Fréttablaðið - 18.12.2003, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 18.12.2003, Blaðsíða 26
26 18. desember 2003 FIMMTUDAGUR ■ Afmæli ■ Andlát Orrustunni um Verdun, lengstuog einni blóðugustu orrustu fyrri heimsstyrjaldarinnar, lauk þennan dag árið 1916. Þann 21. febrúar árið 1916 réðst þýskur her, undir stjórn Er- ich von Falkenhayn herforingja, á frönsku borgina Verdun, rétt aust- ur af París. Fyrir utan borgina voru virkin Hardaumont og Doua- mont. Þau voru ekki mikil fyrir- staða og var þýski herinn fljótur að ná valdi á þeim. Frakkar snerust til varnar undir stjórn Henri Pétain hers- höfðingja og úr varð ein blóðug- asta orrusta sögunnar. Þúsundir hermanna féllu á hverjum degi. Þann 1. júlí 1916 snerust Bret- ar til varnar við Somme-fljót og sömu sögu var að segja af Brusilov við austurvígstöðvarnar í Rússlandi. Fyrir vikið léttist pressan á franska hernum við Verdun. Um miðjan desember hafði franski herinn unnið aftur svæði sem hann hafði tapað á fyrstu dögum orrustunnar. Þegar orrustunni um Verdun síðan loks lauk þann 18. desember, með frönskum sigri, höfðu her- menn hleypt af um 23 milljónum skota. Um 650 þúsund manns létu lífið á þeim átta mánuðum sem bardaginn stóð. ■ KEITH RICHARDS Rokkarinn eilífi úr Rolling Stones er sextugur í dag. 18. desember ■ Þetta gerðist 1787 New Jersey er þriðja ríkið til að viðurkenna bandarísku stjórnar- skrána. 1898 Nýtt hraðamet á bíl er sett, 63 kílómetrar á klukkustund. 1940 Adolf Hitler skrifar undir leyni- lega skipun um að nasistar ráð- ist inn í Sovétríkin. Aðgerðin Barbarossa hófst í júní árið eftir. 1956 Japanir fá inngöngu í Samein- uðu þjóðunum. 1965 Kenneth LeBel stekkur yfir sautján tunnur á skautum. 1969 Breska ríkið afnemur dauðarefs- ingar fyrir morð. 1970 Skilnaður verður löglegur á Ítalíu. 1997 Gamanleikarinn Chris Farley finnst látinn í íbúð sinni. Hann var 33 ára. ORUSTAN UM VERDUN Um 650 þúsund manns létu lífið í orust- unni við Verdun. Orrustunni um Verdun lýkur ■ Blóðugasta bardaga fyrri heimsstyrjald- arinnar lauk þennan dag fyrir 87 árum. 18. desember 1916 Ástkær faðir okkar, afi og bróðir Halldór Halldórsson (Dóri) frá Svanahlíð Akranesi verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn 19. desember kl.14.00. Sævar Már Halldórsson Kolbrún Harpa Halldórsdóttir Inga Dóra Halldórsdóttir Heimir Berg Halldórsson Andri Már Halldórsson Davíð Þór Halldórsson og systkini hins látna. Lyfjaframleiðandinn Deltaveitti Íþróttasambandi fatl- aðra fjárstyrk að upphæð 250 þús- und krónur í stað þess að senda viðskiptavinum fyrirtækisins jólakort þetta árið. Delta vill með þessu framlagi leggja sitt af mörkum til að styrkja hið mikla starf sem fram fer innan Íþrótta- sambands fatlaðra. Aðildarfélög Íþróttasambands fatlaðra eru nú 22 talsins víðs vegar um landið. ■ STYRKURINN VEITTUR Harpa Leifsdóttir, sviðsstjóri markaðs- sviðs Delta, afhendir formanni Íþrótta- sambands fatlaðra, Sveini Áka Lúðvíks- syni, styrkinn fyrir hönd Delta. Styrkir Íþróttasamband fatlaðra HEIMIR SINDRASON Vill samning á milli tannlækna og Trygg- ingastofnunar og að heilbrigðisyfirvöld líti á tennur sem hluta af líkamanum. ??? Hver? Fyrst og fremst tannlæknir en kosinn formaður Tannlæknafélags Íslands næstu 2 árin. ??? Hvar? Á tannlæknastofu Valhöll, Háaleitisbraut 1. ??? Hvaðan? Reykvíkingur, en ættaður að austan. ??? Hvað? Íslenskar tannlækningar eru af hæsta gæðaflokki, ég vil að stéttin fái að njóta sannmælis, hún á það skilið. ??? Hvers vegna? Í dag er meirihluti barna með lítið eða ekkert skemmdar tennur og elsta kyn- slóðin, öfugt við það sem áður var, að mestu leyti tennt vegna frábærrar frammistöðu íslenskra tannlækna. ??? Hvernig? Með aukinni samvinnu