Fréttablaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 2
2 10. maí 2003 LAUGARDAGUR “Rétt.“ Þórólfur Árnason er borgarstjóri fjögurra stjórn- málaflokka í Reykjavík. Hann kýs eins og aðrir í dag. Spurningdagsins Þórólfur, hvað ætlar þú að kjósa? ■ Kosningar LÍTILL ÁHUGI ERLENDIS Íslensku þingkosningarnar hafa vakið tak- markaða athygli erlendra fjöl- miðla. Ef frá er talin grein í finnska blaðinu Hufvudstads- bladet og umfjöllun á fréttavef norska ríkisútvarpsins hafa fjöl- miðlar Norðurlandanna ekki fjall- að um málið. Í breska blaðinu Financial Times er stutt greinar- gerð um kosningarnar en lengra virðist áhugi fjölmiðla í Bretlandi ekki ná. HANDTÖKUR Tveir liðsmenn Bin Laden í haldi lögreglu. Franskri rannsókn lokið: Osama Bin Laden dauður PARÍS, LE FIGARO Osama Bin Laden er allur, samkvæmt frétt franska dagblaðsins Le Figaro, sem byggð er á rannsóknum Ghislaine Alleaume, sagnfræðings og sér- fræðings í málefnum Miðaustur- landa. Þessu heldur hann fram eftir víðtækar rannsóknir á Tora Bora- svæðinu í Afganistan. Samkvæmt þeim, lést Bin Laden í desember 2001 eftir harða sprengihrinu bandarískra flugvéla yfir fjall- lendið í Tora Bora þar sem Bin Laden var grunaður um að halda fyrir. Alleaume heldur því fram að Osama hafi orðið fyrir sprengi- broti, þurft hafi að nema brott aðra hönd hans og vegna lélegra að- stæðna og lítilla sjúkragagna hafi honum síðar blætt út. ■ AFRÍKA, AP Allt að 129 manns sog- uðust út úr rússneskri flutninga- vél sem var á flugi yfir Afríkurík- inu Kongó í 33.000 feta hæð. At- vikið átti sér stað þegar aftur- hurð vélarinnar sprakk út á flugi 45 mínútum eftir flugtak. Yfir- menn á flugvellinum í Kinshasa í Kongó gátu ekki staðfest fjölda farþega en óstaðfestar fréttir herma að 129 manns hafi verið um borð, allt lögreglumenn frá Kongó og fjölskyldur þeirra. Flugmönnum vélarinnar, sem er rússnesk af gerðinni Ilyushin 76, tókst að snúa við og lenda heilu og höldnu. Vélar þessar eru komn- ar til ára sinna en er haldið í um- ferð vegna skorts á ódýrum flug- vélum til flutninga. Ferill þeirra er einnig vafasamur. Vitað er um 45 skráð slys slíkra véla gegnum tíð- ina, og hafa samanlagt tæplega 400 manns látist í þessum slysum. ■ KANNANIR Skoðanakannanir sem birst hafa síðustu daga gefa nokkuð misvísandi vísbendingar um hvernig kosningarnar í dag fara. Einstök atriði eru svipuð á milli kannanna en annars staðar munar miklu á niðurstöðum. Samhljómur er með nokkrum könnunum Gallup annars vegar og Fréttablaðsins hins vegar um að lítill munur sé á fylgi Sjálf- stæðisflokks og Samfylkingar. Kannanir DV, Gallup og IBM sýna sex til sjö prósenta mun á flokkunum. Framsóknarflokkur- inn mælist í flestum tilfellum í kringum 16%. Ein könnun Gallup sýnir hann þó með 12,7% en Félagsvísindastofnun mælir hann með allnokkru meira fylgi, 18,5%. Skoðanakannanirnar eru fram- kvæmdar með misjöfnum hætti, hvort tveggja hvernig