Fréttablaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 28.03.2004, Blaðsíða 20
5,0%* – Peningabréf Landsbankans www.landsbanki.is Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans. * Nafnávöxtun 01.02.2004–29.02.2004 á ársgrundvelli. Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta er vakin á því að fjárfestingarsjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk upplýsinga á heimasíðu bankans www.landsbanki.is Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum í útibúum Landsbankans eða í síma 560 6000. Í SL EN SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 2 39 23 3 /2 00 4 Í SL EN SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 2 39 23 3 /2 00 4 VIÐSKIPTI Í KAUPHÖLL ÍSLANDS * Gengi bréfa síðustu sjö daga. 3,4% -20,0% -5,4% -3,3% 3,3% 3,9% Mesta hækkun (%)* * Gengi bréfa síðustu sjö daga. Mesta lækkun (%)* Mesta veltaLífteæknisjóðurinn hf. Pharmaco hf. Össur hf. Fyrirtæki Velta síðustu sjö daga Íslandsbanki hf. 3.393 milljónir Kaupþing Búnaðarbanki hf. 2.487 milljónir Straumur Fjárfestingabanki hf. 1.791 milljónir mán. þri. mið. fim. fös. á su nn ud eg i V ið sk ip ta fr ét ti r 25 20 15 10 5 0 -5 Kaldbakur hf. Íslandsbanki hf. Kaupþing Búnaðarbanki hf. Brynjólfur Bjarnason tók viðstjórnartaumunum í Símanum eftir umbrotatíma í fyrirtækinu. Netbólan var sprungin með til- heyrandi skellum fyrir mörg fjar- skiptafyrirtæki sem farið höfðu geyst í fjárfestingum. Forysta fyrirtækisins var sökuð um að skara eld að eigin köku og einka- væðing fyrirtækisins hafði mis- tekist. Fyrirtækið hefur glímt við fjársvikamál starfsmanns eftir að Brynjólfur tók við. Þrátt fyrir áföll fer ekki hjá því að ímynd Símans hafi styrkst að undan- förnu og fyrirtækið sé í dag þjón- ustu- og markaðsdrifnara en nokkru sinni fyrr. Það er í það minnsta tilfinning margra. „Þegar ég kom að fyrirtækinu varð ég þess mjög áskynja að það þurfti að vinna að hluta til aftur upp samstöðu hjá starfsfólkinu. Það þurfti að skerpa línur bæði fjárhagslega og í því sem ég hef viljað kalla fyrirtækjamenningu sem er öllum fyrirtækjum mjög mikilvæg.“ Verkefnið var að byggja upp samstöðu, þannig að fólk hefði gaman af vinnunni og sýn á framtíðina. „Við fórum í skipulagsbreytingu í janúar í fyrra. Við gerðum það með þeim hætti að við skiptum fyrirtækinu upp í afkomusvið og stoðsvið til aðstoðar og þjónustu við afkomu- sviðin. Með þessu vildum við koma því þannig fyrir að völd og ábyrgð færu sem best saman.“ Brynjólfur segir að í kjölfar skipulagsbreytinga hafi verið settar á stað vinnustofur starfs- manna sem allir starfsmenn tóku þátt í og fóru í gegnum feril. „Bæði til þess að starfsmenn gætu tjáð eigin álit og langanir, og að kanna hverjar þarfir viðskipta- vinarins eru til að móta eina stefnu í þeim málum.“ Frá stofnun til þjónustu Síminn er gamalt einokunar- fyrirtæki og margir hafa haft þá tilfinningu að viðskiptavinurinn hafi ekki verið efst á blaði í fyrir- tækjahugsuninni. „Það er erfitt fyrir mig að dæma um það,“ segir Brynjólfur. „Ég man auðvitað eft- ir því sem viðskiptavinur að þurfa að mæta á staðinn og skrifa undir skjal vegna flutnings á síma. Nú er hringt í þjónustuver og beðið um flutning. Þetta er auðvitað breyting á tímum. Ég grínast stundum með það innanhúss að maður greini glampa í augum sumra okkar ágætu starfsmanna þegar maður minnist á einokun- ina,“ bætir hann við og brosir í kampinn. Fyrirtækið er ekki leng- ur ríkisfyrirtæki og mætir nú vaxandi samkeppni á ýmsum sviðum starfsemi sinnar. „Fyrir mér er þetta óhemju skemmtilegt ferli að taka þátt í.