Fréttablaðið - 18.12.2003, Blaðsíða 4
4 18. desember 2003 FIMMTUDAGUR
Hvað finnst þér um jólafrí
þingmanna?
Spurning dagsins í dag:
Óttastu að fyrirhugaður niðurskurður á
Landspítalanum eigi eftir að bitna á
þér eða þínum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
12%
79%
Mátulegt
9%Of stutt
Of langt
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
■ Lögreglufréttir
Bakslag í viðræður um stjórnarskrá:
Leystust upp í deilum
KABÚL, AP Vonir manna um árangur
af ráðstefnu um stjórnarskrá fyrir
Afganistan biðu hnekki í gær þegar
fulltrúar á henni deildu hart og
skiptust á ásökunum.
Deilurnar í gær komu á óvart
eftir að fyrstu þrír dagar ráðstefn-
unnar höfðu farið friðsamlega
fram. Fundarhöldin hófust með
harðorðri ræðu Malalai Joya, full-
trúa Farah-héraðs í vesturhluta
landsins, sem gagnrýndi mikil áhrif
Burhanuddins Rabbani, fyrrum for-
sætisráðherra, og Abduls Rasul
Sayyaf, mjög íhaldssams múslima.
Báðir eru í forystuhlutverkum á
ráðstefnunni. Hún spurði hvers
vegna þessir menn hefðu verið
valdir til áhrifa. „Að mínu áliti ættu
þeir frekar að vera dregnir fyrir
dómstól.“ Joya þagnaði ekki fyrr en
slökkt var á hljóðnema hennar.
Harðlínumenn brugðust harka-
lega við ummælum Joya, kölluðu
hana kommúnista og kröfðust þess
að henni væri vísað af ráðstefnunni.
Deginum áður höfðu kvenfulltrúar
á ráðstefnunni kvartað undan því að
vera hunsaðir.
Margir fulltrúar vilja taka upp
valdamikið embætti forsætisráð-
herra til að draga úr völdum forset-
ans og hefur verið deilt um það fyr-
irkomulag. ■
Yfirstjórn RÚV heldur
fólki á verktakalaunum
Fyrrverandi verktaki hjá Ríkisútvarpinu segir að stjórnendur stofnunarinnar virðist dansa í
kringum skattalöggjöfina. Verktakar eru réttlausir í veikindum og hafa ekki orlofsrétt. Ólöglegt
er að fólk í fullu starfi sé á verktakalaunum.
FJÖLMIÐLAR Starfsmenn Skattstofu
Reykjavíkur eru þessa dagana að
rannsaka launagreiðslur til starfs-
manna Ríkisútvarpsins með það
fyrir augum að finna út hve marg-
ir séu þar á verktakalaunum. Svo
virðist sem æðstu stjórnendur
RÚV hafi skipulega haldið starfs-
fólki á verktakalaunum þótt slíkt
sé ólöglegt þegar um fullt starf er
að ræða. Á föstudag fengu verk-
takar hjá RÚV bréf frá skattinum
þar sem dæmi eru
um að starfsmaður
hafi verið krafinn
um hundruð þús-
unda í skattgreiðsl-
ur þar sem sýnt
þykir að þeir eigi
með réttu að vera á hefðbundnum
launakjörum og greiða skatt mán-
aðarlega. Í sumum tilvikum hefur
fólki verið haldið á verktakalaun-
um um árabil.
Algengt er hjá RÚV að starfs-
fólk sé ekki fastráðið en sé þess í
stað á verktakalaunum sem þýðir
að réttindi þeirra eru mun minni
en gengur og gerist þegar fólk er
fastráðið og á launaskrá. Þannig er
veikindaréttur enginn og fólk
ávinnur sér ekki rétt til orlofs eða
lífeyrisréttinda á sama hátt og al-
mennir launamenn. Verktakar hjá
RÚV hafa sumir óskað eftir því að
fá fastráðningu en mætt þar
tregðu yfirmanna.
Þetta mál kom upp á yfirborðið
þegar Hjálmar Hjálmarsson
„ekkifréttamaður“ sem starfað
hefur sem verktaki hjá Rás 2 sagði
starfi sínu lausu á dögunum þar
sem hann fékk ekki fastráðningu
þrátt fyrir að eiga að baki langan
starfsaldur hjá Ríkisútvarpinu.
Þetta kom fram í viðtali við Hjálm-
ar í helgarútgáfu Fréttablaðsins.
Jóhann Hauksson, dagskrárstjóri
Rásar 2, staðfesti í greininni að
viðtekið sé að fjöldi starfsmanna
RÚV hjá Útvarpinu og Sjónvarp-
inu sé á verktakasamningum þrátt
fyrir að vinna fulla vinnu. Þar vís-
aði hann til þess að hann hefði yfir-
menn. Ekki er annað að skilja en að
Jóhann vísi til Dóru Ingvadóttur,
f r a m k v æ m d a -
stjóra Útvarps, og
Markúsar Arnar
Antonssonar út-
varpsstjóra.
„Ég er ekki sér-
fróður um skatta-
mál en sé ekki bet-
ur en að Rás 2 sé
að dansa í kring-
um skattalöggjöf-
ina til að ná niður
kostnaði við rekst-
urinn,“ segir
Hjálmar sem hafði
fyrir því munnlegt
loforð að fá launasamning. Hann
fékk einu sinni útborgað sem slík-
ur en var síðan kippt út af launa-
skrá og því borið við að yfirboðar-
ar hans sættu sig ekki við þetta
fyrirkomulag.
Með því að hafa starfsfólk á
verktakakjörum sparast nokkuð í
mannahaldi þar sem útgjöld eru
einungis vegna þess tíma sem unn-
ið er. Þá þarf ekki að greiða laun í
veikindum þar sem launþeginn
verður sjálfur að taka skellinn og
vera launalaus. Á móti kemur að
verktakar geta dregið ýmsan út-
lagðan kostnað frá verktaka-
greiðslum og þannig haldið niðri
sköttum.
Mál þetta kann að draga dilk á
eftir sér því launagreiðanda er
óheimilt að halda starfsmönnum í
fullu starfi utan launaskrár með
því að skrá þá sem verktaka. Því
kann svo að fara að stofnunin verði
að greiða að hluta það tjón sem rík-
ið hefur orðið fyrir vegna verk-
takanna.
rt@frettabladid.is
Vextir í Noregi:
Sjöunda
lækkunin
ÓSLÓ, AP Seðlabanki Noregs lækk-
aði vexti sínu um fjórðung úr
prósenti í gær og nema þeir nú
2,25%. Þetta er sjöunda vaxta-
lækkun bankans það sem af er
árinu. Fyrir ári voru vextir í Nor-
egi með því hæsta sem gerðist í
iðnríkjum.
Norski seðlabankinn, líkt og sá
íslenski, beitir vöxtum sínum til
að ná markmiði sínu um að verð-
bólga sé undir 2,5%.
Stjórnendur bankans sögðu
við vaxtalækkunina í gær að
meiri líkur væru á að verðbólga
yrði undir 2,5% en yfir þrátt
fyrir vaxtalækkunina. ■
Á LEIÐ TIL FUNDAR
David Trimble, sem var í forsæti síðustu
heimastjórnar Norður-Írlands, hélt á fundi
forsætisráðherra Írlands og Bretlands í
gær.
Norður-Írland:
Spilað úr
kosningunum
LONDON, AP Forsætisráðherrar
Bretlands og Írlands funduðu með
fulltrúum þriggja stærstu stjórn-
málaflokka Norður-Írlands í gær
til að ræða um hvort hægt væri að
koma á nýju valdaskiptakerfi og
mynda starfhæfa ríkisstjórn.
Horfurnar eru ekki góðar þar
sem flokkarnir á sitt hvorum enda
pólitíska litrófsins, Sinn Fein og
Sambandssinnar undir forystu
Ians Paisley, eru tveir stærstu
flokkar norður-írska þingsins.
Sambandssinnar hafa neitað að
vinna með Sinn Fein. Paisley heit-
ir þó þátttöku í viðræðum í
Belfast í næsta mánuði. ■
Linda Blöndal, dagskrárgerðarmaður Ríkisútvarpsins:
Ég er gerviverktaki
FJÖLMIÐLAR Linda Blöndal, dag-
skrárgerðarmaður á Rás 2, er einn
þeirra starfsmanna Ríkisútvarpsins
sem fengu bréf frá Skattstjóranum
í Reykjavík á föstudaginn síðastlið-
inn. Linda segir að þar hafi henni
verið tilkynnt um álagningu upp á
rúmar 300 þúsund krónur. Ástæðan
er sú að starfsmenn skattsins höfðu
uppgötvað að Linda væri í föstu
starfi á Ríkisútvarpinu en hafi rang-
lega verið skráð sem verktaki.
„Ég er gerviverktaki og get ekki
þrætt fyrir það. Þetta er há upphæð
sem ég verð að borga en ég hef þó
frest þar til í febrúar,“ segir Linda.
Hún segir að í bréfinu felist
ákveðin tíðindi því nú virðist sem
svo að hún fari inn á launaskrá.
„Í bréfinu frá skattinum er úr-
skurður um að ég eigi að vera laun-
þegi en ég hef enn ekki fengið um
það tilkynningu frá stofnuninni,“
segir Linda.
Hún segir að eftir að skatturinn
fór að rannsaka verktöku hjá Ríkis-
útvarpinu hafi fólk spurst fyrir um
það hvort stofnunin myndi svara
fyrir alla.
„Mér skilst að hver og einn
starfsmaður eigi að svara fyrir sig
en stofnunin muni eingöngu svara
sem launagreiðandi,“ segir Linda. ■
LINDA BLÖNDAL
Fékk bréf frá skattinum í seinustu viku um
að hún væri ranglega skráð sem verktaki.
RÍKISÚTVARPIÐ
Ein ríkisstofnun rannsakar aðra nú þegar starfsmenn skattsins eru að leita uppi verktaka í fullu starfi.
DÓRA
INGVADÓTTIR
Fer með fram-
kvæmdastjórn á
Útvarpinu og þar
með starfs-
mannamál.
■
Í sumum tilvik-
um hefur fólki
verið haldið á
verktakalaun-
um um árabil.
HJÁLMAR
HJÁLMARSSON
Sætti sig ekki við
að vera verktaki og
fékk loforð um
launasamning. Það
stóð ekki.
MARKÚS ÖRN
ANTONSSON
Ábyrgur fyrir því
að starfsmönnum
hefur verið neitað
um launa-
samninga.
FRÁ RÁÐSTEFNUNNI
Fulltrúi á stjórnarskrárráðstefnunni
í Kabúl talar í farsíma. Fundurinn leystist
upp í deilum um menn og málefni.
ÞRJÁR MILLJÓNIR FYRIR MÁLÆÐI
Yfir 600 ökumenn hafa verið
kærðir fyrir að nota farsíma í
akstri það sem af er árinu. 186
voru teknir í Reykjavík. Sekt fyr-
ir brot af þessu tagi er 5000 krón-
ur og heildarupphæðin því rúmar
þrjár milljónir króna. Að sögn
Harðar Jóhannessonar, yfir-
lögregluþjóns í Reykjavík, hefur
innheimta sektanna gengið vel.