tannlækna og heilbrigðisyfirvalda og aukinni þátttöku hins opinbera í tannlækningum og heilsugæslu tanna er hægt að lækka kostnað íslenskra heimila við tannlækn- ingar. ??? Hvenær? Helst í gær. Það vill svo skemmtilega til aðaðalframkvæmdastjóri hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum er að bjóða í kvöldverð í kvöld og það er á dagskránni að fara þangað,“ segir Vilhjálmur Egilsson hag- fræðingur, sem er 51 árs í dag. „Ég ætla nú ekki að segja þeim frá því að ég eigi afmæli, en við munum fá góðan mat og þetta verður skemmtilegur kvöldverð- ur í hópi samstarfsmanna.“ Vilhjálmur starfar nú sem fulltrúi Norðurlanda og Eystr- asaltslanda í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Was- hington „Það er búið að vera mjög áhugavert að kynnast þess- ari stofnun innan frá og taka þátt í ákvarðanatöku sjóðsins.“ Hann segir að kjördæmi hans hafi þá sérstöðu að vera þau lönd sem reyni að halda sjóðnum við sitt upphaflega hlutverk og líti á málin óháð stórveldahagsmun- um. Bráðlega kemur hann aftur heim, því hans bíður staða ráðu- neytisstjóra í sjávarútvegsráðu- neytinu. „Ég kem heim þann 10. janúar,“ segir Vilhjálmur. „Síð- asti vinnudagur minn er þann 9. og svo reikna ég með að mæta strax 12. janúar í nýtt starf mitt í sjávarútvegsráðuneytinu.“ Það er því ljóst að hann ætlar ekki að taka sér langt hlé á milli starfa. „Ég hlakka mikið til að verða ráðuneytisstjóri. Þetta er vett- vangur sem ég þekki vel úr öðr- um áttum.“ Enda hefur hann set- ið í sjávarútvegsnefnd Alþingis, komið að endurskoðun að stjórn fiskveiða og var stjórnarformað- ur fiskvinnslufyrirtækis á Sauð- árkróki í mörg ár. Eftirminnilegasta afmæli Vil- hjálms er þegar hann varð fer- tugur. Þá var hann þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn en leyfði sér að fara út að borða með konu sinni í tilefni dagsins. „Það var við manninn mælt að ég var nýlega farinn þegar einn þingmaður stóð upp og byrjaði að auglýsa eftir mér úr ræðustól þar sem var verið að ræða efna- hags- og viðskiptamál.“ ■ ■ Persónan ■ Jarðarfarir 10.30 Deb Kumar Gurung verður jarð- sunginn frá Fossvogskapellu. 13.30 Guðbjartur Ólafur Ólason frá Bíldudal, Skipholti 6, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju. 13.30 Rósa Guðnadóttir, frá Eyjum í Kjós, verður jarðsungin frá Foss- vogskapellu. 13.30 Þórunn Marta Tómasdóttir, frá Barkarstöðum í Fljótshlíð, verður jarðsungin frá Bústaðarkirkju. 15.00 Haukur Pétursson múrarameist- ari, Aðallandi 1, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Grensáskirkju. Benedikt Ólafsson, Hvassaleiti 58, lést mánudaginn 15. desember. Sigríður Pétursdóttir, frá Laugum í Súg- andafirði, síðast búsett á Nönnugötu 8, Reykjavík, lést sunnudaginn 14. desem- ber. Þórir Sigtryggsson, Hrafnistu, Hafnar- firði, lést mánudaginn 15. desember. Sigrún Arthursdóttir, Orrahólum 7, Reykjavík, lést sunnudaginn 14. desem- ber. Stefán Hallgrímsson, Hrafnistu, Hafnar- firði, lést mánudaginn 15. desember. Friðbjörg Ebenesersdóttir, dvalarheim- ilinu Grund, áður Rauðalæk 48, Reykja- vík, lést föstudaginn 12. desember. Sigríður Haraldsdóttir, hússtjórnar- kennari, lést aðfaranótt þriðjudagsins 16. desember. Þorsteinn Gunnarsson, leikari og arki- tekt, 63 ára. Ingi Sigurðsson, fv. bæjarstjóri í Vest- manneyjum, 35 ára. VILHJÁLMUR EGILSSON Er boðið í mat til aðalframkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í kvöld. Heldur sig utan stórveldapots Stefán Hallgrímsson Hrafnistu, Hafnarfirði, lést á hjúkrunardeild Hrafnistu mánudaginn 15. desember. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, föstudaginn 19. desember kl. 15.00. Aðstandendur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.