Fréttablaðið - 04.04.2004, Blaðsíða 63
51SUNNUDAGUR 4. apríl 2004
Craaazzzy in the Creamhouse!!
Besta úr 70 mínútum 2 er komin á DVD og VHS í verslanir um land allt. Tveir
tímar af drepfyndnu efni ásamt fullt af aukaefni sem ekki hefur sést áður í
sjónvarpi sem og stórkostlega fyndið „audio commentary“ frá Sveppa og Audda.
Ómissandi fyrir alla sem ekki eru viðkvæmir og þora. Byrjið að safna... NÚNA!
KOMIN Í VERSLANIR á DVD og VHS!
Engar auglýsinga
r milli atriða!
Áritanir:
Í dag sunnudag 4. apríl
Skífan Kringlunni kl 16.00 - 16.45
Skífan Smáralind kl 17.00 - 18.00
ATH:
Miðasalan á tónleika breskustúlknahljómsveitarinnar
Sugababes hefur gengið vel og allt
útlit er fyrir að miðarnir klárist
fyrir tónleikana sem eru haldnir í
Laugardalshöllinni á skírdag. Það
er verið að moka síðustu miðunum
út að sögn tónleikahaldara en innan
við 1000 miðar eru eftir. Stúlkurnar
eru á tónleikaferðalagi um Bret-
land og hafa verið að fá prýðilega
dóma en þær þykja standa sig
mjög vel þar sem þær syngja
„live“ á sviði. Þær eru í um það bil
90 mínútur á sviðinu á hverjum
tónleikum og gefa ekkert eftir.
Gellurnar eru væntanlegar til Ís-
lands á miðvikudagskvöld og ætla
að skella sér beint á hið víðfræga
djamm í Reykjavíkurborg þannig
að það er um að gera að hafa augun
opin á skemmtistöðum borgarinn-
ar. Þeir sem missa af stelpunum á
skemmtistöðunum geta þó gengið
að þeim vísum í Höllinni kvöldið
eftir.
Stöð 2 slær nú umsig með nýju
slagorði „fyrst og
fremst“ eftir að
stöðin flutti kvöld-
fréttatíma sinn
fremst í kvölddag-
skrána og fram fyrir
fréttatíma Ríkissjón-
varpsins. Það hefur
hins vegar vakið eftirtekt að nýja
slagorðið er gamalt slagorð Rásar 2
en á 15 ára afmæli Rásarinnar, fyr-
ir 5 árum, var Rásin kynnt „fyrst
og fremst“ í tónlist og hinu og öðru
sem snertir daglegt líf fólks. Sú
kenning er því sprottin upp að nýi
fréttastjórinn á Stöð 2, Sigríður
Árnadóttir, hafi kippt slagorðið
með sér þegar hún yfirgaf RÚV í
Efstaleitinu og skellti sér upp á
Lyngháls.
Árni Johnsen hefur flutt grjót-listaverkasýningu sína frá
Reykjanesbæ til Kópavogs þar sem
hún hefur verið sett upp í Vetrar-
garði Smáralindar. Af þessu tilefni
ætlar Árni að halda heljarinar
kvöldvöku í Vetrargarðinum klukk-
an 20.30 í kvöld. Þar verður að
sjálfsögðu boðið upp á brekkusöng
og gæti hallinn á stúkunni minnt á
brekkurnar í Herjólfsdal. Árni þarf
því ekki að bíða fram í ágúst til að
upplifa aftur stemminguna sem
hann missti af um síðustu Verslun-
armannahelgi. Ekki hefur fengist
staðfest hvort Róbert Marshall,
staðgengill hans í Eyjum, muni
taka lagið á þessari kvöldvöku eða
hvort þeir muni jafnvel syngja
saman og spila undir með sínum
þremur gripum.
Fréttiraf fólki
Ég man að þegar ég var í námilærði maður mest á að vinna
með fagfólki. Maður lærði í raun-
inni miklu meira á því heldur en í
skólanum.“
Þetta segir Nína Margrét Gríms-
dóttir píanóleikari, sem ásamt
KaSa-hópnum stendur fyrir því að
gefa þremur ungum tónlistarnem-
um tækifæri til að vinna með þaul-
reyndum hljóðfæraleikurum að
flutningi nokkurra tónverka nú um
helgina í Ráðhúsinu í Reykjavík.
Ungu tónlistarmennirnir eru sig-
urvegarar í tónlistarkeppninni
„Kammertónlist til framtíðar“, sem
styrkt er af Samstarfssjóði Nuuk,
Reykjavíkur og Þórshafnar.
„Þetta er semsagt samstarf
Grænlands, Íslands og Færeyja.
KaSa-hópurinn fékk styrk úr þess-
um sjóði til þess að efla samstarf
tónlistarnema í þessum löndum. Við
ákváðum að gera það með því að
auglýsa eftir umsóknum frá lengra
komnum tónlistarnemum, bæði
söngvurum og hljóðfæraleikurum.“
Umsækjendurnir sendu inn
hljóðritanir og úr þeim var valið án
þess að nafn umsækjenda kæmi
fram. Sigurvegararnir urðu þau
Arnbjörg María Danielsen sópran-
söngkona, Elfa Rún Kristinsdóttir
fiðluleikari og Jákup H. Lützen,
fiðluleikari. Jákup er frá Færeyjum
en þær Arnbjörg María og Elfa Rún
eru íslenskar.
„Flestar umsóknirnar sem bár-
ust voru frá Íslandi. Eitthvað kom
frá Færeyjum, en því miður ekkert
frá Grænlandi í þetta skiptið. En
það er fyllsta þörf á að örva tónlist-
arnema á Grænlandi með þessum
hætti, því það leynast alltaf ein-
hverjir sem hafa brennandi áhuga á
tónlist en vantar hvatningu.“
Í dag klukkan fimm hefjast tón-
leikar í Ráðhúsinu þar sem þessir
þrír ungu tónlistarnemar flytja
verk eftir Schumann, Handel,
Vivaldi, Haydn og Jón Ásgeirsson.
Aðgangur er ókeypis, og sömuleiðis
er öllum heimilt að fylgjast með æf-
ingum í Tjarnarsal Ráðhússins frá
klukkan 10 til 16 í dag. ■
Spreyta sig í Ráðhúsinu
Á ÆFINGU MEÐ KASA-HÓPNUM
Þrír ungir og efnilegir tónlistarnemar
spreyta sig með þaulreyndu tónlistarfólki í
Tjarnarsal Ráðhússins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Tónlekar
KASA HÓPURINN
■ Almenningi er boðið að fylgjast með
tónlistarfólki úr hópnum að störfum .
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Metallica
Undir lestarteinum milli Ma-
dridar og Sevilla
Um 7 prósent