Fréttablaðið - 27.02.2004, Blaðsíða 57

Fréttablaðið - 27.02.2004, Blaðsíða 57
37FÖSTUDAGUR 27. febrúar 2004 Intersport-deildin í körfuknattleik: Enn sigrar Snæfell KÖRFUBOLTI Haukar unnu sinn fimmta heimasigur í röð í Inter- sport-deildinni í körfuknattleik í gærkvöld þegar þeir tóku á móti Þór frá Þorlákshöfn á Ásvöllum. Þórsarar, sem höfðu ekki unnið í sjö útileikjum í röð fyrir leikinn, sóttu ekki gull í greipar Haukanna og töpuðu 80-76 eftir spennandi lokamínútur. Haukamenn byrjuðu betur en staðan eftir fyrsta leik- hluta var jöfn, 20-20. Þórsarar komust síðan yfir, 31-29, um mið- bik annars leikhluta en Haukar skoruðu ellefu næstu stig og leiddu í hálfleik, 40-33. Haukar náðu síðan mest tólf stiga forystu í þriðja leikhluta en Þórsurum tókst með mikilli þrautseigju að minnka muninn hægt og bítandi niður í eitt stig, 77-76, þegar tvær mínútur voru til leiksloka. Nær komust þeir ekki og Mike Manciel gulltryggði sigurinn hjá Haukum með því að skora úr tveimur víta- skotum þegar þrjár sekúndur voru til leiksloka. Manciel var stigahæstur hjá Haukum með 25 stig, Sævar Ingi Haraldsson skor- aði 19 stig, Predrag Bojovic skor- aði 11 stig, Kristinn Jónasson og Whitney Robinson skoruðu 8 stig hvor, Sigurður Einarsson skoraði 5 stig og Þórður Gunnþórsson skoraði 4 stig. Nate Brown var allt í öllu hjá Þór og skoraði 31 stig. Robert Hodgson, spilandi þjálfari Þórsara, skoraði 16 stig, Leon Brisport skoraði 15 stig, Grétar Erlendsson skoraði 10 stig og Finnur Andrésson skoraði 4 stig. Snæfell vann enn einn leikinn þegar liðið bar sigurorð af Njarð- vík, 85-71, í Stykkishólmi og er nú komið með fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar. KFÍ vann dýrmætan sigur á Breiðabliki, 95-88, í botnbaráttu- slag á Ísafirði og kom sér örlítið frá fallsæti. Tindastóll lagði ÍR-inga á Sauð- árkróki, 83-80, og hefur komið sér vel fyrir í sjötta sæti deildarinnar. Nick Boyd skoraði 32 stig og tók 15 fráköst fyrir Tindastól, Clifton Cook skoraði 15 stig og Axel Kárason og Friðrik Hreinsson skoruðu 10 stig hvor. Eugene Christopher var stigahæstur hjá ÍR með 32 stig og tók 9 fráköst, Eiríkur Önundarson skoraði 17 stig og gaf 10 stoðsendingar og Fannar Helgason skoraði 13 stig og tók 13 fráköst. ■ KÖRFUBOLTI Keflavík vann góðan útisigur á KR, 100-91, í Inter- sport-deild karla í DHL-höllinni í gærkvöldi. KR-ingar léku án Bandaríkjamannsins Josh Murray og þrátt fyrir góða bar- áttu dugði hún ekki til gegn sterkum Keflvíkingunum, sem höfðu frumkvæðið nánast allan leikinn. Var staðan í hálfleik 54- 48 Keflvíkingum í vil. Hjörtur Harðarson var maður leiksins í gær. Hann skoraði 23 stig fyrir Keflvíkinga, þar af hitti hann úr sjö af tíu þriggja stiga skotum sínum. Alls hittu Keflvíkingar úr 13 af 25 þriggja stiga skotum sínum og í því lá munurinn á liðunum því KR-ing- ar hittu aðeins úr tveimur af sautján þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Hjörtur var stigahæstur Kefl- víkinga ásamt Derrick Allen með 23 stig. Nick Bradford bætti 21 stigi í sarpinn, tók 5 frá- köst og gaf 9 stoðsendingar. Hjá KR var Steinar Kaldal mjög góður með 18 stig, 6 frá- köst, 6 stoðsendingar og 6 stolna bolta. Magni Hafsteinsson setti 18 stig til viðbótar og Jesper Sörensen var með 17 stig og 12 stoðsendingar. Leikurinn í gær var hraður og um leið ágætisskemmtun. Engu að síður var nokkuð um klaufa- leg mistök sem skrifuðust á þennan mikla hraða. Eftir sigur- inn eru Keflvíkingar nú aðeins tveimur stigum á eftir Grindvík- ingum, sem eiga leik til góða í kvöld gegn Hamri. KR-ingar sitja aftur á móti áfram í sjö- unda sæti. ■ HJÖRTUR OG STEINAR Hjörtur Harðarson, til hægri, í baráttu við Steinar Kaldal í viðureign Keflavíkur og KR í gær. Intersport-deild karla: Hjörtur hetja Keflvíkinga Gildir til 29. febrúar eða á meðan birgðir endast. 799kr 1.799kr ÚRSLIT Í GÆR Haukar - Þór Þorl. 80-76 KFÍ - Breiðablik 95-88 KR - Keflavík 91-100 Tindastóll - ÍR 83-80 Snæfell - UMFN 85-71 Staðan í Intersport-deildinni Snæfell 20 17 3 34 UMFG 19 15 4 30 Keflavík 20 14 6 28 UMFN 20 12 8 24 Haukar 20 12 8 24 Tindastóll 20 11 9 22 KR 20 10 10 20 Hamar 19 9 10 18 ÍR 20 6 14 12 KFÍ 20 5 15 10 Breiðablik 20 4 16 8 Þór Þorl. 20 4 16 8
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.