Fréttablaðið - 04.04.2004, Blaðsíða 20
5,0%* – Peningabréf Landsbankans
www.landsbanki.is
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra fjárfesta.
Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans.
* Nafnávöxtun 01.02.2004–29.02.2004 á ársgrundvelli.
Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta er
vakin á því að fjárfestingarsjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari
upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir
sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk
upplýsinga á heimasíðu bankans www.landsbanki.is
Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa
hjá ráðgjöfum í útibúum Landsbankans
eða í síma 560 6000.
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
39
23
3
/2
00
4
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
39
23
3
/2
00
4
á
su
nn
ud
eg
i
V
ið
sk
ip
ta
fr
ét
ti
r
LANDBÚNAÐUR Markaður fyrir ís-
lenskt dilkakjöt fer sífellt
stækkandi. Útrás íslenskra kjöt-
framleiðenda hefur bersýnilega
skilað sér því eins og Frétta-
blaðið greindi frá í vikunni jókst
útflutningurinn um rúmlega 200
milljónir króna milli áranna
2002 og 2003. Meginástæðan
fyrir þessari miklu framsókn á
erlendum mörkuðum skýrist af
öflugu markaðsstarfi í Banda-
ríkjunum og Evrópu. Í Evrópu
eru það helst markaðirnir á Ítal-
íu og í Danmörku sem hafa tek-
ið við sér undanfarin misseri.
Eitt af þeim fyrirtækjum sem
leitt hefur stóreflt markaðs- og
kynningarstarf er Kjötframleið-
endur ehf. sem er stærsta út-
flutningsfyrirtækið á landbún-
aðarafurðum. Fyrirtækið er í
eigu búgreinasamtaka í naut-
gripa-, sauðfjár- og hrossarækt.
Óþarfi að allir séu að hræra
í sömu pottunum
Erlendur Garðarsson, mark-
aðsstjóri Kjötframleiðenda ehf.,
segir ánægjulegt að markaðs-
starfið sem unnið hafi verið
undanfarin ár sé að skila sér.
Sérstaklega ánægjulegt sé hve
markaðurinn á Ítalíu hafi tekið
vel við sér. Í fyrra nam útflutn-
ingsverðmæti þess kjöts sem
flutt var til Ítalíu tæpum 150
milljónum króna og leiddi Ítalía
markaðinn fyrir íslenskt dilka-
kjöt.
„Kjötframleiðendur ehf. er
búið að vinna í tíu ár við að selja
kjötvöru frá landinu. Fyrir
þremur árum báðu sauðfjár-
bændur og Kaupfélagið á
Hvammstanga okkur um að
skoða möguleikana á að fjölga
mörkuðum fyrir dilkakjöt. Það
hefur verið unnið gott starf í
Bandaríkjunum en við ákváðum
hins vegar að einbeita okkur að
Evrópumarkaði því það er
óþarfi að allir séu að hræra í
sömu pottunum. Eftir að hafa
kortlagt Evrópumarkað komust
við að þeirri niðurstöðu að
mestu tækifærin lægu í mark-
aðnum á Norður-Ítalíu. Þar er
ríka fólkið og þar er líka fólk
sem kann að borða. Ég held mér
sé óhætt að segja að þarna sé
helsta gourmet-fólk Evrópu.“
Galdurinn er að selja ferskt
Erlendur segir að Kjötfram-
leiðendur hafi fljótlega komist í
samband við góða menn á Ítalíu
og eftir að hafa rætt við þá hafi
niðurstaðan verið sú að mark-
aðssetning og sölumöguleikar
væru góðir.
„Við erum með umboðsmann
þarna úti sem er hálfur Dani og
hálfur Ítali. Hann hefur reynst
okkur mjög vel því hann skilur
bæði þankaganginn hjá Ítölun-
um og þessa norrænu hugsun.
Galdurinn í því að selja íslensk-
ar landbúnaðarvörur erlendis er
að selja sem mest af fersku
kjöti. Frosið kjöt er ekkert verri
vara. Í Evrópu er viðhorfið hins
vegar svona svipað og viðhorf
Íslendinga við því að kaupa
frosið nautakjöt. Við viljum
helst hafa það ferskt en ef það
er frosið þá viljum við að það sé
ódýrara. Þarna úti er ímyndin
sem sagt sú að fersk vara sé
miklu betri – hvort sem hún er
það eða ekki.“
Nauðsynlegt að lengja slát-
urtímann
Erlendur segir að vegna þessa
sé markmiðið núna að auka út-
flutning á fersku kjöti. Það séu
hins vegar ákveðin vandamál
sem komi í veg fyrir að það
markmið náist strax. Vandamál-
in snúi fyrst og fremst að slátrun
og framleiðslugetunni.
Ítalía stærsti markaður-
inn fyrir íslenskt kjöt
Útflutningsverðmæti íslensks dilkakjöts vex stöðugt. Nýr markaður á Ítalíu leiðir framsóknina.
Markaðsstjóri Kjötframleiðenda ehf. segir markmiðið að flytja meira út af fersku kjöti.
Ég held mér sé
óhætt að segja að
þarna sé helsta gourmet-
fólk Evrópu
,,
ÍSLENSKT LAMBAKJÖT KYNNT Í COMO
Kjötframleiðendur ehf. hafa haldið kynningar fyrir ítalska kaupendur nokkrum sinnum. Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og eftir eina kynninguna óskaði einn af stærri matreiðsluskól-
unum á Ítaliu eftir frekari samstarfi og stendur til að halda þemaviku í skólanum næsta haust þar sem íslenskt hráefni verður í öndvegi.