Fréttablaðið - 18.12.2003, Blaðsíða 12
12 18. desember 2003 FIMMTUDAGUR
■ Evrópa
KASTAV HEILSAR SKJÖLDU
Moshe Kastav, forseti Ísraels, sem þessa
dagana er í opinberri heimsókn í Kína,
notaði tækifærið til þess að heilsa upp á
hana Skjöldu, en hún er meðal hundruða
kúa á kínversk/ísraelsku kúabúi í nágrenni
Peking. Forsetinn lét duga að klappa kusu.
Fulltrúar olíufélaganna á sáttafundum með Samkeppnisstofnun:
Ekki óskað eftir fresti
OLÍUFÉLÖGIN Olíufélögin hafa ekki
óskað formlega eftir lengri frest
til að skila andmælum vegna sein-
ni frumskýrslu Samkeppnisstofn-
unar um meint samráð félaganna.
Guðmundur Sigurðsson, for-
stöðumaður samkeppnissviðs
Samkeppnisstofnunar, segir að
vegna þessa geti hann ekki svarað
því hvort fresturinn verði lengd-
ur, það fari allt eftir því hvaða for-
sendur liggi að baki beiðninni ef
hún berist. Eins og staðan sé í dag
beri olíufélögunum að skila at-
hugasemdum fyrir 15. febrúar.
Heimildir Fréttablaðsins
herma að undanfarna daga hafi
fulltrúar olíufélaganna fundað
með Samkeppnisstofnun um málið
í þeim tilgangi að reyna að koma á
sáttum. Helst hefur verið rætt um
hugsanlegar sektir en samkvæmt
samkeppnislögum geta þær numið
frá 50.000 króna upp í 40 milljónir
króna eða meira. Sektir mega þó
ekki vera hærri en sem nemur
10% af veltu fyrirtækis. Olíu-
félögin munu vilja semja um
ákveðna tölu því ef sektin yrði til
að mynda 10% af veltu þeirra
gætu hún numið nokkrum millj-
örðum króna. ■
Minntust flugs
Wright-bræðra
Þess var minnst í gær að hundrað ár eru liðin frá fyrsta mannaða flugi í
heiminum. Til stóð að fljúga eftirlíkingu af fyrstu flugvélinni sem flogið
var. Því varð að fresta þar sem veður var of vindasamt.
FLUG Flugáhugamenn um víða ver-
öld minntust þess í gær að hund-
rað ár eru liðin frá fyrsta mann-
aða flugi í heiminum, en þá flugu
Wright-bræðurnir, Wilbur og Or-
ville, flugvél sinni í fyrsta skipti í
Djöfladrápshæðum nálægt Kitty
Hawk í Norður-Karólínu í Banda-
ríkjunum. Það var Orville sem var
við stjórn í fyrsta fluginu og tókst
honum að fljúga vélinni yfir þrjá-
tíu metra á tólf sekúndum.
Til stóð að fljúga eftirlíkingu
af flugvélinni á sama stað í gær,
en vegna óhagstæðs veður var
fluginu frestað og þess beðið að
veður gengi niður. Meðal þeirra
sem biðu spenntir var George W.
Bush Bandaríkjaforseti og geim-
fararnir Neil Armstrong, Buzz
Aldrin og John Glenn auk leikar-
ans John Travolta. Á öðrum stöð-
um í heiminum, allt frá Indlandi
til Bretlands, var ýmislegt gert til
að minnast tímamótanna.
Allt frá upphafi hefur manninn
dreymt um að fljúga. Það sýna til
dæmis hellismyndir af fljúgandi
verum og gríska goðsögnin um
flug Íkarusar að ógleymdum
teikningum Leonardos da Vinci af
vængjuðum farartækjum á
fimmtándu öld. Það var því langur
tími sem leið þar til draumurinn
rættist með áðurnefndu flugi
Wright-bræðra þann 17. desem-
ber árið 1903 og þó það væri stutt
þá átti það eftir að breyta miklu.
Þróunin í fluginu var ótrúlega
hröð á upphafsárunum og þann
25. júlí árið 1909 varð Frakkinn
Louis Bleriot fyrstur manna til að
fljúga á flugvél yfir Ermasundið.
Hann heillaðist af fluginu eftir að
hafa séð Wright-bræður fljúga í
Le Mans og hóf fljótlega eftir það
smíði vélarinnar sem hann flaug
yfir Ermasund. Vél hans átti eftir
að verða fyrirmyndin að framtíð-
arhönnun flugvéla.
Tveimur áratugum síðar flaug
Charles Lindbergh í einum áfanga
yfir Atlantshafið, frá New York til
Parísar, á flugvél sinni The Spirit
of St Louis. Ferðin tók tæpar 34
klukkustundir og hreppti Lind-
bergh bæði slyddu og þoku á leið-
inni.
