Fréttablaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 16
16 10. maí 2003 LAUGARDAGUR Ávörp foringjanna Í dag gengur þjóðin að kjörborðiog vonandi verða sem flestir til þess að nýta atkvæðisrétt sinn. Að baki er löng og á köflum ströng bar- átta sem hefur engu að síður verið skemmtileg og gefandi á margan hátt. Við í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði settum okkur það markmið að halda fast við okkar stefnu í aðdraganda kosninganna og elta ekki aðra flokka í loforðakapp- hlaupum. Því markmiði höfum við náð og það er mér út af fyrir sig ánægjuefni. Við höfum haldið áfram að kynna og tala fyrir okkar áherslum á öllum sviðum – velferðarmálum, alþjóðamálum, umhverfis- og nátt- úruverndarmálum, jafnréttismál- um, sjávarútvegsmálum, húsnæðis- málum og svo framvegis. Það er skylda hvers stjórnmálaflokks sem vill láta taka mark á sér að kynna kjósendum stefnu sína og tala einni röddu - í öllum kjördæmum. Alltaf má spyrja sig hvort nóg sé að gert og skilaboðin hafi komist nægilega vel á framfæri. Úr því verður líklega aldrei skorið en svo mikið er víst að enginn getur keypt sig frá þeim efasemdum með aug- lýsingaflóði. Hlutverki okkar fram- bjóðendanna í kynningarstarfinu er lokið í bili. Framhaldið er í höndum kjósenda. Skemmtileg barátta Nú þegar kosningabaráttan er á enda vil ég færa öllum sem lagt hafa hönd á plóg í þágu framboðsins og okkar málstaðar þakkir fyrir ein- arða baráttu. Það hefur verið í senn krefjandi og gjöfult að taka þátt í baráttunni og eiga þess kost að fylgjast með starfinu um allt land. Við engan vildi ég skipta nema sjálf- an mig hvað þetta hlutskipti varðar. Barátta Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur verið upp- byggileg og málefnaleg og ein- kennst af lífsgleði og kæti. Það hafa verið forréttindi að taka þátt í þess- ari kosningabaráttu um allt land. Sérstakar þakkir vil ég færa unga fólkinu okkar fyrir mikið starf, upplífgandi baráttuanda og frum- kvæði sem oft hefur komið á óvart. „Það er engin þörf að kvarta þegar blessuð sólin skín,“ segir í textanum og sama má segja um baráttu unga fólksins okkar. Fari heimur versn- andi er það a.m.k. ekki þeim að kenna sem eru að öðlast reynslu þessa dagana til þess að taka við keflinu, heldur okkur hinum sem eitthvað hefur mistekist á leiðinni inn í skiptireitinn. Þakkir til allra sem tekið hafa þátt í baráttunni. Gleðilegan kjör- dag og ánægjulega kosninganótt! Sólríkt og gleðilegt sumar – undir velferðarstjórn! ■ Verkalok – vel unnið dagsverk Það þarf hugrekki til að takast ávið vandamál þjóðfélagsins og þjóðin þarf á leiðtogum að halda, ekki sölumönnum. Í kosningabar- áttunni hefur komið í ljós að nóg er af sölumönnum en lítið af leiðtog- um. Auglýsingar flokkanna bera þetta með sér. Sölumennskan er allsráðandi en málefnin víkja. Um þverbak keyra auglýsingar stjórn- arflokkanna sem eru bæði rangar og villandi að mörgu leyti. Hags- munaaðilar í sjávarútvegi telja að nú þurfi að leggja fram fjármuni til að koma í veg fyrir að þjóðin endur- heimti þjóðarauðlindina. Stjórnarflokkarnir bjóða upp á óbreytt fiskveiðistjórnarkerfi og óbreytt skipulag í landbúnaði. Þeir munu ekki taka á háu matarverði en munu hér eftir sem hingað til setja hagsmuni fjármagnseigenda í öndvegi á kostnað lántakenda. Ekki verður tekið á útlánsvöxtum til neytenda og smærri fyrirtækja og við ein þjóða í okkar heimshluta verðum með verðtryggð útlán. Stjórnarflokkarnir munu ekki lækka skatta nema þá með því að reka ríkissjóð með halla og skuld- setja framtíðina. Þeir hafa aukið ríkisútgjöld um 70 milljarða á kjör- tímabilinu og sjá enga leið til að skera niður í ríkisrekstrinum. Bruðlið og sóunin munu halda áfram og það verður haldið áfram að forgangsraða vitlaust. Siglu- fjarðargöng verða grafin en slysa og dauðagildrurnar í Reykjavík og nágrenni bíða. Stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks þýðir kyrrstaða. Gjafakvót- inn verður festur enn betur og bandaríska