Fréttablaðið - 04.04.2004, Blaðsíða 52
Liðið er svona í þessum skilumað vera flakkandi milli 2. og 3.
deildar,“ sagði Viðar Garðarsson,
formaður Íshokkísambands Ís-
lands (ÍHÍ). „Það er gríðarlegur
styrkleikamunur þarna á milli,
sérstaklega ef horft er á liðin í 3.
deild og liðin í efri hluta 2. deild-
ar. Við féllum niður úr 2. deild á
síðasta ári og erum aftur komnir
upp.“
Íslenska íshokkílandsliðið sigr-
aði í 3. deild heimsmeistarakeppn-
innar um síðustu helgi og keppir í
2. deild á næsta ári. „Sagan segir
okkur að það taki þrjú til fjögur ár
að festa sig í sessi í 2. deildinni.
Markmið okkar á næsta ári er að
liðið festi sig í sessi þar inni
vegna þess að við teljum að þetta
sé sterkasta liðið sem við höfum
átt,“ sagði Viðar. Hann býst við að
Íslendingar keppi við Ástrali,
Nýsjálendinga, Suður-Afríku-
menn og Búlgara um sæti í 2.
deildinni á næsta ári.
Góðar fyrirmyndir
Sigurinn í 3. deildinni vakti
ekki aðeins athygli á landsliðinu
heldur einnig nokkrum leik-
mönnum sem sköruðu fram úr.
Viðar nefnir Jónas Breka Magn-
ússon, sem var valinn verðmæt-
asti maður mótsins, fyrirliðann
Ingvar Þór Jónsson og Jón Gísla-
son sem gerði jöfnunarmark Ís-
lendinga gegn Mexíkóum. „Þetta
eru leikmenn sem skara fram úr
og hafa sýnt gríðarlega hæfi-
leika á þessu sviði,“ sagði Viðar.
„Og það sem meira er og
kannski jákvæðast af öllu að
þeir eru allir góðar fyrirmyndir.
Þeir eru allir miklir og góðir
íþróttamenn, reglusamir og dug-
legir við að aðstoða klúbbana
sína í barna- og unglingastarfi.“
Augljósar framfarir
„Við erum alveg sannfærðir
um að við erum með sterkasta
liðið sem við höfum átt hingað
til. Við erum farnir að fá unga
leikmenn sem koma úr því góða
ræktunarstarfi sem félögin hafa
sýnt. Við erum með gríðarlega
sterkt U18-lið sem keppir í Ung-
verjalandi í vikunni. Þeir eru ári
á undan meistaraflokksliðinu í
að verja sæti sitt í 2. deildinni.“
„Þeir sem eru elstir í A-lands-
liðinu byrjuðu að spila hokkí eft-
ir eigin brjóstviti og lærðu
íþróttina og æfðu hana á þeim
forsendum sem þá voru. Skauta-
svellin voru stundum opin og
stundum ekki, algjörlega háð
veðri og vindum. Ungu strákarn-
ir byrjuðu að æfa sjö, átta ára
gamlir og hafa allan tímann not-
ið handleiðslu mjög færra þjálf-
ara. Félögin hafa alltaf verið
með erlenda þjálfara og lagt
mikinn metnað í barna- og ung-
lingastarf. Það er að skila sér í
sterkara og úthaldsbetra liði en
nokkru sinni fyrr.“
Fleiri hallir og
félög forsenda framfara
Þrjú félög keppa á Íslands-
mótinu, SA á Akureyri og SR og
Björninn í Reykjavík. Jakarnir í
Eyjum eru orðir fullgildir aðilar
að ÍHÍ en hafa ekki tök á að æfa
og keppa við sömu aðstæður og
hin félögin. Á Höfn í Hornafirði
er einnig áhugi á að stofna
skautafélag.
„Fleiri félög eru forsendan
fyrir áframhaldandi vexti. Það
er eitt af aðalmarkmiðum okkar
í hreyfingunni að fjölga íþrótta-
félögum,“ sagði Viðar og ÍHÍ lít-
ur til stóru bæjarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu. „Við get-
um orðað það þannig að það eru
þreifingar um stofnun félaga á
þessu svæði. Það sem hindrar
það í dag er fyrst og fremst að-
stöðuleysið því klúbbur með öfl-
ugt barna- og unglingastarf og
bæði listskauta og íshokkí her-
tekur eitt hús.“
Byggt var yfir skautasvellið í
Laugardal árið 1998 og svellið á
Akureyri stuttu síðar. Egilshöll-
in var opnuð í byrjun þessa árs.
