Fréttablaðið - 18.12.2003, Page 14
14 18. desember 2003 FIMMTUDAGUR
JÓLATRÉ PÁFANS
Jólatréð hans Jóhannesar Páls páfa er
glæsilegt eins og við sjáum hér
á myndinni, en tréð skreytir
Pálssalinn í Vatíkaninu.
SINGAPÚR, AP Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin segir að óvarkárni starfs-
manns á taívanskri rannsóknar-
stofu hafi valdið því að hann smitað-
ist af heilkenni alvarlegrar bráðrar
lungnabólgu. Maðurinn smitaðist af
veirunni þegar vökvi sem hafði
hellst úr tilraunaglasi komst í snert-
ingu við húð hans. Hann var hvorki
í hönskum né hlífðarfötum eins og
reglur gera ráð fyrir.
Taívaninn var viðstaddur ráð-
stefnu í Singapúr skömmu eftir að
hann smitaðist en hann veiktist ekki
fyrr en eftir að hann var kominn
aftur heim. Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin dregur í efa að þetta eina
tilfelli muni verða til þess að HABL
taki að breiðast út að nýju. Heil-
brigðisyfirvöld í Singapúr vildu þó
ekki taka neina áhættu og ákváðu að
setja sjötíu manns, sem gætu hafa
komist í snertingu við Taívanann, í
sóttkví. Stjórnvöld í Taívan hafa lát-
ið sér nægja að setja fjölskyldu og
samstarfsmenn hins sjúka í sóttkví
á heimilum sínum.
Bráðalungnabólga kostaði yfir
800 manns lífið fyrr á þessu ári en
talið er að um 8000 manns hafi
smitast af sjúkdómnum um heim
allan. ■
MUNUM SÆKJA ÞETTA MJÖG FAST
Halldór Björnsson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir að fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar verði nú að fara í víking um allt land og
vinna það bakland sem þarf til að kröfur um endurskoðun lífeyrisréttinda nái fram að ganga.
KJARAKRÖFUR „Þetta svarar til um
5,5% launahækkunar á ári,“
sagði Halldór Björnsson, for-
maður Starfsgreinasambands
Íslands.
Flóabandalagið og Starfs-
g r e i n a s a m -
bandið lögðu á
dögunum fram
endurskoðaða
kröfugerð. Þau
telja óhjá-
kvæmilegt að
samningar Al-
þýðusambands
Íslands og að-
i l d a r f é l a g a
þess við Sam-
tök atvinnulífs-
ins og ríkið um
l í f e y r i s s m á l
verði teknir til endurskoðunar
með það að markmiði að lífeyr-
isréttindi alls launafólks verði
samræmd við lífeyrisréttindi í
A-deild Lífeyrissjóðs starfs-
manna ríkisins.
Flóabandalagið og Starfs-
greinasambandið krefjast þess að
að lágmarksávinnsla lífeyris
hækki úr 1,4% í 1,90% á ári, að
launafólk geti farið á eftirlaun 60
ára og loks að laungreiðandi taki
ábyrgð á umsömdum lágmarkslíf-
eyrisréttindum með því að ið-
gjaldahluti launagreiðanda taki
breytingum í kjölfar árlegrar end-
urskoðunar. Hluti launagreiðanda
á almennum markaði er í dag 6%
en þyrfti að vera 11,5%, til að sam-
ræma þau við réttindi í A-deild Líf-
eyrissjóðs starfsmanna ríkisins.
„Þetta er auðvitað gjörbreyting
á kröfunum en menn setja ekki
fram svona kröfur nema þeir ætli
að fylgja þeim fast eftir. Það
hyggjumst við gera,“ sagði Hall-
dór Björnsson.
Kostnaður vegna kjarakrafna
sem samtök launafólks höfðu áður
sett fram var 25,0% til 30,0% og
var þá miðað við fjögurra ára
samningstíma. Kostnaðurinn
eykst til muna verði lífeyrisrétt-
indi launafólks á almennum mark-
aði endurskoðuð eða sem nemur
22,0% á samningstímabilinu, mið-
að við núverandi forsendur.
„Nú þurfum við að fara í víking
um allt land og brýna okkar fólk,
vinna það bakland sem til þarf svo
kröfurnar nái fram að ganga,“
sagði Halldór Björnsson.
Kjaraviðræðum Starfsgreina-
sambandsins og ríkisins hefur
verið vísað til ríkissáttasemjara
en afar fátítt er ef ekki einsdæmi
að deilum sé vísað til sáttasemj-
ara áður en eiginlegar viðræður
hefjast. Fyrsti sáttafundur hefur
verið boðaður í húsakynnum
ríkissáttasemjara á morgun.
the@frettabladid.is
„menn
setja ekki
fram svona
kröfur nema
þeir ætli að
fylgja þeim
fast eftir. Það
hyggjumst við
gera.
Grænn kostur Hagkaupa:
Söluhæsta
bókin
NEYTENDUR Bókin Grænn kostur Hag-
kaupa eftir Sólveigu Eiríksdóttur
hefur selst í yfir 10.000 eintökum í
verslunum Hagkaupa. Þessi söluár-
angur setur bókina Grænan kost
Hagkaupa í fyrsta sæti á sölulista
yfir allar bækur á Íslandi fyrir þessi
jól. Einhverra hluta vegna er fram-
angreind bók ekki á „metsölulist-
um“, sem birtir eru í fjölmiðlum,
þrátt fyrir að vera ótvírætt mest
selda bókin.
„Athyglisvert er að í kjölfar sölu-
árangurs á bókinni Grænum kosti
Hagkaupa, hefur sala á ávöxtum og
grænmeti aukist verulega í verslun-
um Hagkaupa, eða um allt að 15-
20%,“ segir í fréttatilkynningu. ■
Framkvæmdastjóri Nató:
Robertson
hættir
BRUSSEL, AP George Robertson lá-
varður lét af embætti fram-
kvæmdastjóra Nató í gær. Arftaki
Robertsons, Jaap de Hoop Scheffer,
fyrrum utanríkisráðherra Hollands,
tekur til starfa 5. janúar.
Robertson hóf störf hjá Nató í
ágúst 1999 eftir að hafa gegnt emb-
ætti varnarmálaráðherra Breta í
ríkisstjórn Tonys Blair. Eftir fjögur
viðburðarík ár hjá samtökunum
hefur hann ákveðið að venda kvæði
sínu í kross og taka að sér starf að-
stoðarstjórnarformanns hjá fjar-
skiptafyrirtækinu Cable & Wireless
PLC. ■
ROBERTSON KVEÐUR
Robertson lávarður veifar til blaðamanna.
ÞJÓÐIN ÁHYGGJUFULL
Starfsmenn Hoping-sjúkrahússins í Tapei hafa nóg að gera við að svara símhringingum frá
áhyggjufullum Taívönum eftir að starfsmaður á rannsóknarstofu greindist með
bráðalungnabólgu.
Kjarakröfurnar
tvöfaldaðar
Endurskoðun kröfugerða Flóabandalagsins og Starfsgreina-
sambandsins jafngildir 5,5% kauphækkun á ári eða 22% á
fjögurra ára samningstíma.
BREYTING Á FRAMLÖGÐUM
KRÖFUM:
• Lágmarksávinnsla lífeyris hækki úr
1,4% í 1,90% á ári,
• Eftirlaun við 60 ára aldur í stað 67 ára
• Launagreiðandi ábyrgist
lámarkslífeyrisréttindi
Singapúr setur sjötíu manns í sóttkví vegna HABL:
Starfsmaður á rann-
sóknarstofu smitaðist