fyrirtækið Decode fær 20 milljarða ríkisábyrgð sem fellur á þjóðina innan nokkurs tíma. Fá- tæktin minnkar ekki. Er þetta framtíð sem þú kýst? Stefnumál Nýs afls eru skýr. Við munum hækka skattleysis- mörkin í 100 þúsund þannig að tekj- ur undir 100 þúsundum verða skatt- lausar. Við munum hætta bruðli og sóun í ríkisbúskapnum og minnka ríkisbáknið án þess að draga úr nauðsynlegri þjónustu. Við munum lækka verð á lífsnauðsynjum. Við munum með því að tryggja virka samkeppni ná niður útlánsvöxtum og við munum afnema verðtrygg- ingu útlána. Forgangsverkefni er að eyða biðlistum á sjúkrahúsum. Það er ekki sæmandi að láta fólk bíða sárkvalið eftir aðstoð. Við munum breyta fiskveiðistjórnar- kerfinu og færa þjóðinni full yfir- ráð yfir fiskimiðunum. Við viljum virkt lýðræði þar sem þjóðarat- kvæðagreiðslur verða auðveldaðar og kosningalögum verði breytt. ■ Frjálslyndi flokkurinn hóf fund-arferðir sínar í upphafi ársins undir kjörorðinu „Baráttan fyrir byggðirnar.“ Á landsfundi Frjáls- lynda flokksins, 7.-8. mars var lagt upp í kosningabaráttuna með ein- kunnarorðin frelsi, jafnrétti og bræðralag; kjörorð frönsku bylt- ingarinnar þar sem lýðræðið á rætur sínar. Frelsi til orða og athafna er undirstaða lýðfrelsisins. Frjálsir menn í frjálsu landi eru forsenda framfara, menningar og gróandi þjóðlífs. Jafn réttur til lífsgæðanna, heilbrigðis, menntunar og nýting- ar auðlinda eigin lands er undir- staða þess jafnréttis sem flokkur- inn vill berjast fyrir. Íslendingar þurfa að kveða nið- ur úlfúð og stéttaríg, sem vaxið hefur hröðum skrefum undir nú- verandi ríkisstjórn sérhagsmuna og mismununar. Bræðralagið ís- lenska hefur verið rofið með ótrú- legum yfirgangi valdsstjórnar sem rutt hefur braut hinu nýja auðvaldi og náð hefur undir sig arðbærasta atvinnuveginum og á nú eignir og hefur völd í flestum stærri fyrirtækjum landsins. Frjálslyndi flokkurinn hefur náð eyrum kjósenda með afstöðu sinni í sjávarútvegsmálum. Kvótaflokkun- um hefur loks mistekist að drepa þeim málum á dreif með loforða- vaðli og háskalegum blekkingum. Kvótakerfinu hrundið frá Frjálslyndi flokkurinn er flokkur einkaframtaksins, þar sem allir sitji við sama borð. Flokkurinn varar við fálæti í garð lítilla og meðalstórra fyrir- tækja af hálfu stjórnvalda sem virðast eingöngu hafa hagsmuni stórfyrirtækja og auðmanna í fyrirrúmi. Nú er lítið haldið á lofti hinu gamla slagorði Sjálf- stæðisflokksins „stétt með stétt?“ Þau sóma sér hins vegar vel innan Frjálslynda flokksins í dag. Í hinum fjölmörgu minni fyr- irtækjum liggur vaxtarbroddur íslensks atvinnulífs. Að þeim þurfum við að hlúa með lækkun vaxta og gjalda og stórbættri að- stöðu að öðru leyti. Frjálslyndi flokkurinn vill út- rýma fátækt með öllu og styður af alefli kjarabaráttu aldraðra og öryrkja. Hann mun hvergi draga af sér í stuðningi við sjúka og gerir sér grein fyrir að stórátak bíður nýrra landsstjórnarmanna í heilbrigðismálum. Frjálslyndi flokkurinn gerir sér grein fyrir að bættar sam- göngur eru undirstaða búsetu í öllu landinu og að jafnræðis þarf að gæta í flutningskostnaði. Lausn byggðavandans liggur þó fyrst og fremst í því að hrund- ið verði með öllu hinu illvíga kvótakerfi. Frjálslyndi flokkurinn vill efla kristni og kirkju en vill að allir séu jafnir að trú sinni. Hann mun veita fullan stuðning stóraukinni menntun á öllum sviðum og menn- ingu. Flokkurinn mun hafa í fyrir- rúmi eflingu íslenzkrar tungu sem tilveruréttur okkar sem þjóðar byggist á. Mannrækt, landrækt og vernd gæða lífs, láðs og lagar eru mark- mið Frjálslynda flokksins. ■ Ávarp foringjanna STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON ■ formaður Vinstri- hreyfingarinnar - græns framboðs. Ávarp foringjanna JÓN MAGNÚSSON ■ varaformaður Nýs afls. Hugrekki, ekki sjálfs- ánægja Ávarp foringjanna GUÐJÓN ARNAR KRISTJÁNSSON ■ formaður Frjálslynda flokksins. Frelsi, jafnrétti, bræðralag undir forystu Frjálslyndra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.