Fréttablaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 54
54 28. mars 2004 SUNNUDAGUR Ávenjulegum frídögum reyniég oftast að komast út úr bænum,“ segir Halldóra Björns- dóttir leikkona. „Ég fer mikið í sumarbústaðinn í ró og næði. Fer í leiki með stelpunum og við gerum eitthvað skemmtilegt eins og veiða, fara í göngutúra og þess háttar.“ Þar sem hún er yfirleitt að leika um helgar á hún aðallega frí á mánudögum og þriðjudög- um. „Við reynum að hafa kósý fjölskyldustund á mánudögum. Þá er ég oft með sunnudagsmat og við höfum tíma til að spjalla. Við öll erum orðin svo vön því að hafa sunnudagana á mánu- dögum og það er bara um þenn- an eina dag að velja.“ Framundan eru skrýtnir frí- dagar og meira að gera en venjulega. „Við erum að fara með Eldað með Elvis til Akur- eyrar svo ég þarf að fara að pakka. Ég er líka að breyta öllu heima hjá mér með því að fá mér nýtt eldhús. Þá ætla ég að fara að eyða fleiri stundum í eldhúsinu og elda almennilegan mat. Það kemur líka uppþvotta- vél og ég er mjög spennt fyrir því að sjá hvernig hún kemur út, þá ætti ég að geta gert eitthvað annað í frístundum en að vaska upp.“ Halldóra er líka að ferma elstu dóttur sína. „Það hefur bara verið hefðbundið stress í kringum ferminguna. Við vor- um tímanlega í því að gera allt og undirbúningurinn hefur ver- ið voða skemmtilegur. Þetta verður samt allt svolítið skrýtið af því við erum að fara norður með sýninguna 1. apríl og verð- um með þrjár sýningar. Svo kem ég aftur suður 4. apríl en fer aft- ur norður þann 7. þegar við verðum með tvær sýningar. Höfundurinn, Lee Hall, verður viðstaddur sérstaka hátíðarsýn- ingu á Akureyri þann 7. apríl og ég er ofsalega spennt að hitta hann. Þegar ég sá myndina Billy Elliot hitti hún mig beint í hjart- að. Svo var ég beðin um að leika í Eldað með Elvis og finnst það alveg ótrúlegt að vera að hitta þennan mann. Ég hélt að þetta væri gamall karl því hann skrif- ar af svo miklu innsæi um fólk en þetta er strákur, jafngamall mér,“ segir hún og hlær dátt. ■ Frídagurinn HALLDÓRA BJÖRNSDÓTTIR ■ Fáir frídagar framundan. Hefur sunnudaga á mánudögum TRAUST VIÐ TRÚUM HVORT Á ANNAÐ s. 564 2910 • www.sos.is Við hlustum! Þú færð Get up & GO® þynnkubanann aðeins í verslunum Lyf & heilsu. Bjargar þér daginn eftir! NÝTT Markaðs- og tónlistarfrömuður-inn Einar Bárðarson og félag- ar hans hjá fyrirtækinu Concert, sem stendur fyrir væntalegum tón- leikum gömlu rokkhundanna í Deep Purple, hafa ákveðið að hefja miðasölu á tónleikana föstudaginn 2. apríl. Þeir vinna nú hörðum höndum að því að ná samningum við söluaðila sem geta boðið mið- ana til sölu á sama tíma um allt land. „Okkur finnst vera mikið at- riði að landsbyggðin hafi jafnan að- gang að þessum miðum,“ segir Ein- ar. „Við leggjum áherslu á að miðar verði til sölu á öllum helstu þétt- býlisstöðum landsins, á Akranesi, Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Höfn í Hornafirði, Vestmannaeyj- um, Keflavík og síðast en ekki síst í höfuðstöðvum Deep Purple á Ís- landi: Selfossi. Það getur verið að fleiri staðir verði inni í myndinni en þetta er að minnsta kosti ör- uggt.“ Tónleikarnir verða haldnir í Laugardalshöll þann 24. júní og þar sem Einar tekur rokktrúboðið há- tíðlega verður miðaverði stillt í hóf, 3800 krónur í stæði og 4800 krónur í stúku. „Þetta er gert með það að leiðarljósi að aðdáendur sveitarinnar geti kynnt yngri kyn- slóð tónlistarunnenda fyrir þessum risum tónlistarsögunnar.“ Pondus Af hverju mála karlmenn sig ekki? Annað umræðu- efni? Það væri fínt! Fréttiraf fólki HALLDÓRA BJÖRNSDÓTTIR Stendur í stórræðum og er að fara með Eldað með Elvis norð- ur fyrir heiðar, fá sér nýtt eldhús og ferma. ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Gunnar Páll Pálsson. Sigríður Snæbjörnsdóttir. Rusl sem flæðir um götur borgarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.