“ Brynjólfur er ekki ókunnugur breytingu fyrir- tækis úr opinberu fyrirtæki í öfl- ugt almenningshlutafélag. Hann var forstjóri Bæjarútgerðar Reykjavíkur, sem var einkavædd og síðan sameinuð Ísbirninum. Úr varð útgerðarfélagið Grandi. Því stýrði Brynjólfur farsællega í átján ár. Umræða um stjórnmál og við- skipti var með töluvert öðrum for- merkjum þegar Bæjarútgerðin var seld. Málið var umdeilt. „Í borgarstjórnarkosningunum 1986 minnir mig að tvö mál hafi borið hæst. Kaup borgarinnar á Nesja- vallalandinu var annað og hitt var stofnun Granda.“ Sameiningunni fylgdu miklar skipulagsbreyting- ar og uppsagnir. „Við vorum í því þá að reyna að útvega fólki vinnu. Við settum upp ráðningarstjórn sem ég sat í. Þá skipti miklu að starfsmannafélagið kom öflugt að því. Við unnum ágætt starf og frá áramótum og fram í apríl tókst okkur að útvega öllum sem leit- uðu til okkar vinnu.“ Hann segir rétt að geta þess að atvinnuástand hafi verið nokkuð gott á þeim tíma. „Þetta verkefni var það sem ég vil kalla straumlínulögun á fyrirtæki. Þarna voru sex hundr- uð manns í vinnu. Tæknivæðingin var að koma í greinina af fullum þunga og á síðustu árum vann Grandi umtalsvert meira magn en unnið var í fyrirtækjunum sem mynduðu Granda, með að jafnaði rétt innan við þrjú hundruð manns í vinnu.“ Bylting viðskiptalífsins Samhliða urðu miklar breyt- ingar á öllu viðskiptaumhverfinu. Hlutabréfamarkaður varð til og höft viðskiptalífsins brustu eitt af öðru „Maður er fljótur að gleyma hvernig þetta var. Ég er hættur að tala um sjóðakerfið sem var í sjávarútvegi. Það þýðir ekkert fyrir mig að nefna það lengur. Það man enginn eftir því. Það eina sem ég get minnt fólk á er að ég man hvernig þetta allt var áður en kreditkortin komu. Átthagafjötr- arnir sem teknir voru af með til- komu kreditkortanna voru ótrú- 6 3 0 -3 -6 -9 -12 -15 mán. þri. mið. fim. fös. Fjársvikamálið dýr skóli Síminn hefur á undanförnum árum verið að breytast úr einokunarstofnun í þjónustu- og markaðs- drifið fyrirtæki. Fyrirtækið hefur mátt þola neikvæða umræðu og áföll. Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, er ásamt samstarfsfólki sínu í miðju kafi við að gera risann lipran og léttleikandi. FR RÉ TT AB LA Ð IÐ /R Ó B ER T Ég finn að mannauðurinn og fjöldi starfsmanna þýðir að maður þarf að gefa þeim þætti mikla athygli. Í sjávar- útvegi er mikil fjárfestingar- þörf í skipum og tækjum. Ég lít svo á að það skipti jafn miklu máli hvort mað- ur er að fjárfesta í símstöð eða í fólki. ,, SÍMINN TIL SÖLU Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, segir sölu fyrirtækisins mál eigendanna. Misheppnist salan væri það áfall fyrir starfsfólk Símans, sem hefur mátt þola ýmsar hremmingar. „Þess vegna hef ég orðað þetta þannig; Gangi ykkur vel með söluna, en leyfið okkur að reka gott fyrirtæki í friði,“ segir Brynjólfur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.