Fréttablaðið - 18.12.2003, Side 47

Fréttablaðið - 18.12.2003, Side 47
FIMMTUDAGUR 18. desember 2003 Útsölustaðir á höfuðborgarsvæðinu: Hagkaup,snyrtivörudeildir, Lyfja snyrtivörudeildir, Lyfjaval Mjódd, Apótek Iðufell, Apótek Grafarvogi, Rós snyrtistofa Kópavogi, Andorra Hafnarfirði, Sigurboginn, Clara snyrtistofa Kópavogi. Útsölustaðir um landið: Björg Akranesi, Jara Akureyri, Húsavíkurapótek, Sigga Þrastar Ísafirði, Apótek Blönduóss, Stykkishólms apótek, Stykkishólms apótek Patreksfirði, Lyfja Keflavík, Lyfja Grindavík, Lyfja Egilsstöðum, Lyfja Eskifirði, Hársn. Jónu Sigurbjartsd. Kirkjubæjarklaustri, Borgarnes apótek, Borgarnes apótek Grundarfirði, Ísafjarðar apótek, Nes apótek Norðfirði. Ástralskur maður semhringdi í lögregluna þeg- ar innbrots- þjófar ætluðu að stela kanna- bisplöntunum hans hefur ver- ið handtekinn fyrir eitur- lyfjamisferli. M a ð u r i n n , sem er 23 ára, er frá bænum Torrensville í Adelaide. Hon- um brá heldur betur í brún þegar hann sá fjóra menn brjótast inn í íbúð- ina sína. Hringdi hann í lögregl- una, sem handtók mennina er þeir voru í þann mund að stela kannabisplöntunum. Fjórmenn- ingarnir voru ákærðir fyrir innbrot og skömmu síðar var eigandi íbúðarinnar einnig ákærður fyrir að rækta sextán kannabisplöntur. ■ KANNABIS Maðurinn ræktaði 16 kannabisplöntur inni í tveimur herbergj- um heima hjá sér. Kannabisræktandi tilkynnir innbrot Skrýtnafréttin ■ Ástrali sem ræktaði kannabis hringdi í lögregluna vegna innbrotsþjófa. TÓNLIST Vefsíða sem selur hluti á uppboði á Netinu segist vera með á sölu segulband sem Bítlarnir eiga að hafa notað við upptökur árið 1976, sex árum eftir að sveit- in hætti. Talsmenn síðunnar segj- ast einnig hafa sannanir fyrir því að Bítlarnir hafi hist í Davlin Studios-hljóðverinu í Los Angeles 2. nóvember þetta árið og tekið upp fimm lög saman. George Martin á líka að hafa verið við- staddur. Samkvæmt síðunni fór allt í háaloft á meðan á upptökum stóð og ruku liðsmenn út í reiðikasti án þess að klára lögin. Því næst eiga þeir að hafa skipað upptökustjór- anum að stroka lögin út af segul- bandinu. Þannig er bandið tómt, en lagalistinn er ritaður á umslag bandsins. Samkvæmt merkimiðanum eiga týndu lögin að hafa heitið Happy Feeling, Back Home, Rockin Once Again, People of the Third World og Little Girl. Fyrrum meðeigandi Davlen Studios segist geta staðfest sög- una. Samkvæmt síðunni eiga þeir hljóðmenn sem eiga að hafa unnið með Bítlunum þennan dag að geta það líka. Samkvæmt síðunni er hitt ein- takið, sem ekki var strokað út af, í geymslu hjá Abbey Road Studio. Aðspurður kannaðist umboðsmað- ur Paul McCartney ekkert við málið. ■ BÍTLARNIR Þessi mynd var tekin árið 1967, níu árum áður en meint „endurkoma“ á að hafa átt sér stað. Komu Bítlarnir saman árið 1976? SEGULBANDIÐ Svona lítur umslag segulbandsins út sem Bítlarnir eiga að hafa hljóðritað 5 lög á árið 1976

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.