Fréttablaðið - 18.12.2003, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 50
Leikhús 50
Myndlist 50
Íþróttir 46
Sjónvarp 52
FIMMTUDAGUR
SÓNÖTUR BRAHMS
Sigurbjörn Bernharðsson fiðluleikari leik-
ur þrjár sónötur eftir Brahms á tónleikum
í Salnum í Kópavogi í kvöld. Anna Guðný
Guðmundsdóttir leikur undir á píanó.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
18. desember 2003 – 316. tölublað – 3. árgangur
● syngur með siggu beinteins
Kristján Jóhansson:
▲
SÍÐA 59
Svolítill rokkari
í sér
● skortur á jólatrjám
Anna Finnbogadóttir:
▲
SÍÐUR 34 til 41
Gaman í
póstinum
HÆTT VIÐ LUND Bæjarstjórn Kópa-
vogs hefur ákveðið að hætta við háhýsa-
byggð sem til stóð að reisa í landi Lundar.
Formaður skipulagsnefndar segir að með
þessu sé tekið tillit til athugasemda bæjar-
búa en neitar því að verið sé að viður-
kenna mistök. Sjá síðu 2
LAUNAGREIÐSLUR Í SKOÐUN
Skattstofa Reykjavíkur rannsakar launa-
greiðslur hjá Ríkisútvarpinu og kannar
hvernig er staðið að verktakagreiðslum hjá
stofnuninni. Fyrrverandi verktaki RÚV segir
að stjórnendur stofnunarinnar virðist dansa
í kringum skattalöggjöfina. Sjá síðu 4
KÆRIR FORSÆTISRÁÐHERRA Jón
Ólafsson, fyrrum aðaleigandi Norðurljósa,
hefur höfðað meiðyrðamál gegn Davíð
Oddssyni forsætisráðherra vegna ummæla
sem Davíð lét fjalla um Jón í síðasta
mánuði. Sjá síðu 6
FYRIRTÆKJAGRÆÐGI
Ríkisskattstjóri gagnrýnir fyrirtæki fyrir
græðgi í pistli í fréttablaði stofnunarinnar.
Framkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands
mótmælir og telur gamalt embættismanna-
kerfi vera að bæra á sér. Sjá síðu 10
MENNTAMÁL „Það er verið að fara
yfir aðgerðir sem myndu leiða
til sparnaðar,“ sagði Þórður
Kristinsson, framkvæmdastjóri
akademískrar stjórnsýslu Há-
skóla Íslands.
Sú krafa hefur verið að
stjórnvöld bregðist nú þegar við
bágum fjárhag Háskólans.
Fjöldi nemenda við skólann,
jafnt erlendra sem íslenskra,
hefur aukist mjög. Það er krafa
Háskóla Íslands að fá úthlutað
fjármagni í samræmi við raun-
verulegan fjölda nem-
enda í grunnnámi, meistaranámi
og doktorsnámi og að framlag
sem ætlað sé til rannsóknaupp-
byggingar sé byggt á heildstæðu
reiknilíkani fyrir rannsóknir.
Þórður sagði að ekki sé aug-
lýst eftir nemendum um áramót.
En tekið er við beiðnum um
skráningu eftir því sem hægt
hefur verið. Framhaldsskólarnir
útskrifa stúdenta í desember og
þess vegna hefur aukist þörf á
að taka nýnema í janúar. „Þetta
er eitt af því sem getur verið að
við gerum ekki eftir áramótin,“
sagði hann. „Sú hugmynd er til
skoðunar ásamt fleirum til að
halda skólanum innan þess
ramma sem fjárlögin setja hon-
um. Það er verið að leita allra
leiða til þess eins og raunar
alltaf hefur verið gert.“
Spurður um hversu háa fjár-
hæð þyrfti að spara kvaðst Þórð-
ur ekki geta nefnt það. Hann
sagði virka nemendur, það er í
fullu námi, verða um 5.200 árið
2004. Að óbreyttu fjölgar þeim í
5.700 til 5.800.
„Það getur komið til að tak-
marka þurfi aðgang, þótt reynt
verði að komast hjá því í lengstu
lög,“ sagði hann og bætti við að
takmarkanir væri hægt að fram-
kvæma með inntökuprófum.
„Við byrjum á aðhaldsaðgerðum
og athugum svo hvað þarf að
koma til viðbótar,“ sagði Þórður.
Hann kvaðst vilja undirstrika að
allt væru þetta hugmyndir sem
ætti eftir að taka afstöðu til.
Þær verða ræddar í háskólaráði
í dag.
jss@frettabladid.is
jólin koma
● áramótagreiðslur
Anja Ríkey Jakobsdóttir:
▲
SÍÐUR 28 til 31
Fær lánaðan
rauðan bol
tíska o.fl.
● orlofshús í minni mástungu
Kolbrún Ásgrímsdóttir:
▲
SÍÐUR 30 og 31
Til Kanarí
um jólin
ferðir o.fl.
Opið til kl. 22 í kvöld
dagar til
jóla6
KÓLNANDI VEÐUR Í dag og næstu
daga. Hann verður svalur í borginni og
reyndar víðar. Auðvelt er að klæða þennan
kulda af sér með sjálfu föðurlandinu. Hlýn-
ar á sunnudagskvöld. Sjá síðu 6
AÐHALD Í HÁSKÓLANUM
Ramminn gerir ráð fyrir 5.200 nemendum árið 2004 í Háskóla íslands. Ef miðað er við
óbreytta aðsókn mun fjöldi nemenda fara í 5.700–5.800 ef ekki verður gripið til fjölda-
takmarkana í Háskólanum.
Takmarka aðgang
í sparnaðarskyni
Fjöldatakmarkanir nemenda með inntökuprófum eru til athugunar hjá
stjórnendum Háskóla Íslands. Einnig er til umræðu að taka ekki ný-
nema inn eftir áramót, til að reyna að vera innan ramma fjárlaga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Meðallestur 25-49
Höfuðborgarsvæðið
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í okt. ‘03
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
75%
56%
DESEMBER Í REYKJAVÍK Veðurblíða var í Reykjavík í gær og ef ekki væru jólaljós og skreytingar til að lýsa upp skammdegið væri fátt sem benti til að aðeins um vika sé til jóla. Veð-
ur á að kólna í dag og næstu daga en síðan á að hlýna á ný. Hinar gömlu og glæstu byggingar endurspeglast skemmtilega í Tjörninni og litirnir á himnum hjálpast við að gera
hjarta borgarinnar að listaverki.
Rúmfastir sjúklingar:
Uggandi
HEIMAHJÚKRUN Skjólstæðingar
heimahjúkrunar sjá fram á neyð ef
tugir starfsmanna hætta vegna
ágreinings um aksturskjör.
Sjá síður 20 og 21