Fréttablaðið - 18.12.2003, Blaðsíða 46
18. desember 2003 FIMMTUDAGUR
Hin umdeilda kvikmyndMartin Scorsese, The Last
Temptation of Christ frá árinu
1988, er það sjónvarpsefni sem
mest var kvartað yfir á síðasta
áratug í Bretlandi.
Samkvæmt tölum Breska
sjónvarpsráðsins kvörtuðu
rúmlega 1.500 manns yfir
myndinni á þessu tímabili, en í
henni sést Kristur njóta ásta
með Maríu Magdalenu. Myndin
var hátt fyrir ofan heimildar-
mynd um barnaklám en 922 ein-
staklingar sáu ástæðu til að
hringja og kvarta yfir henni.
Það sem vekur athygli varð-
andi kvartanir er að langflestar
þeirra voru hringdar inn áður
en myndin var sýnd. Aðeins
10% kvartananna voru lagðar
fram af fólki sem hafði þegar
séð myndirnar.
Martin Scorsese, sem jafnan
hefur farið sínar eigin leiðir í
kvikmyndagerð, er einnig
þekktur fyrir myndir á borð við
Taxi Driver, Raging Bull og
Gangs of New York. ■
SÍÐASTA FREISTING KRISTS
1.500 sjónvarpsáhorfendur kvörtuðu yfir
myndinni í Bretlandi.
Mynd Scorsese umdeildust
Kvikmynd Clints Eastwoods,Mystic River, hefur verið til-
nefnd til átta Critics Choice-verð-
launa í Bandaríkjunum. Er hún
meðal annars tilnefnd í flokkun-
um besta myndin, besti leikstjór-
inn, besti leikari í aðalhlutverki
(Sean Penn) og bestu leikarar í
aukahlutverkum (Tim Robbins og
Marcia Gay Harden).
Myndin In America hlaut sjö
tilnefningar, Big Fish og Lost in
Translation hlutu fimm og Cold
Mountain og Hringadróttinssaga
hlutu fjórar hvor.
Critics Choice-verðlaunin eru
talin gefa góða vísbendingu um
hvaða myndir verða í Óskarsverð-
launaslagnum á næsta ári. ■
SEAN PENN
Tilnefndur sem besti leikari í aðalhlutverki.
Mystic með átta tilnefningar
Alveg eins og eldri borgararkomast ekki í jólaskapið fyrr
en Heims um ból ómar í útvarp-
inu komast rokkþyrstir ekki í
rétta skapið fyrr en rokkstöðin
X-ið 97,7 heldur sína árlegu
jólatónleika.
X-Mas hefur verið stærsti
rokkviðburður jólamánaðarins
frá árinu 1998 og þar hafa allar
helstu rokksveitir landsins komið
fram, leikið sín eigin lög og eitt
jólalag sem öllum ber skylda að
gera.
Jólahátíðin í ár byrjar í kvöld
á NASA þar sem sveitirnar Botn-
leðja, Ensími, Vínyll, Brain
Police, Bang Gang, Dr. Gunni,
Solid IV, Dogdaze, Tommy Gun
Preachers, Dáðadrengir og Hölt
Hóra leika. Sem fyrr rennur allur
ágóði til Alnæmissamtakanna.
„Við ákváðum að láta dag-
skrána byrja á óþekktari sveitum
sem skutu upp kollinum á X-inu á
þessu ári og eru í spilun,“ segir
Frosti Logason, útvarpsstjóri
stöðvarinnar. „Þetta er ramm-
íslenskt rokk og ról. Það eru svo
fleiri sveitir sem hafa verið að
koma sér á framfæri á X-inu sem
hefði verið gaman að hafa með en
það var ekki pláss fyrir alla. Til
dæmis hefði ég viljað sjá Jan
Mayen og fleiri spila meira fyrir
X-ið. Þetta er ágætis þverskurð-
ur af því sem er að gerast hjá
rokksveitum bílskúranna í dag.“
Hefð hefur myndast fyrir því
að leggja mikinn metnað í jóla-
atriðið og bíða gestir oft spenntir
eftir því hvaða jólalög verða fyr-
ir barðinu á rokkurunum en þeim
eru gefnar frjálsar hendur með
valið. „Hljómsveitir hafa lagt
metnað sinn í það að koma á
óvart og það er eitt það skemmti-
legasta við þetta. Þó svo að ein-
hverjar tvær sveitir myndu taka
saman lagið eru sveitirnar mjög
ólíkar og útsetningarnar myndu
því ekki vera þær sömu. Það yrði
kannski bara skemmtilegra, að
mínu mati,“ segir Frosti og lofar
að minnsta kosti einni „jóla-
bombu“ sem á eftir að koma
skemmtilega á óvart.
Miðaverð er minnst 700 krón-
ur en gestum er frjálst að gefa
meira til Alnæmissamtakanna.
Húsið opnar kl. 20 og er 18 ára
aldurstakmark. Forsala miða
hefst kl. 13 á NASA.
biggi@frettabladid.is
UMSJÓNARMENN X-INS
„Mér finnst það mjög viðeigandi að rokkarar styðji alnæmissamtökin,“ segir Frosti. „Þetta er allt gert í minningu Freddie Mercury, hann er
örugglega ánægður með mig, hann veit hvað ég er mikill aðdáandi.“
Jólatónleikar
X-MAS
■ Í kvöld komast rokkarar í jólaskap því
X-ið 97,7 heldur árlega jólatónleika sína
til styrktar Alnæmissamtökunum..
Lofa óvæntri jólabombu