Fréttablaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 33
ekki og hljómsveitin var leyst upp. Dátarnir fóru í hinar og þessar hljómsveitir og kom það mörgum aðdáendum Rúnars, sem þá var einskonar tákngerv- ingur hinnar villtu bítlaæsku, í opna skjöldu þegar hann gekk til liðs við Sextett Ólafs Gauks. Mörgum þótti sem hann hefði svikið lit. Hér gala gaukar Ólafur Gaukur hljómsveitar- stjóri segist hafa gert nokkuð af því að fá yngri menn í hljómsveit- ina, það hafi gefið góða raun og Rúnar hafi verið mikill náttúru- maður í tónlistinni. „Það var ekki um annað að ræða en að hann tæki að sér bassann, hann fékk vinnuna út á það. Það er ósköp svipað að spila á þessi hljóðfæri - bassa og gítar,“ segir Ólafur Gaukur. Í Sextettnum réði fagmennsk- an ríkjum og voru skrifaðar út nótur fyrir hljómsveitina. Enn- fremur gerði hún sjónvarpsþætt- ina Hér gala gaukar. Að sögn Jón- atans Garðarssonar poppfræðings var Rúnar algjör súperstjarna á þessu tímabili og talsvert frægari en Hljómarnir – enda hver sá sem kom fram í sjónvarpi á þessu tímabili almenningseign. „Rúnar var sjarmerandi týpa, töffari á sinn einfalda hátt og heillaði bæði eldri sem yngri. Sextett Ólafs Gauks spilaði lög sem voru vin- sæl. Það var sérstakur tónn í lög- um Rúnars og ráðgáta hvernig hann náði þessum einstæða tóni.“ Óveðurský hrannast upp Í árslok 1968 var Rúnar orðinn þreyttur á erlinum sem fylgdi sviðsljósinu og hugleiddi að draga sig í hlé sem var hægara sagt en gert. Allt varð til að leggjast á eitt um að gera honum lífið erfitt. Móðir Rúnars dó árið 1965; á við- kvæmum tíma var Rúnari sagt að hann væri ekki rétt feðraður og á sama tíma skildi hann við barns- móður sína. „Endalausar kjafta- sögur gengu um Rúnar sem var viðkvæmur fyrir þeim. Skrápur- inn var bara úti á götu og uppi á sviði,“ segir Þorsteinn. Rúnar öðlaðist gríðarlegar vin- sældir þegar hann var í raun ómótaður og frægð sem hefði get- að verið hverjum manni ofraun. Gera má sér í hugarlund að hon- um hafi verið fyrirmunað að sjá sig í hlutverki venjulegs borgara eftir hið mikla flug Dáta og svo Sextettsins. Um svipað leyti fóru geðræn vandamál að gera vart við sig og Rúnar var greindur með geðklofa. Hann hætti með Sex- tettnum í upphafi árs 1969. Hippa- bylgjan var ráðandi og til stóð að Rúnar færi í Tilveru, sem þá þótti lofa góðu, en hætti þar skyndi- lega. Lítið heyrðist opinberlega frá Rúnari næstu árin og var hann í meðferð vegna veikinda sinna. Árið 1972 kom út tveggja laga plata með honum, sem var tekin upp í Klúbbnum, og innihélt lögin Við söng og gleði og Draumanótt en hlaut fremur dræmar viðtökur. Ómögulegt er að segja til um hvaða væntingar Rúnar gerði til hennar en nokkrum mánuðum síð- ar var hann allur. jakob@frettabladid.is Heimild: meðal annars Mannlíf, mars 1997 LAUGARDAGUR 10. maí 2003 35 FYRSTA PLATAN Sló alveg í gegn. Þarna voru þrjú lög eftir Þóri Baldursson. Á næstu plötu lét Rúnar til sín taka sem lagahöfundur. SEXTETT ÓLA GAUKS Mörgum fannst Rúnar svíkja lit þegar hann gekk til liðs við hljómsveitina, en þar skein stjarna hans skærar en nokkru sinni og fagmennsku hljómsveitarstjórans var við brugðið. Þorsteinn Eggertsson: „Rúnar var stjarnan í hljóm- sveitinni, hafði mikla útgeislun og gekk í augun á stelpunum. En hann var sýnd veiði en ekki gefin í þeim efnum og lenti oft í vandræðum. Til dæmis man ég að á Ísafirði gat hann ekki klárað lag því ein stelpan læsti sig um lappirnar á honum.“ Jónatan Garðarsson: „Rúnar var al- gjör súperstjarna á þessum tíma og talsvert þekktari en meðlimir Hljóma. Hann var sjarmer- andi týpa, töffari á sinn einfalda hátt og heillaði bæði eldri sem yngri. Það var sérstakur tónn í lögum Rúnars og ráðgáta hvernig hann náði þessum ein- stæða tóni.“ Ólafur Gaukur: „Hann kunni ekkert en var mikill náttúrumaður með ótvíræða hæfi- leika og setti sinn sérkennilega og skemmtilega tón á þetta. Það er á hreinu.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.