Konur létu fljótlega að sér
kveða í fluginu og árið 1930 flaug
Amy Johnson einsömul frá
Englandi til Ástralíu, fyrst kven-
na. Flugvélin hét Gypsy Moth og
tók ferðin nítján daga. Tveimur
árum síðar varð Amelia Earhart
fyrst kvenna til að fljúga ein yfir
Atlandshafið. Báðar fórust þær í
flugslysum, Earhart árið 1937 og
Johnson 1941.
Í lok fyrri heimsstyrjaldarinn-
ar sagði Orville Wright: „Tilkoma
flugvélarinnar hefur gert stríðið
svo skelfilegt að ég efast um að
nokkur þjóð vilji hefja annað.“
Áratug síðar háðu Bretar og Þjóð-
verjar „orrustuna um Bretland“
en upp frá því hefur flugvélin
spilað stórt hlutverk sem dráps-
tæki í styrjöldum.
Heimsbyggðin á Sir Frank
Whittle mikið að þakka en hann
fann upp hreyfilinn sem lagði
grunninn að flugrekstri nútímans
með stærri og hraðskreiðari flug-
vélum og blómstrandi flugvéla-
iðnaði með Boeing 707 í broddi
fylkingar. Henni var fyrst flogið
árið 1954 og þremur árum síðar
var farið að nota hana við farþega-
flug. Síðan hefur þróunin verið
ótrúlega ör og manninum tekist
það sem engum hefði órað fyrir í
upphafi, að kljúfa sjálfan hljóð-
múrinn og skjóta mönnuðum geim-
förum út í geiminn.
erlingur@frettabladid.is
RÉÐUST Á KENNARANN Sex
pólskir unglingar hafa verið
dæmdir til 20 tíma samfélags-
þjónustu hver fyrir að ráðast á
kennara sinn. Málið hefur vakið
miklar umræður um uppeldi
barna, sérstaklega eftir að
myndbandsupptökur af árás
unglinganna voru sýndar í sjón-
varpinu.
EYÐILEGGI VOPN SÍN Clifford
Bond, sendiherra Bandaríkjanna
í Bosníu, hvatti Bosníu-Serba til
að eyðileggja vopn sín frekar en
að selja þau. Með því mætti
koma í veg fyrir að vopnin end-
uðu í höndum hryðjuverka-
manna. Ummælin lét Bond falla
eftir fund með Dragan Miker-
evic, forsætisráðherra Bosníu-
Serba.
Sigurstjarnan,
Bláu húsin Fákafeni, s. 588-4545
Opið til kl. 21.00
öll kvöld fram að jólum
Ekta pelsar, mokkajakkar
og rúskinnsúlpur á ótrúlegu verði
Jólabomban
Leikföng, púðar,
rúmteppi, dúkar,
styttur og ljós
Hver einasti hlutur á
20-50%
afslætti
MILLJÓNIR FARÞEGA Á hverj-
um degi stíga um 12 þúsund
farþegar víðs vegar um heim
um borð í loftfar sem er skráð á
Íslandi, eða um 4,4 milljónir
farþega á hverju ári.
MIKIL AUKNING FLUGVÉLA Á
tíu árum hefur þungum flugvél-
um skráðum á Íslandi fjölgað úr
24 í 67. Fjöldi þeirra hefur því
meira en tvöfaldast á þessum
tíma. Um þessar mundir er verið
að skrá fimm þungar flugvélar
til viðbótar og því stutt í að þær
verði 72 í íslenska flotanum.
MIKIL FLUGUMFERÐ Fjöldi
flugvéla yfir N-Atlantshafið
hefur aukist mikið á undanförn-
um árum og er nú um eitt þús-
und á dag. Um 30% þeirrar um-
ferðar fer um íslenska flug-
stjórnarsvæðið.
BÚIST VIÐ AUKNINGU Búist er
við því að flugumferð í heimin-
um muni tvöfaldast á næstu
15–20 árum sem þýðir að fjöldi
flugvéla sem fara um íslenska
flugstjórnarsvæðið gæti orðið
um 160 þúsund árið 2020.
EFTIRLÍKINGIN AF FLUGVÉL WRIGHT-BRÆÐRA
Eftirlíkingin af Wright Flyer, flugvél Wright-bræða, bíður hér flugtaks í Djöfladrápshæðum. Til stóð að flugmaðurinn Kevin Kochersberger
flygi flugvélinni í gær en fresta þurfti flugi vegna veðurs.
OLÍUFÉLÖGIN
Fulltrúar olíufélaganna funduðu með
Samkeppnisstofnun um málið í því
augnamiði að ná sáttum.
Íslenskum flugvélum fjölgað úr 24 í 67 á áratug:
100 ár frá fyrsta fluginu
FLUG Flugmálastjórn tók saman
upplýsingar um flug með tengsl
við Ísland í tilefni af því að
hundrað ár eru liðin frá fyrsta
fluginu.