Fréttablaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 32
32 28. mars 2004 SUNNUDAGUR Í dag, 28. mars, eru 50 ár liðin frá því að leikdómarar reykvísku blaðanna stofnuðu fyrsta stéttarfélag sitt, Félag íslenskra leikdómenda, og ákváðu um leið að stofna Silfurlampann, fyrstu viðurkenninguna sem veitt var reglulega fyrir afrek í íslenskum listum. Af þessu tilefni fjallar Jón Viðar Jónsson um helstu atriðin í sögu Lampans. Verðlaunaveitingar, glamúr og gleði Hafa verðlaun og viðurkenn-ingar fyrir afrek á sviði lista og menningarstarfs eitt- hvert gildi? Skipta þau ein- hverju máli fyrir viðgang list- annna? Spurningin kemur upp nokkuð reglulega, einkum þegar mönnum þykir illa að verki staðið og verðlaun jafnvel lenda í höndum óverðugra. Hér á árum áður var Helgi Hálfdanarson einn helsti and- skoti verðlaunaveitinga í land- inu, hafnaði sjálfur Silfur- hestinum, bókmenntaverðlaun- um gagnrýnenda, þegar þeir vildu sýna honum sóma fyrir Shakespeare-þýðingarnar, og fann verðlaunastandi allt til foráttu. Ef ég man rétt talaði Helgi um að listirnar ættu að fá að þróast í friði, verðlaun og viðurkenningar væru bara til að trufla alvarlega þenkjandi lista- og fræðimenn við sínar merku iðkanir. Ef spurt er hver sé vitnis- burður sögunnar um þetta gæti hann reynst, eins og stundum vill verða, mótsagnakenndur. Þeir sem eru á móti verð- launum, geta vissulega bent á að menn eins og Shakespeare, Bach og Rembrandt hefðu ekki haft mikið að setja í reitinn „Verðlaun og viðurkenningar“ sem er sjálfsagður þáttur í „sívíi“ hvers nútímalegs lista- og fræðimanns með sjálfs- virðingu. Á hinn bóginn er staðreynd að grísku harm- leikirnir voru allir samdir til þess að vinna til verðlauna. Það er allsendis óvíst að Aiskylos, Sófókles og Evripídes hefðu nokkurn tímann skrifað stafkrók hefðu þeir ekki alltaf verið að rembast við að vinna hver annan á Dionýsosar- hátíðinni miklu í Aþenu. Hollt að hitta „fórnarlömbin“ Sjálfur hef ég lengi verið mikill fylgismaður verðlauna. Ég hef nokkrum sinnum – þó alls ekki nógu oft – tekið þátt í að veita verðlaun og mun gera það með glöðu geði hvenær sem ég verð beðinn um það. Að vísu ekki nema með ákveðnum skil- yrðum sem ég skal skýra nánar. Ástæðan fyrir dálæti mínu á verðlaunum er sem sé alls ekki sú að ég trúi því að þau geri yfir- leitt nokkurt gagn fyrir list- irnar, þó að frá því kunni að vera sögulegar undan- tekningar á borð við grísku harmleikina. Almennt séð get ég ekki ímyndað mér að verðlaun skipti alvöru lista- menn nokkru einasta máli, nema þá frá hreinu fjárhagssjónarmiði eða sem auglýsing. Það er t.d. fráleitt að ímynda sér að Halldór Laxness hefði á síðari árum skrifað betri eða verri bækur en hann gerði, hefði hann aldrei fengið Nóbelsverðlaunin. Nei, ástæðan fyrir því að ég styð verðlaunaveitingar og skal aldrei ganga í lið með þeim sem eru að óskapast gegn þeim, er aðeins sú að ég veit hvað það gerir manni gott að fá að taka þátt í því að veita verðlaun. Það er alveg einstök tilfinning að fá að sitja í dómnefnd sem veit að niðurstöðunnar er beðið með mikilli eftirvæntingu, þó að mesti unaðurinn sé auðvitað að fá að afhenda verðlaunin fram- mi fyrir stórum hópi virðingar- fólks, fá að rétta þau að hinum lánsama, horfast í augu við hann á meðan myndavélarnar blossa, taka í hönd honum, faðma jafn- vel að sér og finna um leið gleði hans og auðmjúkt þakklæti streyma til sín. Þetta er ólýsanleg upplifun sem ég vildi ekki fyrir nokkurn mun hafa verið án og mun aldrei neita