Fréttablaðið - 10.05.2003, Side 6
6 10. maí 2003 LAUGARDAGURVeistusvarið?
1Þrettán áður óþekkt verk eftir merkaíslenska listakonu rak á fjörur Smiðj-
unnar – listhúss. Eftir hvern eru verkin?
2Í viðtali við þýskt tímarit sagðistDavíð Oddsson ætla að hætta í póli-
tík fyrir sextugt. Hvað heitir tímaritið?
3Þrjár ungar konur hafa opnað versluná Laugavegi 12a þar sem seld verða
verk ungra hönnuða. Hvað heitir búðin?
Svör á bls. 54.
Bandaríkjamenn órólegir:
Kjarnorku-
þreifingar
Írana
ÍTALÍA, AP Utanríkisráðherra Írans
vill að Bandaríkjamenn hætti að
skipta sér af tilraunum Írana til að
þróa kjarnorkuvopn. Þetta sagði
hann fyrir fund með Silvio
Berlusconi, forseta Ítalíu, en
Bandaríkjamenn hafa lýst yfir
áhyggjum yfir sívaxandi prófun-
um Írana á kjarnorku.
„Þeim kemur þetta ekkert við,“
sagði ráðherrann. „Þetta er á milli
okkar og Alþjóðakjarnorkumála-
stofnunarinnar. En þetta er flókið
mál. Við erum ánægðir með að
óvinir okkar [Írak] eru ekki lengur
pólitískt vandamál en á hinn bóg-
inn höfum við áhyggjur af áætlun-
um Bandaríkjanna á svæðinu.“ ■
KHARRAZI OG
BERLUSCONI
Ráðherrann er
ósáttur við af-
skipti Bandaríkj-
anna.
LISTIR Stórt listaverk úr plexígleri
sem vera átti höfuðdjásnið í sýn-
ingu Bjarna Sigurbjörnssonar í Los
Angeles brotnaði á hafnarbakkan-
um í Reykjavík.
Sýning Bjarna opnar í St. Mon-
ica Studio í dag. Þar sýnir hann
verk úr plexígleri eins og hann er
þekktur fyrir. Verkin voru flutt
með Eimskipi um Evrópu og
Panamaskurðinn til Kaliforníu.
Bjarna mun hafa verið gert
kunnugt um það þegar stóra verkið
var í evrópskri hafnarborg að það
hefði fallið á kajann í Reykjavík í
upphafi ferðar. Sagt var að höggið
hafi verið óverulegt. Þegar Bjarni
vitjaði sendingarinnar ytra á mánu-
daginn var kom í ljós að verkið var
brotið í þrjá parta; ónýtt og ósýn-
ingarhæft.
Verkið sem eyðilagðist er
áþekkt bláu plexíglerverki Bjarna
á sýningunni Mynd í Listasafni
Reykjavíkur í fyrra. Það verk var
afar stórt, um 32 fermetrar að
flatarmáli. Verkið sem nú er farið
forgörðum var hins vegar aðeins
fjórðungur þess, eða tveir sinnum
fjórir metrar. ■
HAFNARHÚSIÐ
Bjarni Sigurbjörnsson varð fyrir óvæntu
áfalli þegar hann vitjaði listaverka sinna.
Íslenskur myndlistarmaður opnar sýningu í Los Angeles:
Höfuðdjásnið brotnaði
á kajanum í Reykjavík
FÓTBOLTI Ásgeir Sigurvinsson hef-
ur verið ráðinn þjálfari A-lands-
liðs karla til bráðabirgða en Atli
Eðvaldsson hefur látið af störfum.
Stjórn KSÍ hefur einnig veitt for-
manni sambandsins umboð til að
leita að erlendum þjálfara.
Ásgeir Sigurvinsson hefur
setið í landsliðsnefnd KSÍ á und-
anförnum árum. Hann hefur því
fylgst náið með leikjum liðsins
og undirbúningi þeirra og þekk-
ir vel til landsliðsmannanna. Ás-
geir var strax tilbúinn að axla
þessa ábyrgð þegar KSÍ leitaði
til hans.
Ásgeir stjórnar landsliðinu í
leikjunum gegn Færeyjum og Lit-
háen í byrjun júní en það veltur á
því hvenær nýr þjálfari finnst
hvort Ásgeir stýrir liðinu í fleiri
leikjum. Ásgeir segir að breyting-
ar verði ekki miklar á landsliðs-
hópnum frá síðustu leikjum. Hann
ætlar að hafa samband við þá leik-
menn sem leika erlendis eftir
helgi og ræða við þá um undirbún-
ing næstu leikja. Nýr hópur verð-
ur tilkynntur 2. júní. Markmið Ás-
geirs er að vinna tvo af næstu
þremur leikjum en auk leikjanna í
byrjun júní leikur Ísland í Fær-
eyjum um miðjan ágúst.
KSÍ ætlar að gefa sér góðan
tíma í að finna nýjan þjálfara.
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, sagði að sambandið teldi
tíma kominn til að leita á erlend
mið að nýju. Tólf ár eru liðin frá
því að landsliðið lék undir stjórn
erlends þjálfara. Svíinn Bo Jo-
hansson var landsliðsþjálfari á ár-
unum 1990 til 1991 en hann tók við
af Þjóðverjanum Siegfried Held
sem þjálfaði liðið á árunum 1986
til 1989.
Í sameiginlegri yfirlýsingu
Atla Eðvaldssonar og KSÍ segir að
„mikil og neikvæð umræða hafi
verið um störf Atla með landsliðið
sem í raun hafi haft slæm áhrif á
gengi liðsins. Atli dregur sig í hlé
í þeirri von að liðinu takist að
snúa blaðinu við og fá stuðning
þjóðarinnar í komandi leikjum
sem eru gríðarlega mikilvægir
fyrir íslenska knattspyrnu.“ ■
ÁSGEIR SIGURVINSSON
Ásgeir Sigurvinsson hefur verið ráðinn þjálfari A-landsliðs karla til bráðabirgða.
