En kosningarnar í dag snúast
einungis að hluta til um það sem
gert hefur verið. Kosningarnar
snúast fyrst og fremst um hvað
við ætlum að gera á næsta kjör-
tímabili. Þegar við vegum og
metum þau loforð sem stjórn-
málaflokkarnir gefa þá skulum
við horfa til þess hvernig þeir
hafa staðið við orð sín. Kjörseð-
illinn er ekki þakkarbréf kjós-
enda heldur er hann samningur á
milli þín og stjórnmálamannanna
um framtíðina. Og það skiptir
öllu máli þegar við gerum samn-
ing að hægt sé að treysta því að
sá samningur haldi.
Tækifærin eru framundan
Stjórnmál snúast um lífsskoð-
un. Ég hef á stjórnmálaferli mín-
um barist fyrir því að draga úr
áhrifum og völdum stjórnmála-
manna til þess að hvert og eitt
okkar fái sem mestu ráðið um
eigin framtíð. Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur ætíð verið málsvari
þeirrar hugsjónar að okkur sjálf-
um sé best treystandi til að skipa
okkar eigin málum á farsælan og
gifturíkan hátt. Þess vegna vill
Sjálfstæðisflokkurinn lækka
skatta á almenning á næsta kjör-
tímabili þannig að um munar.
Stjórnmálamenn eiga að sýna
í verki að þeir treysta fólki og þá
farnast þjóðinni best. Fram-
kvæmdagleði einstaklinganna og
þörf okkar til að finna kröftum
okkar verðugt viðnám er upp-
spretta allra efnahagslegra
framfara. Þess vegna er það höf-
uðskylda stjórnvalda að tryggja
að það sé næg vinna fyrir alla þá
sem hana geta stundað.
Öflugt atvinnulíf er forsenda
þess að okkur hefur tekist að
byggja upp heilbrigðis- og vel-
ferðarkerfi sem eru í fremstu
röð í heiminum. Til að geta hald-
ið áfram á þessari braut er nauð-
synlegt að tryggja undirstöður
efnahagslífsins því þannig og
einungs þannig er hægt að veita
þá þjónustu sem við öll viljum að
sé til staðar í okkar samfélagi.
Framundan eru mikil tæki-
færi og á næstu árum eigum við
Íslendingar mikla möguleika ef
rétt er á málum haldið. Ísland er
nú í sjöunda sæti þeirra landa
heims sem Sameinuðu þjóðirnar
telja hvað eftirsóknarverðast að
búa í. Ef við nýtum tækifærin
sem við okkur blasa er ekkert
sem kemur í veg fyrir að við
færumst ofar á þeim lista. Metn-
aður okkar allra á að standa til
þess að Ísland verði áfram í
fremstu röð þjóða.
Í dag skulum við vera bjart-
sýn – við eigum tækifærin og
framtíðin er björt. Það er undir
okkur sjálfum komið að nýta
þau. ■
Tækifæri til að
tryggja stöðugleika
Viltu vakna með nýrri ríkisstjórn?
Ávarp
foringjanna
DAVÍÐ
ODDSSON
■ formaður
Sjálfstæðisflokksins.