Fréttablaðið - 04.04.2004, Page 1

Fréttablaðið - 04.04.2004, Page 1
▲ Lið Verslunarskólans bar sigur úr bítum í Gettu betur á föstu- dagskvöld eftir að hafa lagt lið Borgarholtsskóla að velli. Eins og gengur brostu sumir hringinn - en aðrir felldu tár. i l l i í í l i l li l l lli. i i i i – i ll . Versló vann SÍÐA 34SÍÐUR 36 og 37 ▲ „Ég er í raun orðinn annar maður“ MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Kvikmyndir 46 Tónlist 46 Leikhús 46 Myndlist 46 Íþróttir 42 Sjónvarp 48 SUNNUDAGUR TVEIR LEIKIR Í ÚRSLITA- KEPPNINNI Tveir leikir verða í úrslita- keppni kvenna í handbolta. Klukkan 12 tekur KA/Þór á móti ÍBV og klukkan 19.15 tekur FH á móti Haukum. Fjórir leikir verða í RE/MAX-deild karla, klukkan 16.15: Stjarnan - ÍR, Haukar - KA, Grótta KR - Fram og Valur - HK. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG 4. apríl 2004 – 94. tölublað – 4. árgangur KJARAMÁL Aukin harka hefur færst í kjaraviðræður Rafiðnaðarsam- bandsins við Samtök atvinnulífs- ins eftir ummæli Jóhannesar Geirs Sigurgeirssonar, stjórnar- formanns Landsvirkjunar, um að Impregilo sitji undir ósanngjörn- um ásökunum. „Við höfum sýnt þessu fyrir- tæki fulla kurteisi og veitt því svigrúm til að koma sér fyrir hér á landi,“ segir Guðmundur Gunn- arsson, formaður Rafiðnaðarsam- bands Íslands. „Það þverbrýtur ís- lenskt starfsréttindakerfi og nán- ast allt sem á vegi þess verður. Það stendur í vegi fyrir að menn nái kjarasamningum. Og svo tók steininn úr þegar formaður Landsvirkjunar ataði okkur auri fyrir að vera ósanngjarnir við fyrirtækið. Nú er þetta búið. Ef við náum ekki samningum strax eftir helgi þá verður málinu vísað til sáttasemjara og svo gildir bara harkan sex.“ Almenni kjarasamningurinn og virkjanasamningurinn hanga saman. „Við höfum sagt að við munum ekki loka almenna samningnum fyrr en við höfum náð því fram sem við viljum í virkjanasamn- ingnum. Það hefur ekkert gengið í þessum samningaviðræðum hing- að til.“ Guðmundur útilokar ekki að ef ekkert gangi hjá sáttasemjara verði leitað eftir verkfallsheim- ildum. „Það getur vel endað með því en það verður þá aldrei fyrr en eftir páska. Þessar yfirlýsingar Jóhannesar hleyptu mjög illu blóði í menn.“ Ef verkfall skylli á myndi það meðal annars þýða að vinna stöðvaðist að Kárahnjúkum. ■ Ingólfur Margeirsson, rithöfundur og blaðamaður, hefur unnið sleitulaust að endurhæfingu síðan hann fékk heilablóðfall fyrir tveimur og hálfu ári. Afstaða hans til lífsins hefur breyst og forgangsröð- in er orðin önnur. Rætt er við Ingólf á síðum 26 og 27 í blaðinu í dag. SÍÐA 26–27 ▲ Aukin harka hefur færst í kjaraviðræður Ummæli stjórnarformanns Landsvirkjunar fara illa í formann Rafiðnaðarsambandsins. Útilokar ekki verkfall eftir páska. Námsmaður í Bandaríkjunum: Sviðsetti sitt eigið hvarf BANDARÍKIN, AP Lögreglan í Wisconsin í Bandaríkjunum hefur sakað tvítuga konu um að setja á svið eigið hvarf. Þegar konan hvarf fjölluðu fjölmiðlar um gjörvöll Bandaríkin um málið. Audrey Seiler, sem er háskóla- stúdent, fannst vannærð og köld úti í mýri skammt frá heimili sínu í Madison á miðvikudaginn. Þá hafði hennar verið saknað síðan á laugardaginn fyrir rúmri viku. Seiler heldur því fram að henni hafi verið rænt en lögreglan er á öðru máli og segir hana bara vera einmana litla sál. Í mýrinni fannst hnífur, lím- band og reipi, sem Seiler segir að mannræninginn hafi notað. Lög- reglan segist hins vegar hafa und- ir höndum myndband úr verslun sem sýni Seiler vera að kaupa þessa hluti. Kostnaðurinn við rannsókn lög- reglu í tengslum við hvarf Seilers nemur um fimm milljónum króna. Lögreglan hefur ekki enn ákveðið hvort Seiler verði ákærð. ■ HÆGVIÐRI FRAM EFTIR DEGI Enn heldur vaxandi vindur síðdegis. Stöku skúr í borginni en rofar þar heldur til síðdegis. Kólnandi veður. Sjá síðu 6. MÓTMÆLI Í RÓM Hálf milljón manna gekk um götur Rómar á Ítalíu í gær og mótmælti áformum stjórnvalda um endurskoðun lífeyris- réttindakerfisins. Um sextán milljónir Ítala eru á eftirlaunum og segja talsmenn ellilífeyrisþega að ástand lífeyrismála sé óásættanlegt. Kaupmáttur hafi minnkað gríðarlega undanfarin ár. DREGUR Í LAND Colin Powell, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, hefur viðurkennt að sönnunargögnin sem Bandaríkjastjórn hafi lagt fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna til þess að réttlæta innrásina í Írak hafi ef til vill ekki verið mjög traust. Sjá síðu 2 STÍFT FUNDAÐ Mörg sérmál eru enn óleyst hjá einstökum aðildarfélögum Starfs- greinasambandsins í samningaviðræðum við ríkið. Verslunarmannafélag Reykjavíkur hefur ákveðið að fallast á lífeyristilboð. Sjá síðu 2 GAGNRÝNIR VIRKJANAAND- STÆÐINGA Stjórnarformaður Landsvirkj- unar gagnrýnir virkjanaandstæðinga fyrir áróður. Hann gerir greinarmun á þeim og náttúruverndarsinnum. Sjá síðu 4 VOPN Í ATKVÆÐAVEIÐUM Sérfræði- læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja seg- ir einstaka stjórnmálamenn í héraði espa upp deilur um D-álmu sjúkrahússins og nota sem vopn í viðvarandi atkvæðaveið- um sínum. Sjá síðu 6 Árni Samúelsson í Sambíó- unum hefur kynnst ýmsu í bransanum en hefur aldrei upplifað annað eins stór- myndasumar og hefst hjá honum í maí. Hann ræðir upphafið og góðærið í við- tali í blaðinu í dag. Stórt ár hjá Árna Samúelssyni M YN D /A P

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.