Fréttablaðið - 18.12.2003, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
ÞRÁINS BERTELSSONAR
Jólajólajóla
www.gunnimagg . i s
Trúlofunar- og
giftingarhringir
20% afsláttur í takmarkaðan tíma
Þá er alþingismennirnir búnir aðgefa sjálfum sér jólagjafirnar og
farnir heim til sín í notalegt frí til að
hvíla sig á línuívilnunar-, eftirlauna-
og öryrkjaþrasi þar til í janúarlok og
alvörujólasveinar farnir að tínast til
byggða. Reyndar minnir veðurfarið
frekar á september eða október en
jólamánuðinn, og það bogar af manni
svitinn við að þramma niður Lauga-
veginn í vetrarfrakkanum.
SJÁLFUR tek ég virkan þátt í undir-
búningi jólanna með því að smakka á
smákökum og skenkja jólaöli í glös
fyrir fólk sem hamast við að byggja
piparkökuhús eða árita jólakort; að
öðru leyti reika ég um áhyggjulaus
og nýt aðventunnar, kátur og glaður,
eins og sá maður getur einn verið
sem er búinn að ákveða hvað hann
ætlar að gefa konunni sinni í jóla-
gjöf.
UM SÍÐUSTU helgi varð ég þeirr-
ar gæfu aðnjótandi að koma bæði í
Smáralind og Kringluna og satt að
segja varð ég alveg steinhissa á því
hvað Íslendingar eru orðnir margir.
Þegar ég var að alast upp á öldinni
sem leið var í hæsta lagi hægt að ná
saman tvö til þrjú þúsund manns á
fyrsta maí og sautjánda júní. Sam-
tals voru Íslendingar þá ekki nema
fáeinar hræður. En á síðustu árum
hefur orðið gífurleg mannfjölgun.
Smáralindin var smekkfull af fólki
og krökkt af mannskap í Kringlunni,
auk þeirra verslandi þúsunda sem
löbbuðu Laugaveginn. Ef við gáum
ekki að okkur verðum við orðin að
stórþjóð fyrr en varir með öllu því
veseni sem því fylgir.
FYRIR MÍNA PARTA hef ég þeim
mun meiri ánægju af jólunum sem
ég fæ að upplifa þau oftar. Í gamla
daga var þetta dáldið stressaður tími
í lífi mínu þar til ég náði þeim and-
lega þroska að skilja að það sem ég
kemst ekki til að gera fyrir jólin
mun ég einfaldlega gera eftir jól - ef
ég sleppi því þá ekki. Og sem verald-
arvanur maður langar mig að koma á
framfæri því góða húsráði, að allar
jólauppskriftir verða helmingi auð-
veldari og helmingi betri ef maður
bætir við þær skammti af hæfilegu
kæruleysi. ■