Ásgeir tekur við af Atla
KSÍ leitar að erlendum þjálfara en Ásgeir Sigurvinsson stjórnar
landsliðinu til bráðabirgða.
KOSNINGARNAR „Skoðanakannanirn-
ar hafa verið mjög misjafnar,“ seg-
ir Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráð-
herra og þingmaður Framsóknar-
flokksins, aðspurð um skoðana-
kannanir gærdagsins og vikunnar
allrar. „Á miðvikudaginn vorum við
með 12,7% og talsvert frá kjörfylg-
inu. Í gær mældumst við mun nær
kjörfylginu. Sem frambjóðanda líð-
ur manni eins og maður sé í rússi-
bana. Það er algerlega óljóst hvern-
ig þetta fer. Við leggjum mikla
áherslu á að Framsóknarflokkurinn
nái sínu kjörfylgi, sem var yfir 18%
í síðustu kosningum. Við förum
tæplega í ríkisstjórn án þess að ná
því.“
Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt-
ir, þingmaður og frambjóðandi
Samfylkingarinnar, segist draga þá
ályktun af þessum könnunum að
mjög margir dragi það fram á síð-
ustu stundu að taka endanlega
ákvörðun. „Ég hef fundið það í vik-
unni, til dæmis á vinnustöðum, að
margir höfðu ekki ákveðið sig. En
þessar tölur sem kannanirnar hafa
sýnt hleypa óneitanlega kappi í
kinn flokkum eins og okkur. Okkur
vantar herslumuninn til þess að ná
okkar markmiðum og þetta er mjög
spennandi. Mér sýnist þetta ætla að
verða einar mest spennandi kosn-
ingar sem ég man eftir. Það er sama
stemning í loftinu og þegar verið
var að fella Viðreisnarstjórnina á
sínum tíma. Það er mikið í húfi að
fella ríkisstjórnina nú, eins og þá.“
Árni Mathiesen, sjávarútvegs-
ráðherra og frambjóðandi Sjálf-
stæðisflokks, segir kannanirnar
hafa gefið glöggt til kynna að
brugðið geti til beggja vona fyrir
sjálfstæðismenn. „Sumar kannan-
irnar hafa sýnt góða útkomu fyrir
okkur, en eins eru kannanir þarna
sem eru ekki eins góðar. Þetta sýn-
ir að við þurfum á hverju atkvæði
að halda til þess að halda okkar.“
Besta könnunin fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn í gær sýndi flokkinn með
um 37% atkvæða. „Ég gæti vel þol-
að hærri tölu en það,“ segir Árni.
„En ef niðurstaðan gefur okkur
tveggja flokka góða ríkisstjórn þá
er þetta í lagi.“
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, segir kann-
anirnar vera aðvörun til vinstri-
sinnaðs fólks. „Þessar niðurstöður
eru holl aðvörun til vinstrisinnaðs
og umhverfisverndarsinnaðs
fólks,“ segir hann, „um það hvort
það telji ekki þörf á því að eini
flokkurinn sem skilgreinir sig með
skýrum hætti til vinstri í íslenskum
stjórnmálum og stendur í lappirnar
í umhverfismálum fái ekki sterkari
útkomu.“ Steingrímur finnur að því
að Samfylkingin virðist sækja
meira í fylgi hinna stjórnarand-
stöðuflokkanna en stjórnarflokk-
anna. „Slíkt gagnast ekkert sameig-
inlegum hagsmunum stjórnarand-
stöðunnar í slagnum við að fella
ríkisstjórnina,“ segir hann.
Magnús Þór Hafsteinsson, vara-
formaður Frjálslynda flokksins, er
mjög ánægður með gengi frjáls-
lyndra. „Við höfum háð þessa bar-
áttu af miklum dugnaði en jafn-
framt miklum vanefnum,“ segir
Magnús. „Við höfum ekki haft úr
miklum peningum að moða en fólk
hefur lagt á sig gríðarlega vinnu.
Það virðist vera að skila sér.“ Hann
furðar sig á því hversu miklu fé
stóru flokkarnir eyði í kosningabar-
áttuna. „Fyrir okkur sem þurfum
að velta fyrir okkur hverri einustu
krónu og jafnvel borga með okkur í
kosningabaráttunni er þetta ótrú-
legt.“
gs@frettabladid.is
brynjolfur@frettabladid.is
Eins og í rússibana
Skoðanakönnunum á endasprettinum ber ekki saman um fylgi
flokkanna. Spennan er mikil og allt getur gerst.
FRAMBJÓÐENDUR Í ÖNNUM
Harðri kosningabaráttu er nú lokið. Flestir
eru sáttir við hvernig til hefur tekist.
Íslensk stjórnvöld:
Barist gegn
mansali
MANSAL Íslensk stjórnvöld hafa
ákveðið að veita 2,5 milljónum
króna til eflingar starfsemi Örygg-
is- og samvinnustofnunar Evrópu
(ÖSE) gegn mansali og kynlífs-
þrælkun kvenna og stúlkubarna í
Bosníu og Hersegóvínu.
Fjárframlagið verður notað til
að ráða innlendan sérfræðing til
sendinefndar ÖSE í Bosníu og
Hersegóvínu til tveggja ára. Starf
sérfræðingsins verður fólgið í auk-
inni fræðslu og eflingu vitundar al-
mennings um mansal og ofbeldi
gegn konum og börnum á svæðinu.
Einnig mun hann skipuleggja að-
stoð við fórnarlömb mansals. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T