Fréttablaðið - 10.05.2003, Page 52
Hótel Selfoss verður án efaheitasti staðurinn í Suður-
kjördæmi í kvöld. Það er ekki
nóg með að talning atkvæða fari
fram á hótelinu
heldur verða
framsóknarmenn
með kosninga-
vöku sína með
sjálfan Guðna
Ágústsson í
broddi fylkingar.
Til þess að gull-
tryggja hasarinn verður Sam-
fylkingin einnig með sína kosn-
ingavöku á Hótel Selfossi, að
vísu í því sem heitir Betri stof-
an, en það breytir engu um það
að aðeins eitt þil mun skilja að
stuðningsmenn þessara and-
stæðu fylkinga og þar sem allir
vita að veitingarnar á svona
samkomum eru ekki kaffi og
kleinur má búast við fjörugum
umræðum þegar hóparnir bland-
ast saman.
Hæstaréttarlögmaðurinn JónMagnússon, sem skipar
efsta sætið á framboðslista Nýs
afls í Reykjavíkurkjördæmi suð-
ur, hefur verið virkur innan
Neytendasamtak-
anna árum saman
og er því vita-
skuld afskaplega
neytendavænn
maður. Þetta kom
berlega í ljós
þegar hann mætti
í Kosningasilfur
Egils Helgasonar á miðvikudag-
inn. Þátturinn, sem alla jafna er
sendur út á sunnudögum, var
þarna boð-
flenna á mið-
vikudagsdag-
skrá Skjás eins
og Jón byrjaði
mál sitt á að
biðja áhorfend-
ur hálfpartinn
afsökunnar á
því að hann og
viðmælendur hans væru að
ræna þá kvöldstund með Jay
Leno og reyndi svo að friða fólk
heima í stofu með því að leggja
til að gestir Silfursins reyndu að
vera aðeins fyndnari en gengur
og gerist.
Vefritið Pressan á Strik.is hef-ur verið ris-
lágt síðustu miss-
eri en tók oft
góða spretti fyrir
nokkrum misser-
um undir rit-
stjórn Hrafns
Jökulssonar. Ás-
geir Friðgeirsson,
frambjóðandi Samfylkingarinnar
í Suðvesturkjördæmi, hefur
haldið um stjórnartauma
Pressunnar síðan Hrafn hætti og
hefur hann þótt býsna hallur
undir sinn flokk í fréttaskrifum
sínum. Lesendur Pressunnar
ráku því að vonum upp stór augu
þegar baunað var
harkalega á Ingi-
björgu Sólrúnu
Gísladóttur og
Samfylkinguna í
tveimur fréttum
sem birtust á
vefnum í gær.
Skýringin á þess-
um sinnaskiptum Pressunnar
felast þó ekki í því að Ásgeir
hafi snúið baki við Samfylking-
unni heldur mun hin vaski
frjálshyggjupenni Andrés Magn-
ússon hafa fengið aðgang að
Pressunni og því fá bláir vindar
að leika þar um á elleftu stundu.
54 10. maí 2003 LAUGARDAGUR
Ég hef aldrei verið mikið fyrirsterka drykki og aldrei gríðar-
legt partíljón. Það var þess vegna
út úr karakter – eða kannski til að
bæta upp slappleika á þessu sviði
– sem ég pantaði Sambuca Rom-
ana á barnum á Hótel Sögu og bað
þjóninn að kveikja í. Ég hafði
prófað þetta tvisvar eða þrisvar
áður þennan vetur og nú stóð
þarna piltur sem vildi bjóða mér
upp á drykk á barnum. Þetta var
árshátíð laganema.
Bragðið var kunnuglegt en
drykknum fylgdi samt undarleg-
ur ytri ylur sem ég hafði ekki
fundið til fyrr. Ég leit kankvís á
piltinn til að fanga aðdáunarauga
hans og segja um leið eitthvað
hnyttið sem ég man ekki lengur
hvað var. Mér fannst þess vegna
skrítið þegar hann byrjaði að
berja mig alla utan, hálf löðrunga
mig og klappa mér á kollinn, en
heldur harkalega. Það var þá sem
rann upp fyrir mér að hárið á mér
stóð í ljósum logum. Úpps, hugs-
aði ég en þá var kavalérinn búinn
að slökkva. Ég hristi mig aðeins
og ætlaði ekki að láta bilbug á mér
finna – í fótboltanum er manni
innprentað að halda haus sama
hvað – en viðstaddir ráðlögðu mér
að skoða mig í spegli. Þar blasti
við sótsvartur rauðnefji. Þegar
bróðir minn ók mér á slysadeild-
ina fimmtán mínútum síðar
komumst við ekki inn. Rafknúnar
glerhurðirnar opnuðust ekki. Ég
beið við dyrnar meðan hann fór og
leitaði inngöngu í Borgarspítal-
ann annars staðar. Meðan ég beið
dreif að tvær löggur í svörtu Mar-
íu með stút við stýri sem átti að
fara í blóðpróf. Löggurnar og stút-
urinn staðnæmdust við hinar lok-
uðu dyr við hliðina á mér: Ég
reyndi að virka hress. Stútinum
fannst ég skrítin og mér fannst ég
vera stútur sjálf. Við dúsuðum
þarna drykklanga stund þar til
Einar bróðir birtist með lækni sér
við hlið. Hann hafði komist inn um
eldhúsið. Það var verið að gera
við á spítalanum. Inngöngudyr
bráðadeildar höfðu verið án raf-
magns. Meiðsli mín voru ekki al-
varleg. Hárið óx. Ég hef aldrei
aftur drukkið neitt sem logar. ■
Sagan
■ Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur
segir sögu af eldfimu staupi og skorar á
Sigríði Fanneyju Pálsdóttur að segja
næstu sögu.
Fréttiraf fólki
Undarlegur ytri ylur
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að
ekki verður á allt kosið.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Nína Tryggvadóttir.
Der Spiegel.
Búðin.
!
Bjarni Eiríkur Sigurðsson,skólastjóri reiðskólans Þyrils
í Víðidal, vígði á dögunum sér-
staka lyftu til að koma fötluðum á
hestbak. Bjarni hefur verið með
46 fatlaða í æfingum á hestbaki í
vetur og hefur árangurinn verið
framar öllum vonum:
„Þýskar rannsóknir sýna að
hreyfingarmynstur hestsins er
þannig að úr verða 200 vöðva-
hreyfingar knapans á mínútu.
Þetta finna fatlaðir og þeim finnst
í raun að þeir geti hreyft sig þeg-
ar þeir eru komnir á bak. Það efl-
ir sjálfstraustið,“ segir Bjarni
Eiríkur, sem er með 36 hross á
járnum í Víðidalnum auk 20 ann-
arra á Torfastöðum þaðan sem
hann gerir út á Njáluslóðir og
heldur námskeið:
„Ég er Hornfirðingur, alinn
upp á Mýrunum þar en flutti 11
ára gamall með foreldum mínum í
Hveragerði. Þar varð ég svo kenn-
ari þar til ég tók við skólastjórn í
Þorlákshöfn. Síðustu sjö árin hef
ég svo verið skólastjóri reiðskól-
ans Þyrils,“ segir Bjarni, sem gef-
ur sér tíma fyrir áhugamál þó
flestar tómstundirnar fari í hross-
in: „Ég hef verið að læra að spila
djass á píanó í mörg ár og lék í
hljómsveitum hér áður fyrr.
Hætti um það leyti sem Bítlarnir
komu fram á sjónarsviðið og
Yesterday var með síðustu lögun-
um sem ég lék á dansleikjum. Með
Bítlunum hvarf harmonikkan af
böllunum,“ segir Bjarni Eiríkur. ■
KRISTRÚN HEIMISDÓTTIR
„Bragðið var kunnuglegt en drykknum
fylgdi samt undarlegur ytri ylur sem ég
hafði ekki fundið til fyrr. Ég leit kankvís á
piltinn til að fanga aðdáunarauga hans og
segja um leið eitthvað hnyttið sem ég
man ekki lengur hvað var.“
Persónan
■ Bjarni Eiríkur Sigurðsson vígði á dög-
unum lyftu fyrir fatlaða sem vilja komast
á hestbak. Bjarni er skólastjóri reið-
skólans Þyrils í Víðidal.
BJARNI EIRÍKUR
Harmonikkan hvarf af böllunum með Bítlunum.
200 hreyfingar
á mínútu