Fréttablaðið - 10.05.2003, Qupperneq 34
36 10. maí 2003 LAUGARDAGUR
Maímánuður er settlegur hjá okkur því glæsilegt
golfsett* frá versluninni Hole in One fylgir öllum
sófasettum sem keypt eru í þessum mánuði.
Tilboðið gildir um öll sófasett hvort sem þú velur
hina sígildu samsetningu 3+2+1 eða þína eigin
samsetningu – t.d. hornsófa, tvo sófa, sófa og tvo
stóla, hornsófa og stól …
Bæjarlind 14-16 | 201 Kópavogi | Sími 564 4400 | Fax 564 4435 | tekk@tekk.is | www.tekk.is
Settlegt
par
golfsett:
fullt sett
• 3-PW járn
• 400 cc driver
• 3+5 tré
• Pútter
• Gó›ur
bur›arpoki
• Hanski
• 10 golfkúlur
• 30 tí
*
Í golf og svo upp í sófa?
S
E
TTLEGIR
M
A
Í D A G A
R
sófa
sett
+
golf
sett
H
R
IN
GD
U EÐA
K
O
M
D
US
E
M
F Y R S
T
S
■ PLÖTUKASSINN MINN
Klámmyndatónar
og súrt spekingapopp
Ég held reyndar að þetta sébein tenging við afa minn,
Karl frá Mýri í Bárðardal,“ seg-
ir Karl Örvarsson, söngvari í
hljómsveitinni Hunang, um
nafnið sitt. „En það er auðvitað
skemmtilegt að segja frá því að
ég á alnafna sem er líka skírður
í höfuðið á móðurafa sínum. Og
ekki nóg með það, hann er bróð-
ir minn. Við eigum sem sagt ekki
sömu móður, en það vill bara
þannig til að mæður okkar eiga
báðar feður sem heita Karl og
báðar vildu skíra í höfuðið á
feðrum sínum.“
Karl segir að þar með sé ekki
öll sagan sögð því alnafni hans
og bróðir sé líka farinn að semja
lög og gefa út og þeim bræðrum
sé þráfaldlega ruglað saman.
„Með allri virðingu fyrir hon-
um,“ segir Karl hlæjandi. „Þá vil
ég eiginlega ekki láta bendla
mig við neina tónlist nema mína
eigin.“
Karl segist alltaf hafa verið
ánægður með nafnið sitt og vera
kallaður Kalli í vinahópi. „Við
Kallarnir erum alltaf nokkuð
traustir,“ segir hann glaðhlakka-
legur, „og þetta nafn hefur loðað
við fjölskylduna. Ég átti á tíma-
bili tvo mága með þessu nafni og
svo auðvitað bróður og afa. Þetta
var orðið mikið Karlaveldi.“ ■
■ NAFNIÐ MITT
Alnafni
bróður síns
Birgir Nielsen, trommari Lands& Sona og annar umsjónamað-
ur sjónvarpsþáttarins Popp & Kók
á Skjá 1, segist ekki hafa lagt í það
að telja geisladiskasafnið sitt en
giskar á að þar séu um 500 titlar.
Þær fáu vínylplötur sem hann á
geymir hann út í bílskúr innan um
allt trommudótið. Plötuspilarinn
er þó löngu dáinn og grafinn.
Birgir segist vera mikill safn-
ari. „Eftirlætis plötuverslunin mín
var Hljómalind,“ segir Birgir.
„Það var skemmtilegasta plötubúð
síðari ára og það er mikil eftirsjá
eftir henni. Það var gaman að fara
þangað og gramsa. Ég er með skáp
heima sem enginn fær að fara í
nema ég. Það hefur hvort eð er
enginn annar á heimilinu áhuga á
því sem þar er nema ég. Þar
geymi ég alla súru tónlistina mína.
Ég á til dæmis mjög mikið með
Gert Wilden sem var mjög heitt
tónskáld á sjöunda áratugnum í
Þýskalandi. Hann samdi tónlist
fyrir kynlífsþætti sem voru sýnd-
ir á þýskri sjónvarpsstöð.
Önnur plata sem heillað hefur
Birgir úr lyftutónlistargeiranum
er „Sound Gallery no.1“. „Þegar
ég hlusta á þá plötu er eins og
maður færist beint í sólina í San
Francisco með konunni.“ Lyftu-
vörðurinn sjálfur, Burt
Bacharach, hefur svo lengi lyft
upp anda hans. Plötur Stan Getz
og Joao Gilberto enda svo einnig
oft í tækinu.
Tónlist írsku sveitarinnar U2
hefur svo lengi verið í uppáhaldi.
Af heildarverki þeirra er hann
hrifnastur af tímamótaplötunni
„Achtung Baby“. Hann á einnig
flestar plötur með trommuleikar-
anum Buddy Rich. Goðsagnar-
kenndum trommara sem lést árið
1988. „Hann á mjög mikið af þess-
um töktum sem menn eru að spila
í dag. Hann fór í tónleikaferðir um
allan heim með sitt bigband og dó
árið 1988. Ég allar nánast allar
plöturnar með honum. Hann hefur
verið í miklu uppáhaldi frá því að
ég var smá polli. Ég á líka eigin-
lega allt með Steely Dan. Í gegn-
um þá fór maður að uppgötva fullt
af geðveikum hljóðfæraleikurum
sem hafa spilað með svo mörgum.
Til dæmis Steve Gadd trommu-
leikara. Hann spilar í dag með
Clapton og lék áður með Paul
Simon.“
Ný plata með Land & Sonum er
væntanleg í sumar.
biggi@frettabladid.is
BIRGIR NIELSEN
Hingað til hefur Birgir ekki notfært sér netið mikið við leit að tónlist. Hann segir samt hel-
stu ástæðu þess vera að hann er ekki með ADSL tengingu.
KARL ÖRVARSSON
Karl er vel þekktur sem
söngvari í hljómsveit-
inni Hunang. En hann á
alnafna sem líka er
bróðir hans, og er að
semja og gefa út lög.