„Við erum farnir að sjá mikla
vakningu í Grafarvogi en ég
held að hún verði ennþá meiri
næsta haust. Við áttum von á að
Egilshöll yrði tilbúin í upphafi
tímabils en í raun og veru opnaði
svellið ekki formlega fyrir en á
þessu ári. Það skekkir myndina
pínulítið vegna þess að foreldrar
taka ákvörðun um íþróttaiðkun
barnanna um leið og skólinn er
að hefjast. Hins vegar er mjög
góð aðsókn að svellinu og félagið
er farið að finna fyrir auknum
áhuga.“
Stuðningur frá alþjóða
íshokkísambandinu
ÍHÍ heldur úti þremur lands-
liðum, A-landsliði, U20-liði og
U18-liði. „Ástæðan fyrir því að
Íshokkísambandið getur haldið
úti þremur landsliðum er fyrst
og fremst fjárstyrkur frá al-
þjóðaíshokkísambandinu,“ sagði
Viðar. „Stuðningurinn felst til
dæmis í því að búningar
landsliðanna eru greiddir af al-
þjóðaíshokkísambandinu í gegn-
um styrktarsamning við Nike.“
Alþjóða íshokkísambandið
styrkir liðin einnig í keppnum
erlendis. „Það gefur alveg auga
leið að gætum aldrei gert þetta
nema af þessum myndarskap
hjá alþjóðaíshokkísambandinu
og síðast en ekki síst vegna gríð-
arlegs áhuga og stuðnings hjá
foreldrum inni í okkar hreyf-
ingu. Vegna þess að þau eru í
raun og veru að borga stóran
hluta af því sem upp á vantar
fyrir sín börn, það er foreldrum
annars vegar fyrir unglingaliðin
og hins vegar spilurunum sem
spila með fullorðinsliðinu.
Þannig er þessu haldið gang-
andi.“
Íslenskir Svíar
Patrik Eriksson var yngsti
leikmaður 3. deildarkeppninnar
sem lauk um síðustu helgi. Hann
er íslenskrar ættar en býr í Sví-
þjóð. Daniel bróðir hans hefði
líklega leikið líka en hann við-
beinsbrotnaði þremur vikum
fyrir mót. Viðar segir að ÍHÍ
hafi ekki leitað að þessum leik-
mönnum. „Það hefur frekar ver-
ið þjóðerniskennd þessara ein-
staklinga sem varð til þess að
þeir létu vita af sér,“ sagði Viðar.
„Við vorum að vona að Emil Al-
engaard myndi koma. Hann er
40 4. apríl 2004 SUNNUDAGUR
NÝTT Á LEIGUMARKAÐI!
Heimkynni ehf, bjóða nýjar og glæsilegar íbúðir við
Þórðarsveig, til útleigu á almennum leigumarkaði.
Þórðarsveigur 32-36 er nýtt 33ja
íbúða fjölbýlishús, vel staðsett í fögru
umhverfi Reynisvatns. Um er að ræða
3ja og 4ra herbergja íbúðir. Íbúðirnar
eru fullbúnar innréttingum og tækj-
um. Sér inngangur er í allar íbúðir.
Suðurgarður hússins nýtur skjóls af
stórum gamalgrónum trjálundi, sem
umlykur garðinn og gerir hann að afar
fjölskylduvænu útivistarsvæði.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR ERU Á VEFNUM OKKAR
W W W . H E I M K Y N N I . I S .
Upp að hlið
frændþjóðanna
Íslenska íshokkílandsliðið sigraði í 3. deild HM um síðustu helgi. Næstu
viðfangsefni verða að treysta stöðu íþróttarinnar hér á landi og efla lands-
liðin. Langtímamarkmiðið er að komast upp að hlið frændþjóðanna.
VIÐAR GARÐARSSON
Við erum alveg sannfærðir um að við erum með sterkasta liðið sem við höfum átt hingað til.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R