Fréttablaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 4
4 28. mars 2004 SUNNUDAGUR Eiga dómstólar að taka mið af al- menningsálitinu við ákvörðun dóma í sakamálum? Spurning dagsins í dag: Er rétt að endurgreiða að fullu tann- lækningar barna yngri en 12 ára? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 74% 26% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Lögreglufréttir Hugmyndir um Látrabjargsþjóðgarð: Skiptar skoðanir meðal hagsmunaaðila INNLENT Deilur eru um hvort gera eigi Látrabjarg og Rauðasand að þjóðgarði eða ekki. Svæðið mun vera eitt af 14 sem umhverfisráðuneytið hefur áhuga á að friða fyrir árið 2008. Kristinn Þór Egilsson, bóndi á Hnjóti, segir ráðuneytið vera í for- göngu með það að friða svæðið en að skiptar skoðanir séu á meðal hags- munaaðila. „Þeir sem eru aðallega á móti eru aðilar sem búa og hafa alla sína hagsmuni fyrir sunnan,“ fullyrðir hann. „Heimamenn voru flestir mjög fylgjandi þessu. Ég held að þeir sem séu á móti þessu misskilji málið. Þeir eru hræddir um að með því að stofna þjóðgarð verði þeirra réttindi fyrir borð borin. Ég er persónulega afskaplega hlynntur þessu.“ Á mánudag verður fundur um málið í Umhverfisráðuneytinu og býst Kristinn við því að margt for- vitnilegt komi upp á þeim fundi. Hann segir fjölda ferðamanna á svæðið ekki hafa skilað sér í neinu samræmi við þann fjölda sem hefur skilað sér til landsins. „Það er margt sem spilar inn í það,“ segir Kristinn. „Slæmar sam- göngur auk þess sem við erum ekk- ert í stakk búin til þess að taka á móti fjölda ferðamanna. Þetta er samt að skella yfir okkur og hingað kemur aukinn straumur. Ferðamaðurinn fer óheftur um bjargið og enginn er að fylgjast með neinu. Það sést á ákveðnum hluta bjargsins vegna ágangs ferðamannsins.“ ■ Gengur gegn dóm- um Hæstaréttar Niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur hvað varðar miskakröfu saksóknara fyrir hönd eins af sex fórnarlömbum nýdæmds barnaklámsmanns gengur gegn fyrirliggjandi dómum Hæsta- réttar. Þetta segir Sif Konráðsdóttir hæstaréttarlögmaður. DÓMSMÁL „Hæstiréttur hefur margsinnis dæmt miskabætur í málum er varða kynferðisbrot gegn börnum og unglingum þrátt fyrir að engin gögn liggi fyrir um afleiðingarnar, með vísan til þess að brot af þessu tagi sé til þess fallið að valda þeim sem fyrir verður andleg- um þjáningum. Frávísun bóta- kröfunnar hvað varðar þennan tiltekna dreng er því ekki í samræmi við f o r d æ m i Hæstaréttar.“ Þetta sagði Sif Konráðs- dóttir hæsta- réttarlögmaður um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur hvað varðar eitt af fórnarlömbum dæmds barnaníð- ings, Ágústs Magnússonar. Ágúst var dæmdur í fimm ára fangelsi í vikunni fyrir kynferðisbrot gegn sex drengjum og vörslu barna- kláms. Einn drengjanna sem maður- inn misnotaði var metinn „mis- þroska og leiðitamur, að mati sér- fræðinga“ að því er segir í dóm- gögnum. Þá hafi hann „lélega og neikvæða sjálfsímynd.“ Hafi ákærði notfært sér „þessa veik- leika hans.“ Lögð var fram krafa upp á 750.000 króna skaðabætur fyrir þetta fórnarlamb mannsins, þar sem drengurinn hefði sætt alvar- legu kynferðisbroti að hálfu hans. Dómurinn vísaði þeirri kröfu frá dómi á þeirri forsendu að erfitt væri að greina á milli afleiðinga af háttsemi mannsins gagnvart drengnum og líðan hins síðar- nefnda fyrir brotið. Umræddur drengur vildi ekki gefa skýrslu fyrir dómi, en í vitnisburði sál- fræðings fyrir dómi sagði, að drengurinn væri í miklum vanda sem „tengist málinu. Það megi ráða af reiði hans en um leið og málið hafi verið rætt hafi hann orðið hálftrylltur.“ Hinir drengirnir fimm fengu allir dæmdar skaðabætur. Öryggisráðstöfunum hafnað Saksóknari lagði fram fram- haldsákæru þess efnis, að mað- urinn skyldi beittur öryggisráð- stöfunum að refsivist lokinni. Dómurinn féllst ekki á þá kröfu í ljósi þeirrar refsivistar sem maðurinn var dæmdur til. „Það kemur fram í dóminum að maðurinn hefur áður gerst sekur um kynferðisbrot gegn börnum, fyrir 15 árum,“ sagði Sif. „Þá gerði hann tilraun til að komast í samband við börn og unglinga á Netinu, meðan þetta síðara mál var rekið fyrir dómstólum,“ sagði Sif „Sérfræðingurinn í sálfræði virðist vera mjög afdráttarlaus í sínu mati þegar hann segir að „miklar líkur“ séu á að slík mál endurtaki sig vinni maðurinn ekki markvisst að sínum málum. Slík meðferð taki mörg ár. Maðurinn getur sótt um reynslulausn eftir 2/3 af dæmdri refsivist. Það virð- ist ljóst, að þó hann sæti meðferð í afplánuninni, sem honum er þó ekki skylt, þá sé það fyrirfram mat að sá meðferðartími muni ekki bera árangur gegn þeirri „al- varlegu barnagirnd“ sem hann var greindur með af sálfræðingi.“ Í einu tilviki áður hefur verið sett fram krafa um öryggisvist- un hér á landi. Sú krafa varðaði annan dæmdan barnaníðing, Steingrím Njálsson. Hæstirétt- ur taldi þá ekki efni til að fallast á kröfuna, þar sem enginn stað- ur var til að vista manninn á. jss@frettabladid.is Fuglaflensan: Innflutnings- bann framlengt LANDBÚNAÐUR Yfirdýralæknir, Hall- dór Runólfsson, hefur framlengt bann við innflutningi á lifandi fugl- um, frjóeggjum og hráum afurðum alifugla frá tíu löndum vegna fuglaflensunnar svokölluðu. Á vefsíðu embættisins segir, að bannið sé framlengt, þar sem ekki liggi fyrir upplýsingar í viðkom- andi löndum um upprætingu flensunnar, sem sé skæður fugla- sjúkdómur sem borist geti í menn og aldrei hafi greinst á Íslandi. Innflutningsbannið er framlengt til 30. apríl næstkomandi. ■ Ólafsfjörður: Slösuðust í vélsleðaslysi SLYS Feðgar slösuðust þegar vél- sleði sem þeir ferðuðust á lenti í Ytri-Á skammt frá Ólafsfirði í gærdag. Þeir voru fluttir með sjúkrabíl á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Faðirinn ók sleðanum þegar slysið varð. Hann var á nokkuð mikilli ferð þegar hann lenti ofan í gili og fór þaðan ofan í ánna. Strákurinn náði að koma sér upp úr ánni og lagði af stað fótgang- andi til að sækja hjálp þegar ann- ar vélsleðamaður sá til hans og kom til hjálpar. Faðirinn var meira slasaður og var talinn vera illa fótbrotinn. Björgunarsveitin á staðnum og læknir voru í við- bragðsstöðu á Ólafsfirði vegna snjókrossmóts sem haldið var þar í gær. Fóru því nokkrir menn úr björgunarsveitinni til að sækja feðgana. ■ Jón Ásgeir vill bæta fleiri tískumerkjum í flóru Baugs: Leitar hófanna hjá Karen Millen VIÐSKIPTI/TIMES Baugur hefur átt í viðræðum við eigendur bresku tískuvöruverslananna Karen Millen og Whistles um kaup á hlut í fyrirtækjunum undan- farnar vikur að sögn breska dagblaðsins Times. Segir þar að vitað sé að Jón Ásgeir Jóhannes- son, forstjóri Baugs, hafi um skeið verið að leita að þekktum tískumerkjum til að bæta við flóru Oasis keðjunnar sem fyrir- tækið keypti áður. Í fréttinni segir að þó viðræður hafi átt sér stað um tíma sé enn langt í að samkomulag náist og alls ekki víst að svo verði. Einn aðaleigandi Karen Millen, Kevin Stanford, sagðist engan áhuga hafa á að selja hlut sinn en hann á um 60% hlut. Íslendingar eiga nú þegar hlut í fyrirtæki Karen Millen. Þar fer KB banki fremstur með rúmlega 12% hlut en einstaklingar á borð við Sigurð Bollason og Magnús Ármann eiga einnig töluvert. Samtals er eign Íslendinga í fyrir- tækinu um 40% alls. Karen Millen fyrirtækið velti rúmlega 11 milljörðum króna á síðasta ári. ■ LÁTRABJARG Hugmyndir um Látrabjargsþjóðgarð valda nokkrum deilum. Hagsmunaaðilar þinga með umhverfisráðherra á morgun um málið EITT FYRIRTÆKJA BAUGS Í BRETLANDI Nú vill Jón Ásgeir bæta enn í flóruna ef marka má breska dagblaðið Times FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K AR L PE TE R SS O N BARNANÍÐINGUR Ágúst Magnússon er sagður haldinn „alvarlegri barnagirnd.“ Kröfu um öryggisgæslu eftir að hann hefur afplánað dóm sinn var hafnað í Héraðsdómi. SIF KONRÁÐS- DÓTTIR Kynferðisbrot gegn börnum til þess fall- ið að valda andleg- um þjáningum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Íran: Eftirlit heimilað á ný ÍRAN/AP Eftirlitsmenn Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar komu á ný til Íran til eftirlits- starfa eftir að hafa verið útilokað- ir um tíma af þarlendum stjórn- völdum. Munu þeir skoða tvö kjarnorkuver Írana og spyrja ráðamenn í þaula um tilgang kjarnorkuverkefna stjórnvalda en þeir hafa alla tíð haldið því fram að þau hafi eingöngu friðsamleg- an tilgang. ■ SLEGINN MEÐ GLASI Maður skarst í andliti eftir að hann var sleginn með glasi inni á veitinga- staðnum Lundanum í Vestmanna- eyjum aðfaranótt laugardags. Árásarmaðurinn var færður í fangageymslur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.