mér um, eigi ég kost á henni – sem hefur verið sorglega sjaldan í seinni tíð. Sérstaklega er hollt fyrir starf- andi gagnrýnendur að fá að hitta „fórnarlömbin“ öðru hvoru við kringumstæður sem þessar, því að starf þeirra er, eins og allir ættu að vita, vanþakklátt og jafnvel einmanalegt, kallar yfir þá endalausa óvild og beinlínis hatur fólks sem þeir vilja ein- ungis vel en þ u r f a þ v í miður stundum að segja k a l d a n sannleikann. Gagn- rýnandinn getur lifað lengi á þessari yndislegu stund, hún léttir lund hans og bætir geð hans og skilar sér þannig í betri og yfirvegaðri gagnrýni sem skilar sér svo aftur út í listalífið. Þó ekki sé nema v e g n a þessa tel ég verðlaunaveitingar mjög af hinu góða og vænlegar til að stuðla að heilbrigðara menningarástandi. Þegar menningarverðlaun DV voru og hétu á sínum tíma, en þau heyra nú sögunni til illu heilli, var alltaf passað upp á að birta í blaðinu myndir af hinu upphafna, að ég ekki segi „extatíska“ andartaki þegar brosmildur dómnefndarfor- maðurinn – sem var oftast fast- ur gagnrýnandi á blaðinu – rétti verðlaunagripinn að hinum útvalda; gott ef ekki eru til ein- hverjar slíkar myndir af höf- undi þessara orða. Með þessu sýndu hinir ötulu menningarrit- stjórar DV að þeir skildu hver er kjarni málsins: að það er sælla að gefa en þiggja. Brot úr óskráðri sögu Saga íslenskra menningar- verðlauna hefur ekki enn verið skráð. Að því mun þó eflaust koma en á meðan við bíðum eftir því verðum við að láta okkur nægja að rifja söguna upp í brot- um eftir því sem tilefni gefast. Eitt slíkt tilefni, og það ekki af ómerkara taginu, ber upp á daginn í dag. Fyrir nákvæmlega fimmtíu árum, þann 28. mars 1954, gerðist sá annálsverði viðburður að leikdómarar Reykjavíkurblaðanna tóku hönd- um saman og stofnuðu félag sem nefndist Félag íslenskra leik- dómenda. Því var samkvæmt félagslögum m.a. ætlað „að gæta hagsmuna og réttinda leikdómenda gagnvart leikhúsum, blöðum og tíma- ritum, sem og öðrum aðilum“, og „að stuðla að heil- brigðri og röklegri gagnrýni, er sett sé fram af menningar- legri háttprýði“ og „að vinna að auk- inni leiklistar- menningu.“ Svo mörg voru nú þau orð. En þó að m a r k i ð væri sett hátt snerist starf félagsins í þau tuttugu ár, sem það starfaði, í rauninni um aðeins eitt: veitingu Silfurlampans. Hún fór þannig fram að félagsmenn, starf- andi gagnrýnendur blaðanna, komu saman einu sinni á ári og greiddu atkvæði um besta leik nýliðins leikárs. Atkvæði voru greidd samkvæmt sérstöku stiga- kerfi og skyldi hver dómari greiða þremur leikurum atkvæði, 100, 75 og 50 stig. Stigin voru svo lögð saman og hreppti sá leikari, sem flest stig hafði hlotið, verðlaunagripinn. Lampinn féll aðeins úr eitt ár, 1960, en þá þótti enginn leikari hafa staðið sig nógu vel til að verðskulda heiðurinn. HANDHAFI SILFURLAMPA Helga Bachmann fékk Lampann árið 1968 fyrir túlkun sína á Heddu Gabler í samnefndu leikriti eftir Ibsen. Hún var ein þriggja leikkvenna sem fengu Lampann. VERÐLAUNAAFHENDING Sigurður Grímsson, fyrsti formaður Félags íslenskra leikdómenda, afhendir Haraldi Björns- syni fyrsta Silfurlampann árið 1954 fyrir túlkun hans á prófessor Klenow í Sá sterkasti eftir Karen Bramson. SILFURLAMPINN Verðlaunagripurinn – Silfurlampinn – var hannaður af Leifi Kaldal gullsmið. Hann átti að vísa til gömlu grútarlampanna sem lýst höfðu upp skammdegismyrkrið á liðnum öldum. Hver vinningshafi fékk sinn Silfurlampa til eignar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.