spurt er og hvernig úrtakið er valið. Þá spyr hver aðili með sínum hætti. Gallup velur svarendur með tilviljanakenndu úrtaki úr þjóð- skrá. Misjafnlega margir hafa verið spurðir í hverri könnun, frá 1.000 til 1.600. Fyrst er spurt hvaða lista fólk ætlar að kjósa í kosningunum, síðan hvað er lík- legast að það kjósi og að lokum hvort líklegra sé að það kjósi Sjálfstæðisflokk eða einhvern hinna flokkanna. DV spurði 2.500 manns hvaða flokk þeir myndu kjósa ef gengið yrði til kosninga nú. Í könnun Fréttablaðsins voru 3.000 manns spurðir: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga nú? Þeir sem ekki svöruðu voru spurðir: Hvaða lista er líklegast að þú myndir kjósa ef gengið yrði til þingkosninga nú? Félagsvísindastofnun notar 1.200 manna slembiúrtak úr þjóð- skrá. Fyrst var spurt hvað við- komandi myndi kjósa ef kosning- ar yrðu á morgun, þá var spurt hvað væri líklegast að viðkom- andi kysi og loks hvort væri lík- legra að hann kysi Sjálfstæðis- flokk eða einhvern hinna flokk- anna. IBM notar kvótaúrtak úr hverju kjördæmi skiptu eftir kyni og aldri, alls 3.500 manns. Fyrst er spurt hvað fólk ætli að kjósa, svo hvað sé líklegast að það kjósi. brynjolfur@frettabladid.is KOSNINGAR Hlutfall þeirra sem leggja leið sína á kjörstað í alþing- iskosningum hefur farið lækkandi þrjú síðustu skipti sem kosið hefur verið um hverjir skyldu fara með stjórn landsins. Þegar litið er á kjörsókn síðustu hálfa öldina, í þeim 15 þingkosn- ingum sem hafa verið haldnar frá 1953, kemur í ljós að níu sinnum hefur kjörsókn verið yfir 90% og í einum kosningum til viðbótar munaði einungis tíunda hluta úr prósenti upp á að 90% kjörsókn næðist. Þær fimm kosningar þar sem fæstir hafa greitt atkvæði áttu sér allar stað síðasta aldar- fjórðunginn, og er þar í raun um að ræða allar kosningar frá 1979 nema kosningarnar 1987. Kosningaþátttaka í síðustu kosningum var aðeins 84,1% en það er þó hátt hlutfall í samanburði við mörg þau lönd sem við berum okkur saman við. Samt þarf að fara aftur til ársins 1942 til að finna kosningar þar sem kosninga- þátttaka var minni. Þá var hún 80,3% og 82,3% í tveimur kosning- um sama árið, sem haldnar voru í skugga seinni heimsstyrjaldar. Fara þarf aftur til ársins 1934 til að finna kosningar á friðartímum þar sem þátttaka er minni en í kosn- ingunum fyrir fjórum árum. 1934 var þátttakan 81,5%. ■ Kosningaþátttaka 1999 var sú minnsta í 57 ár: Minnkandi kjörsókn 84,1%87,4% 87,6% 90,1% 88,3% 89,3% 90,3% 91,4% 90,4% 91,4%91,1%90,4%90,6% 92,1% 89,9% 0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100 19 53 19 56 19 59 19 59 19 63 19 67 19 71 19 74 19 78 19 79 19 83 19 87 19 91 19 95 19 99 KJÖRSÓKN Í HÁLFA ÖLD Mesta kjörsókn í alþingiskosningum var 1956. Mesta kjörsókn sem mælst hefur hérlendis var í þjóðaratkvæðagreiðslu um stofnun íslenska lýðveldisins 1944, 98,4%. Sagt hefur verið að þá hafi allar lýðræðislegar leikreglur verið brotnar til að tryggja góða kosningu. Heimild: Kosningaskýrslur Hagstofu Íslands. Mikil óvissa um úrslit Skoðanakannanir sem birtar hafa verið í vikunni sýna mjög misjafnar niðurstöður um hvernig kosningarnar í dag fara. Misjöfn tímasetning, úrtak og ólíkar spurningar kunna að ráða muninum. 