Fréttablaðið - 18.12.2003, Page 55
51FIMMTUDAGUR 18. desember 2003
Dómgæsla í körfubolta:
Þrír dómarar
KÖRFUBOLTI Al-
þjóða körfu-
knattleikssam-
bandið (FIBA)
hefur ákveðið
að taka upp
þriggja dómara
kerfi á næsta
k e p p n i s t í m a -
bili. Leikir í
keppnum á veg-
um FIBA-
Europe verða
því dæmdir af
þremur dómur-
um og er mark-
miðið með breytingunum að gera
dómgæsluna betri og fækka mis-
tökum eins og kostur er.
KKÍ hefur ekki tekið ákvörðun
um hvort íslenskur körfuknatt-
leikur fylgi í fótspor FIBA-
Europe í þessum efnum, en svo
virðist sem körfuknattleikssam-
band hvers lands hafi heimild til
að halda tveggja dómara kerfinu í
sínum keppnum. ■
■ ■ LEIKIR
19.15 Hamar og Þór Þorl. keppa í
Hveragerði í INTERSPORT-deildinni í
körfubolta.
19.15 Njarðvík keppir við Tinda-
stóll í Njarðvík í INTERSPORT-deildinni í
körfubolta.
19.15 ÍR mætir KR keppa í Selja-
skóla í INTERSPORT-deildinni í körfubolta.
19.15 Snæfell leikur við KFÍ í
Stykkishólmi í INTERSPORT-deildinni í
körfubolta.
■ ■ SJÓNVARP
16.20 Enski boltinn á Sýn. Útsend-
ing frá leik Aston Villa og Chelsea í 5.
umferð deildabikarkeppninnar.
16.30 Handboltakvöld á RÚV.
18.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er um
helstu íþróttaviðburði heima og erlendis.
18.30 Western World Soccer
Show (Heimsfótbolti West World) á Sýn.
19.00 Heimsbikarinn á skíðum á
Sýn. Nýjustu fréttir af framgöngu skíða-
manna á heimsbikarmótum.
19.30 Einvígið á Englandi á Sýn. Í
þættinum er fylgst með baráttu tveggja
liða á Hanbury Manor golfvellinum á
Englandi.
20.30 European PGA Tour 2003 á
Sýn. Þáttur um Omega Hong Kong Open.
21.30 Football Week UK (Vikan í
enska boltanum) á Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn. Fjallað er
um helstu íþróttaviðburði heima og er-
lendis.
22.30 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn.
00.00 HM 2002 á Sýn. Útsending
frá leik Brasilíumanna og Tyrkja.
GOLF Forkólfar Golfsambands Ís-
lands, GSÍ, sitja ekki auðum
höndum þrátt fyrir að vetur sé
genginn í garð heldur spýta þeir í
lófana og vinna grimmt að enn
frekari uppgangi íþróttarinnar.
Þeir eru að gefa út 150 blaðsíðna
golfblað þessa dagana og svo
hafa þeir sótt um að halda eitt
vinsælasta golfmót heims, Sol-
heim Cup, ásamt frændum okkar
í Skandinavíu.
Solheim Cup er oft kallað
Ryder Cup-keppni kvenna en þar
mætast úrvalslið Bandaríkjanna
og Evrópu en mótið fer fram á
tveggja ára fresti. Mikill áhugi er
fyrir kvennagolfi þessa dagana
og fylgdust um 100.000 manns
með síðasta móti sem fram fór í
Svíþjóð. Til marks um áhugann á
mótinu þá voru 300 blaðamenn á
síðasta Solheim Cup á meðan 100
blaðamenn fylgdust með Forseta-
bikarnum. Ákveðið verður í lok
janúar hver hreppir hnossið en ef
Skandinavíska tilboðinu verður
tekið þá mun mótið fara fram í
Svíþjóð. Ísland kæmi aftur á móti
að framkvæmd mótsins, myndi
eiga dómara og annað. Forkólfar
Golfsambandsins vonast til þess
að þátttaka þeirra í verkefninu
komi til með skila Íslandi mikilli
landkynningu sem og það komi
landinu á golfkortið.
Einnig var GSÍ að gefa út glæsi-
legt golfblað sem er 150 blaðsíður
en þetta fjórða blað ársins er jafn-
framt það stærsta og veglegasta á
árinu. GSÍ er komið í samstarf við
hið virta tímarit „Golf Monthly“ og
er að finna í íslenska blaðinu
glæsilegar greinar og viðtöl úr
Golf-mánaðarritinu í bland við ís-
lenskar greinar og sögur. Blaðinu
er dreift til allra skráðra kylfinga í
Golfsambandinu, en þeir eru yfir
10 þúsund, en einnig er hægt að
nálgast blaðið á öllum Essó-stöðv-
um. ■
Mikið að gerast hjá Golfsambandi Íslands
Vilja halda Solheim Cup með frændum okkar
HRESSIR OG KÁTIR
Það var létt yfir Herði Þorsteinssyni, Páli Ketilssyni og Júlíusi Rafnssyni er þeir kynntu nýja
golfblaðið sem og umsóknina um að halda Solheim Cup.
hvað?hvar?hvenær?
15 16 17 18 19 20 21
DESEMBER
Fimmtudagur
ÞRÍR DÓMARAR
FIBA leggur til að
þrír dómarar dæmi
leiki í framtíðinni.