Fréttablaðið - 18.12.2003, Síða 44

Fréttablaðið - 18.12.2003, Síða 44
■ Bakað til jóla 40 18. desember 2003 FIMMTUDAGUR Friðarstund á leikskóla: Börnin kveikja á friðarkertum Börnin á leikskólanum Ósi héldu í gær friðar-stund á aðventu með foreldrum sínum. Kveiktu þau á friðarkertum og áttu saman nota- lega stund í miðju jólaamstrinu. Á eftir var sung- ið fyrir foreldra og boðið upp á heitt súkkulaði og piparkökur sem börnin bökuðu sjálf. Fjölmargir leikskólar bjóða upp á slíkar sam- verustundir nú á aðventunni. „Við erum ekki með jólaball heldur höfum við í mörg ár haft þessa rólegu friðarstund í staðinn,“ segir Úrsúla Sigurbjörnsson, starfsmaður við leikskólann, sem er foreldrarekinn. „Við höfum svo haft þrettándagleði eftir áramót og þá er oft meira fjör.“ ■ Star Wars spilið Upplifið Stjörnustríð með þessu frábæra spili frá Ravensburger. Komið á friði og spekt í vetrarbrautinni með því að sameina góðu öflin. Hringadróttinsspilið Sérlega skemmtilegt og einfalt spil fyrir fjölskylduna. Spilið Hringadróttinsspilið um jólin og farið svo í bíó og sjáið myndina. SPILAJÓL Fást í verslunum um land allt Íslenskar leiðbeiningar VIÐ BRANDENBURGARHLIÐIÐ Í Berlín hefur jólastemningin tekið völdin. Jólavaka í Víðistaðakirkju: Notaleg stund Karlakórinn Þrestir í Hafnar-firði verður með árlega jóla- vöku í Víðistaðakirkju mánudag- inn 22. desember kl. 22. Það er til- valið í amstri jólaundirbúnings að eiga notalega stund í Víðistaða- kirkju og njóta þeirrar tónlistar sem þar verður flutt. Aðgangur er ókeypis. Auk Þrasta undir stjórn Jóns Kristins Cortez kemur fram Lúðrasveit Hafnarfjarðar undir stjórn Þorleiks Jóhannessonar, Kór Öldutúnsskóla undir stjórn Egils Friðleifssonar og nemendur Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Sr. Bragi J. Ingibergsson flytur jóla- hugvekju. ■ Normannsþinur er enn al-gengasta tegund jólatrjáa en íslensku trén, rauðgreni og þó einkum stafafura, sækja á,“ segir Steinunn Reynisdóttir, garðyrkjufræðingur í Garð- heimum. Hún telur vinsældir normannsþins stafa af því hversu barrheldin þau tré séu en segir ókostina þá að þau séu oft ansi breið neðan til en topp- urinn gisinn. „Mörgum finnst rauðgrenið fallegra í laginu, það er alið upp við íslenskar að- stæður og vöxturinn er nokkuð jafn og stafafuran ilmar vel, auk þess sem hún skreytir sig oft með könglum,“ segir hún. En hvernig skyldi eiga að með- höndla trén frá því þau eru keypt og þar til þau hafa þjónað gildi sínu? „Til að tryggja barr- heldnina er best að geyma þau úti og láta rigna á þau þegar þannig viðrar. Ef þau eru úti á svölum með þaki yfir er hægt að hella yfir þau af og til úr fötu og sumir láta þau standa í vatni, en þau ná frekar litlu upp í gegnum stofninn, nema nýtt sár sé búið til með því að saga neð- an af þeim. Sé frost þegar líður að því að tréð sé sett upp er baðkerið fyllt og tréð látið liggja þar yfir nótt í netinu. Síðan er tappinn tekinn úr kerinu, tréð reist upp og mesta vatnið hrist úr því. Sumir sleppa því að setja tréð í baðkerið en láta nægja að fara með það undir sturtu eða smúla það við bílskúrinn. Þessu næst eru 2-3 sentimetrar sagaðir neð- an af trénu til að nýtt sár mynd- ist og tálgað aðeins upp á fótinn. Sá endi er settur ofan í sjóðandi vatn í potti og tréð látið standa þar í 15 mínútur. Síðan er það sett beint í jólatrésfótinn með köldu vatni og þá fyrst er hægt að fara að skreyta!“ Steinunn segir mjög þýðing- armikið að passa að tréð skorti ekki vatn fyrstu 2-3 dagana sem það stendur í jólatrésfætinum. „Um leið og vantar vatn mynd- ast tappi í trénu. Þá dregur það ekki upp í sig rakann lengur, heldur harðnar og gránar.“ Aðspurð segir Steinunn að kýprustré í pottum séu þyrstari en venjuleg pottablóm. „Þau verða alltaf að vera rök,“ segir hún og þar með kveðjum við hana með þakklæti fyrir ráð- gjöfina. gun@frettabladid.is KÝPRUS Þarf stöðugt að vera rakt til að líða vel og vera fallegt. Jólatrén meðhöndluð: Má ekki skorta vatn fyrstu dagana NORMANNSÞINUR Vinsæll vegna barrheldninnar. RAUÐGRENI Íslensk og vel vaxin. STAFAFURA Ilmar vel og skreytir sig stundum með könglum. Í AÞENU Jólaljósin lýsa upp torg í miðborg Aþenu og búið er að koma upp skemmtigarði fyr- ir börn framan við þinghúsið. DRAUMTERTA 3 egg 1 1/2 dl sykur 1 dl kartöflumjöl 2 msk. kakó 1 tsk. lyftiduft KREM 150 g smjör 2 dl flórsykur 2 tsk. vanillusykur 1 eggjahvíta Egg og sykur eru þeytt vel sam-an. Þurrefnunum blandað sam- an og þau sett varlega út í eggja- hræruna. Deiginu hellt á plötu með bökunarpappír og bakað í um 5 mín- útur við 200 gráður. Kökunni hvolft á viskastykki eða sykri stráðan smjörpappír og látin kólna. Kremið hrært þar til það er ljóst og létt. Smurt á kökuna og hún rúll- uð upp. FRIÐARSTUND Barna og foreldra á leikskólanum Ósi. Foreldrar Elskum börnin okkar Veist þú hvar barnið þitt er í kvöld?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.