15 ,9 % 35 ,7 % 9, 3% 29 ,5 % 8, 1% 16 ,7 % 32 ,7 % 8, 9% 32 ,6 % 8, 0% 16 ,1 % 34 ,4 % 8, 4% 33 % 7, 1% 16 ,2 % 37 ,0 % 7, 8% 29 ,4 % 6, 9% 18 ,5 % 36 ,1 % 7, 6% 28 ,5 % 8, 4% 12 ,7 % 34 ,9 % 9, 2% 32 ,7 % 8, 3% 15 ,7 % 36 ,9 % 8, 9% 26 ,6 % 10 ,1 % 16 ,4 % 37 ,1 % 9, 3% 26 ,1 % 9, 8% 0 5 10 15 20 25 30 35 40 17 ,3 % 35 ,8 % 6, 3% 31 ,7 % 7, 9% Gallup 3.- 4. maí Gallup 4.- 5. maí Gallup 5.- 6. maí Félagsvísindast. 5.- 7. maí IBM 5.- 7. maí Gallup 6.- 7. maí Fréttablaðið 7.- 8. maí Gallup 7.- 8. maí DV 8. maí Kannanir sem birtar hafa verið í vikunni HITI FIMM TIL TÍU STIG Kjósendur þurfa ekki að láta veðrið aftra sér við atkvæðagreiðsluna. Veðurstofa Íslands: Ágætis kosn- ingaveður VEÐUR „Útlit er fyrir ágætis kosn- ingaveður,“ segir Kristín Her- mannsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Það verður hæg norðaustlæg átt nánast um land allt en heldur hvassara á Vestfjörðum, fimm til tíu metrar á sekúndu. Búast má við skúrum á Norður- og Austurlandi en þurru og skýjuðu annars staðar. Hiti verður fimm til tíu stig. Á sunnu- dag verður svipað veður nema að- eins bætir í vind. Á þriðjudag og miðvikudag fer hlýnandi, þá helst á Austurlandi, en um miðja vik- una getur hitinn þar farið upp í fimmtán stig. ■ Barnaníðingur: Fangelsi í þrjá mánuði DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað- fest átján mánaða fangelsisdóm yfir manni sem misnotaði þrjár barnungar stúlkur kynferðislega. Manninum var virt til vorkunn- ar að hafa verið ungur þegar hann braut gegn börnunum, eða 15 til 18 ára. Eins er litið til þess að hann er í sambúð og á barn. Fimmtán mánuðir refsingarinnar voru því skilorðsbundnir. Barnaníðingurinn var heimilis- vinur á heimili stúlknanna. Meðal annars er talið sannað að hann hafi rofið meyjarhaft einnar stúlkunnar þegar hún var aðeins sjö ára. Hún þorði ekki að segja frá því fyrr en sex árum síðar. ■ ■ Dómsmál VAGNSTJÓRI SEKUR UM GÁLEYSI Strætisvagnabílstjóri hefur verið dæmdur í 80 þúsund króna sekt fyrir að aka yfir á rauðu ljósi og stórslasa farþega fólksbíls sem hann lenti í árekstri við. Atburð- urinn varð á nýársdag í fyrra á mótum Gullinbrúar og Höfða- bakka. STÓRSMYGLARI Í FANGELSI Hæstiréttur hefur staðfest þriggja ára fangelsisdómi yfir Sigurði Hilmari Ólasyni fyrir að- ild að smygli á tæpum 30 kílóum af hassi til landsins. Sigurður Óli var einnig dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl árið 1997. FLUGVÉL SÖMU GERÐAR OG Í SLYSINU Óttast er að allir farþegarnir hafi sogast út. Flugslys yfir Kongó: 129 farþegar soguðust út
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.