Fréttablaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 16
16 28. mars 2004 SUNNUDAGUR ■ Hljóðfærið mitt Breski rithöfundurinn VirginiaWoolf fæddist árið 1882 og er talin með áhrifameiri rithöfund- um skáldsagna á 20. öld. 1912 giftist hún Leonard Woolf, gagn- rýnanda og saman stofnuðu þau Hogarth Press árið 1917. Heimili þeirra varð samkomustaður fjölda listamanna, rithöfunda og gagnrýnenda sem kölluðust Bloomsbury-hópurinn. Sem rithöfundur skrifaði Virg- inia um venjulega atburði. Hún lagði ekki áherslu á fléttur eða persónusköpun heldur á sjálfsvit- und söguhetjanna, hugmyndir þeirra og tilfinningar. Þar tak- markaði hún sig ekki við eina söguhetju heldur ferðaðist úr hugarfylgsnum einnar persónu til annarrar, sérstaklega í bókinni The Waves. Þekktasta bók Virg- iniu er skáldsagan „To the Light- house“ sem var skrifuð 1927. Árin 1895 og 1915 fékk hún taugaáfall og átti við geðræn vandamál að stríða. 28. mars 1941 framdi hún sjálfsmorð með því að drekkja sér þar sem hún óttaðist enn eitt taugaáfallið sem hún myndi ekki jafna sig af. Flestum verka Virginiu sem voru gefin út eftir andlát hennar var ritstýrt af Leonard, eiginmanni hennar. Nokkrar kvikmyndir hafa verið gerðar um líf skáldkon- unnar, sú síðasta var myndin The Hours með Nicole Kidman í hlutverki Virginu. ■ ■ Afmæli Kristjana M. Kristjánsdóttir skólastjóri Grandaskóla er 58 ára. Margrét Baldursdóttir borgarstjórafrú er 45 ára. Harpa Arnardóttir leikkona er 40 ára. Ásta Arnardóttir jógakennari er 40 ára. ■ Andlát Björn Hallgrímur Gíslason, Austurbergi 36, lést 24. mars. Bjarni Pálmarsson, Nóatúni 28, lést 24. mars. Eyþór Bjarnason, Skipholti 46, lést 25. mars. Ragnar B. Magnússon lést 25. mars. Páll Melsted, lést 25. mars. TÓNLIST Það var hrein unun að fylgj- ast með viðbrögðum liðsmanna Mammút þegar þeim, og troðfullum Austurbæ, var tilkynnt að hljóm- sveitin væri sigurvegari Músíktil- rauna 2004. Liðsmenn stóðu þá uppi á sviðinu þar sem þau höfðu nokkrum mínútum áður tekið við verðlaunum sem Athyglisverðasta sveitin. „Við vorum öll alveg stjörf,“ seg- ir Katrína Mogensen sem hlaut ein- nig söngvaraverðlaun tilraunanna í ár. „Við vissum ekki að það væri hægt að vera athyglisverðasta sveitin og líka fá sæti. Ég var himin- lifandi yfir hinum verðlaununum, þetta var mjög mikið í einu. Ég fór bara heim eftir keppnina í sjokki með öll verðlaunin og reyndi bara að sofna.“ Liðsmenn Mammút eru Katrína Mogensen söngkona, Andri Bjartur Jakobsson trommuleikari, Guðrún H. Ísaksdóttir bassaleikari, Arnar Pétursson og Alexandra Baldurs- dóttir gítarleikarar. Þau eru á aldr- inum fjórtán til fimmtán ára. Fjög- ur eru saman í Laugarlækjarskóla en Arnar er einn úr Vogaskóla. Mammút var stofnuð fyrir rúm- um þremur mánuðum síðan og seg- ir Katrína að þau hafi samið um 5 lög frá því að kvintettinn byrjaði að æfa saman. Strákarnir og Katrína höfðu spilað á hljóðfæri í einhvern tíma en þær Guðrún og Alexandra eru alveg nýbyrjaðar. „Sveitin varð til þegar ég var að taka þátt í söngvakeppninni Samfés. Ég þekkti þau öll og spurði hvort þau vildu spila undir hjá mér. Þar spiluðum við lagið Over eftir Portis- head og urðum í öðru sæti. Upp frá því byrjuðum við að æfa reglulega saman. Þetta er að gerast svolítið hratt, þetta er skrýtið... ég er enn að átta mig á þessu.“ Svo virðist sem afsprengi „Rokk í Reykjavík“-kynslóðarinnar séu að ryðja sér rúms á tónlistarsviðinu. Sindri Eldon, sonur Bjarkar, var liðsmaður Dáðadrengja þegar þeir unnu í fyrra en Katrína er dóttir Birgis Mogensen fyrrum bassaleik- ara Kukls. Hún hlaut því gott tón- listaruppeldi. „Ég er alin upp við allt frá djassi til pönks. Við höfum öll mikinn áhuga á tónlist.