Fréttablaðið - 12.02.2004, Blaðsíða 11
!
" "
#
%
#
$ # &
'() *
+
$
!
+ )( ,'( -./
0
#
.
$
! "
"
"
$ !
+
$ &+
#
1-
" )((($
2 3
+ .
"
.
#
4 3
!
"
!
# $
%
&' (
) ! !
!
# !
$
*
!
%#
)'
! +
! %
,
%# ! -
BANDARÍKIN Fuglaflensa hefur
komið upp á tveimur býlum í
Delaware í Bandaríkjunum. Yfir-
völd hafa látið farga um 72.000
kjúklingum og sett áttatíu bújarð-
ir í sóttkví. Heilbrigðisyfirvöld
segja að veiran sem fannst á býl-
unum tveimur sé af annarri teg-
und en sú sem hefur dregið nítján
manns til dauða í Víetnam og
Taílandi.
Að sögn yfirvalda verður allt
kapp lagt á að koma í veg fyrir að
sjúkdómurinn nái að breiðast út.
Alifuglabændur velta sem svarar
tugum milljarða íslenskra króna á
ári hverju og því er mikið í húfi
fyrir bandarískan landbúnað og
matvælaiðnað. Að minnsta kosti
sjö lönd hafa bannað innflutning
alifuglaafurða frá Bandaríkjun-
um. ■
HÁTÍÐARHÖLD „Hátíðinni sem hald-
in var hér þann 17. janúar var al-
gjörlega klúðrað enda aðeins
haldin fyrir fámennan klúbb eða
hirð eins og sumir kalla það,“ seg-
ir Jón Fanndal Þórðarson, versl-
unarmaður á Ísafirði, sem beitir
sér fyrir því ásamt hópi Ísfirðinga
að hátíð til minningar um aldar-
afmæli heimastjórnar verði hald-
in í júlí í sumar.
Jón Fanndal segir að fram að
hátíðinni sem
haldin var í jan-
úar hafi almenn-
ingur ævinlega
verið velkom-
inn. En þarna
hafi einungis
verið um að
ræða silkihúfur
bæjarstjórnar auk ráðherra og
þingmanna. Ísfirðingum hafi
blöskrað hvernig að þessu var
staðið og nú vilji menn rísa upp og
mótmæla með sumarhátíð.
„Menn geta leitað aftur til 1874
án þess að finna dæmi um hátíðar-
höld af þessu tagi. Almenningur
hefur fram að þessu verið vel-
kominn til svona hátíðarhalda
sem snerta alla þjóðina. Þetta er
hneyksli,“ segir Jón Fanndal.
Hann segir að boðuð hátíð í
sumar eigi að vera vegleg. Þar
verði væntanlega vegleg hátíðar-
dagskrá og þess verði farið á leit
við Ólaf Ragnar Grímsson, for-
seta Íslands og rakarason frá Ísa-
firði, að hann heiðri samkomuna
með nærveru sinni og flytji hátíð-
arræðuna.
Aðspurður um það hvort Davíð
Oddssyni forsætisráðherra verði
líka boðið segir Jón Fanndal að
hann sé vissulega velkominn en
hann hafi þó ekkert hlutverk um-
fram það að gleðjast í hópi ann-
arra gesta.
„Öll þjóðin er velkomin til há-
tíðarinnar en við ætlum ekki öðr-
um ráðamönnum en forsetanum
hlutverk,“ segir Jón Fanndal.
Aðspurður um það hvort ein-
hver hluti af hátíðardagskránni
fari fram við minnismerki sem
bæjarstjórn Ísafjarðar reisti
Hannesi Hafstein segir Jón að það
komi ekki til greina enda sé minn-
ismerkið smánarblettur á staðn-
um.
„Þetta grjót er til skammar
fyrir alla Íslendinga. Þarna er um
að ræða steinræfil sem húkir und-
ir húsvegg, engum til gleði,“ segir
Jón Fanndal. ■
SEÚL, AP Lögreglan í Suður-Kóreu
hefur handtekið 25 ára háskóla-
nema sem hélt úti heimasíðu þar
sem hann auglýsti sjálfan sig sem
leigumorðingja. Maðurinn hefur
verið ákærður fyrir samsæri um
morð.
Meðal viðskiptavina háskóla-
nemans var 22 ára kona sem
greiddi honum sem svarar tæpum
600.000 íslenskum krónum fyrir
að drepa fyrrverandi kærasta
hennar og eiginkonu hans. Leigu-
morðinginn sagðist ætla að setja á
svið umferðarslys en verknaður-
inn var aldrei framinn.
Við yfirheyrslur hjá lögreglu
sagðist háskólaneminn hafa sett
upp heimasíðuna til að geta borg-
að upp 120.000 króna lán. Hann á
yfir höfði sér allt að tíu ára fang-
elsi verði hann fundinn sekur. ■
Fuglaflensa á tveimur býlum:
72.000 fuglum fargað
Í SÓTTKVÍ
Fuglaflensa hefur greinst í kjúklingum á
tveimur býlum í Delaware í Bandaríkjun-
um.
Háskólanemi handtekinn:
Leigumorðingi
með heimasíðu
HEIMASTJÓRNARMINNISMERKIÐ
Steinninn sem er til minningar um Hannes Hafstein fær ekki háa einkunn hjá forsvars-
manni Heimastjórnarhátíðar alþýðunnar. Hér má sjá Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra
við steininn.
Ólafi og Davíð
boðið í sumar
Ísfirðingar boða Heimastjórnarhátíð alþýðunnar
í júlí í sumar. Vilja að forseti Íslands haldi
hátíðarræðuna. Þjóðin öll er sögð velkomin.
„Þetta grjót
er til skamm-
ar fyrir alla Ís-
lendinga.