Fréttablaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 36
til London og Kaupmannahafnar frá 1. apríl Tvisvar á dag ferðir o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur ferðalögum Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: ferðir@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Elín Sveinsdóttir, útsendingar-stjóri á Stöð tvö, þarf ekki að hugsa sig um þegar hún er spurð hvert hún færi í draumafrí með fjölskylduna. „Minn draumur í dag er að fara með börnin mín í góða skíðaferð til Ítalíu. Okkur þykir óskaplega gaman að vera með börnunum okkar á skíðum.“ Eiginmaður Elínar er Sigmundur Ernir Rúnarsson, en þau hjón eru einmitt nýkomin úr skíðaferð til Ítalíu. „Við vorum á skíðum í Madonna og vorum með háar hugmyndir þegar við fórum þaðan að næst myndum við taka börnin með. Það er eitthvað sem ég myndi leggja mikla áherslu á, svona tíu daga góð skíðaferð væri draumurinn.“ Börnin eru þrjú, á aldrinum 7- 13 ára, og öll liðtæk á skíðum. Elín segir vissulega mikinn farangur fylgja foreldrum og þremur börnum í skíðaferð, „En maður leggur það nú á sig. Þetta er líka langt ferðalag, fyrst flugið og síðan fjögurra tíma rútuferð, svo maður yrði að vera búinn að búa þau undir stóran skammt af þolin- mæði. En ævintýrið er þvílíkt að það er þess virði. Madonna er lítill, sætur bær með nægum brekkum og lyftum og góðum veitingastöðum og eins ákjósan- legur og hægt er fyrir barnafólk.“ Elín segir skíðaferðir sameina fjölskylduna á skemmtilegan hátt. „Þetta snýst auðvitað um að renna sér á skíðum en líka að borða góðan mat og kynnast menningu annarra landa.“ Elín segir fjölskylduna gjarnan fara á skíði til Akureyrar, enda eiginmaðurinn þaðan. „En því miður hefur verið svo lítið um snjó undanfarin ár, þannig að skíðabrekkur og nægur snjór í útlöndum er næsti pakki. Ég er strax farin að hlakka til.“ edda@frettabladid.is Rútuferðir eru sígildur ferða-máti og alltaf jafn vinsæll. Úrval Útsýn bjóða upp á Evrópurútu til Spánar og Portúgals og vegna mikilla vin- sælda verður aukaferð 24. apríl til 2. maí. Ferðatilhögunin er á þá leið að flogið er á laugardegi til Faro í Portúgal. Þaðan er ekið til bæjarins Villa Real og hann skoðaður. Á þriðjudeginum er ekið til Sevilla þar sem skoðaðar eru minjar frá dögum mára. Á miðvikudegi er frjáls dagur. Á fimmtudeginum er ekið til Tavira og Faro í Algarve héraði í Portúgal. Á laugardeginum eru bæirnir Sagres og Lagos í Portúgal heimsóttir. Þar er einnig að finna merkar minjar um yfirráð mára, þrælahald og Hinrik sæfara. Á sunnu- deginum er svo haldið heim. Á þessum árstíma er gróður í sem mestum blóma á þessum slóðum, veðráttan hagstæð og notalegt að dvelja á Portúgal og á Spáni. ■ ANDALÚSÍA Mikil ummerki um menningu mára. Síðasta utanlandsferð? Ég fór til Dublin þar síðustu helgi. Það var mjög fínt. Haukur Viðar Jónsson. Hvert færir þú í draumaferð með fjölskylduna?: Með alla á skíði til Ítalíu ELÍN SVEINSDÓTTIR Myndi ekki víla fyrir sér að fara með börn og buru í skíðaferð til Ítalíu þrátt fyrir mikinn farangur og langt ferðalag. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /F RÉ TT AB LA Ð IÐ /R Ó B ER T Úrval Útsýn: Aukaferð í Evrópurútu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.