“ Katrína segir að næsta verkefni verði að komast aftur niður á jörð- ina. „Við þurfum að fara aftur inn í bílskúr og semja aðeins meira áður en við tökum eitthvað upp,“ segir Katrína að lokum og staðfestir að tónleikatilboðin séu þegar farin að streyma inn. biggi@frettabladid.is Tónlist MAMMÚT ■ Kvintettinn Mammút kom, sá og sigr- aði í Músíktilraunum 2004. VINCE VAUGHN Illmennið í mörgum bíómyndum er 34 ára í dag. 28. mars ■ Þetta gerðist 1797 Einkaleyfi fæst fyrir fyrstu þvotta- vélinni í Bandaríkjunum. 1814 Guillotine, maðurinn sem hann- aði fallöxina er jarðaður í Frakk- landi. 1802 Loftsteinninn Pallas finnst. 1854 England og Frakkland lýsa yfir stríði gegn Rússlandi í Krím- skagastríðinu. 1939 Spænska borgarastríðinu lýkur. 1969 Dwight D. Eisenhower, 34. forseti Bandaríkjanna deyr. 1986 6.000 útvarpsstöðvar um allan heim spila lagið „We are the World“ samtímis til styrktar að- gerða gegn hungursneyð í Afr- íku. VIRGINIA WOOLF Drekkti sér fyrir 63 árum vegna ótta við að fá annað taugaáfall sem hún myndi ekki ná sér af. VIRGINIA WOOLF Lést á þessum degi, 59 ára gömul. 28. mars 1941 Ætla að komast aftur niður á jörðina Ég byrja vikuna á því að vera Noname stúlka ársins,“ segir Björk Jakobsdóttir leikkona. „Þetta leggst vel í mig vegna þeirrar stefnu sem þær hafa tekið, að vera alltaf með konur sem hafa skarað fram úr fyrir fleira en fegurð. Þetta eru konur sem mér finnst ógeðslega flottar. Á meðan stefnan frá snyrtivörulínunni er svona er ekkert að því að vera andlit þeirra. Það er ekki amalegt að fylgja Bryndísi Schram.“ Björk segist alltaf ætla sér að slappa af, en ýmislegt er fram- undan þar sem hún er ljúka sýningum á Sellófon í Reykjavík og á leið með einleikinn út á land. „Í vikunni verð ég að skipuleggja leik- ferð fyrir maí, þegar ég fer út á land. Nú ætla ég að taka þá staði sem ég hef ekki heimsótt áður. Svo er ég að klára síðustu sýningar í Reykjavík. Síðasta sýning verður 3. apríl og hugsanlega verður ein aukasýning eftir páska ef það verður uppselt þá.“ Sýningar á Sellófon verða þó víðar, því það er nýbúið að frum- sýna leikritið á Ítalíu og í Belgíu. „Ég fékk ofboðslega góð viðbrögð eftir forsýninguna í Belgíu, þannig að ég reikna með góðum við- brögðum þar. Svo eru fyrirhugaðar fjölmargar sýningar í Evrópu, Ameríku og jafnvel í Ástralíu.“ Þetta er þó ekki það eina sem Björk stendur í þessa dagana. „Svo er ég náttúrlega að sýna 5stelpur.com“ ■ Vikan sem verður BJÖRK JAKOBSDÓTTIR ■ Er að ljúka sýningum á Sellófon. BJÖRK JAKOBSDÓTTIR Byrjar vikuna sem No name stúlkan 2004 og endar hana á síðustu sýningu Sellófon í Reykjavík Í fótspor kvenna sem skara fram úr FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T R EY N IS SO N Sigurður Flosason saxófónleikari Ég á heilan haug af þeim,“ segirSigurður Flosason um hljóð- færin sín. „Mitt aðalhljóðfæri er alto saxófónn, en ég spila reyndar á fjóra mismunandi saxófóna, þrjár mismunandi flautur og tvö mismunandi klarinett. Frá því ég var tólf ára gamall hef ég notað hljóðfæri frá sama framleiðanda, sem er Yamaha. Þeir eru með mikla rannsóknarstarfsemi og eru alltaf að þróa þetta og bæta. Nútíma tölvutækni hefur gert hljóðfærasmiðum kleift að vera miklu nákvæmari, sem skiptir máli upp á að þetta verði ekki falskt allt saman. Svo á ég nokkra forngripi líka frá öðrum merkjum sem ég hef gaman af.“ ■ DIRK BOGARDE Þessi eðalleikari og rithöfundur fæddist á þessum degi árið 1921. Hann lést árið 1999. MAMMÚT Hlutirnir hafa gerst hratt hjá rokksveitinni Mammút. Sigursveit Músíktilrauna var stofnuð fyrir þremur mánuðum. Mynd: Sigurbjörn. Áhrifamikil skáldkona deyr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.