Fréttablaðið - 04.04.2004, Blaðsíða 46
34 4. apríl 2004 SUNNUDAGUR
Meistarar í aflraunum
Dalvegi 6-8 · 201 Kópavogur
Sími 535 3500 · Fax 535 3509
www.kraftvelar.is
Hljóðneminn í Ofanleitið
Lið Verslunarskóla Íslands sigr-aði í Gettu betur, spurninga-
keppni framhaldsskólanna, á
föstudag. Verslingar lögðu lið
Borgarholtsskóla að velli í úrslita-
viðureigninni en grípa varð til
bráðabana þar sem leikar stóðu
jafnir eftir hefðbundna keppni.
Sigurinn í Gettu betur er önnur
stóra rósin í hnappagat Verslinga
á fáum dögum því um síðustu
helgi bar ræðulið skólans sigur úr
bítum í Morfís, mælsku og rök-
ræðukeppni framhaldsskólanna.
Athyglivert er að einn liðsmann-
anna í spurningaliðinu, Björn
Bragi Arnarson, var líka í
ræðuliðinu og hlaut hann nafnbót-
ina ræðumaður Íslands.
Keppni föstudagsins var
æsispennandi og munurinn á lið-
unum var aldrei meiri en örfá
stig. Liðin verða seint sögð hafa
svarað mjög mörgum spurningum
rétt, hvort sem þar er um að
kenna erfiðari spurningum en ella
eða meiri taugaspennu keppenda
en vanalega skal ósagt látið.
Valgarður Gíslason, ljósmynd-
ari Fréttablaðsins, var í Vetrar-
garði Smáralindar á föstudags-
kvöldið og fangaði stemninguna á
filmu. ■
SORGLEGT
Lið Borgarholtsskóla í mínus eftir keppnina, umkringt stuðningsmönnum Versló.
GRÍÐARLEGUR FÖGNUÐUR
Nemendur Versló gátu ómögulega hamið hamingju sína – enda varla ástæða til.
KLAPPAÐ FYRIR HINUM
Nemendur Borgarholtsskóla voru fínir í tauinu og klöppuðu andstæðingunum lof í lófa. Sárindin leyna sér þó
ekki.
SIGURLAUNIN AFHENT
Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri afhendir sigurvegurunum Hljóðnemann eftirsótta.
SIGURVEGARARNIR
Einbeittir velta þeir fyrir sér svarinu. Sigurinn vart í sjónmáli enn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI