Fréttablaðið - 18.12.2003, Qupperneq 38
Blaðauki Fréttablaðsins um undirbúning jólanna
jólin koma
Jólabókafló
ðið
er í Office 1
!
SKEIFUNNI
SMÁRALIND
AKUREYRI
EKKI BARA SUMAR
6M
öndlugjöfin gleymist stundum
og það er nú hálfleiðinlegt að
standa uppi á aðfangadag án
hennar. Í dag væri þess vegna
sniðugt fyrir möndlujólasveina að ganga bara
frá sínum málum og ákveða bara og kaupa
möndlugjöfina. Kannski er ekki vitlaust að
ganga úr skugga um að heil mandla fyrirfinnist
í eldhússkápnum, hana má ekki vanta.
Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: jol@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is.
■ Bakað til jóla
Afi minn átti heima í Keflavíkog við fórum í Stapann á jóla-
böll nokkur ár í röð,“ segir Regína
Ósk Óskarsdóttir söngkona. „Ég
var nú svo lítil að ég man þetta
óskýrt en þarna voru jólasveinar
og stórt jólatré sem við gengum í
kringum. Ég man líka eftir namm-
inu, maður fékk alltaf nammipoka
þegar ballið var búið og tók með
sér heim. Við fórum þrjú systkin-
in, vorum í fínum fötum, og svo
var jólaboð hjá afa á eftir.“
Regína Ósk segir að hún hafi
líka farið á jólaböll í skólanum, en
þau eru henni ekki jafn minnis-
stæð. „Það er ekki svo langt síðan
ég kom aftur í Stapann og sá þá að
þetta hús, sem mér fannst svo mik-
ill geimur, er ekki jafn stórt og það
var í minningunni.“
Regína Ósk er hálfgert jóla-
barn, á afmæli 21. desember, en
man ekki eftir því að það hafi vald-
ið henni miklu hugarangri. „Þegar
ég var yngri var alltaf haldið af-
mæli. Allar konurnar í hverfinu
voru dauðfegnar að losna við börn-
in í nokkra tíma svona rétt fyrir
jólin. En ég man að ég fékk mikið
af jólaskrauti í afmælisgjöf. Mér
fannst það bara æðislegt að fá
glerjólasveina og svoleiðis og átti
alltaf flottasta jólaskrautið á heim-
ilinu. Nú í seinni tíð gleymist af-
mælið mitt frekar. Nema ég haldi
upp á það, sem mér finnst voða
gaman að gera.“
Regína Ósk er nú með litla
fjórtán mánaða stelpu sem er að
fara á sitt fyrsta jólaball næstu
helgi. „Við förum á jólaball hjá
dagmömmunni og svo annað 4. jan-
úar hjá Samskipum. Hún er búin
að fá fínan kjól fyrir ballið og hitt-
ir örugglega jólasveina en er að-
eins of ung fyrir nammi. Það er
gaman að upplifa þetta aftur í
gegnum börnin, ég hef ekkert ver-
ið að hugsa um jólaböll undanfarin
ár.“ ■
Jólaböll fyrr og nú:
Gaman að upplifa þetta
aftur gegnum börnin
Mynd: Gunnar Karlsson fyrir Jólahefti Rauða krossins.
Vísurnar eru eftir Jóhannes úr Kötlum og teknar upp úr
bókinni Jólin koma sem gefin var út af Máli og menningu.
Hurðaskellir
Sjöundi var Hurðaskellir,
- sá var nokkuð klúr,
ef fólkið vildi í rökkrinu
fá sér vænan dúr.
Hann var ekki sérlega
hnugginn yfir því,
þó harkalega marraði
hjörunum í.
Til byggða í nótt
Fallegt stálúr með
Sircon steinum
VERÐ: 17.900
SMÁRALIND • SÍMI 555 7711
Dalbraut 3, 105 Rvk.,
s: 567 7773, og um kvöld
og helgar s: 897 2800
TILBOÐ
Í DESEM
BER Í Jóla-
pakkann
Lofthreinsi- og rakatæki
margar tegundir ilmefna
einnig lyktareyðandi
(t.d. skötulykt)
Ekki filter eða sía
Hrein þjónusta ehf.
Mörkinni 3 • s: 588 0640
Opið mán.- föst. kl. 11 til 18
laugard. kl. 11 - 15
www.casa.is
Frábærar jólagjafir
TÍGLAKÖKUR
4 1/2-5 dl hveiti
1 dl sykur
200 g smjör
BRAGÐEFNI:
2 tsk. vanillusykur
2 msk. kakó
Hveiti, sykriog smjöri
er blandað létt
saman. Skipt í
tvennt, vanillan
sett í annan helm-
inginn og kakóið í
hinn. Hvor hluti
hnoðaður og rúllaður
út í tvær lengjur. Lengjurnar
eru síðan lagðar saman þannig
að litirnir stangist á og þrýst vel
saman. Látnar kólna um stund
en síðan skornar í þunnar kökur
og bakaðar í miðjum ofni í ca. 10
mínútur. ■
REGÍNA ÓSK ÓSKARSDÓTTIR
Man alltaf eftir jólaböllunum í Stapanum.