Fréttablaðið - 04.04.2004, Síða 24
Öryggishjálmar teljast til persónuhlífa. Reglur um notkun
persónuhlífa voru gefnar út af félagsmálaráðuneytinu 1994.
Þær er meðal annars að finna á vef Vinnueftirlitsins,
www.vinnueftirlit.is.
ÍSAFJARÐARBÆR
Skólar Ísafjarðarbæjar
Grunnskólar Ísafjarðarbæjar eru fjórir, á Ísafirði, Suðureyri, Flat-
eyri og Þingeyri með nemendafjölda frá 40-540. Í skólum bæj-
arins er lögð áhersla á ánægju nemenda og þroska þeirra og
um leið að mæta mismunandi þörfum nemenda, m.a. með
sveigjanlegu skólastarfi og einstaklingsmiðaðra námi en áður.
Áhersla er á samstarf milli skóla, en þó sjálfstæða skóla og fjöl-
breytni í skólastarfi. Grunnskólar Ísafjarðarbæjar vinna saman
gegn einelti eftir áætlun Olweusar. Leikskólar Ísafjarðarbæjar
eru sex, staðsettir í öllum íbúakjörnum sveitarfélagsins. Tveir
skólar vinna eftir Hjallastefnu, þ.e. á Flateyri og Ísafirði, en aðrir
kenna á hefðbundnari hátt eftir aðalanámskrá leikskóla.
Ísafjarðarbær er bær í sókn sem hefur margt að bjóða, m.a.
góða þjónustu, öflugt íþróttastarf (Heilsubær), ótakmarkaða
landslagsfegurð, tónlistarskóla, leikskóla og menntaskóla.
Staða skólastjóra við Grunnskólann á Flateyri
Laus er staða skólastjóra frá og með 1. ágúst 2004.
Skólinn hefur skapað sér sérstöðu með lífsleikni-
stefnu í öllu skólastarfi og eru nánari upplýsingar
um skólann á heimsíðu hans á skolatorg.is Leitað
er eftir faglegum, kraftmiklum stjórnanda með leið-
togahæfileika til að leiða áframhaldandi uppbygg-
ingu skólans.
Umsóknir um stöðu skólastjóra skulu berast Skóla-
og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti
1, Ísafirði Forstöðumaður skrifstofunnar veitir nán-
ari upplýsingar.
Staða skólastjóra við leikskólann Grænagarð
á Flateyri
Staða leikskólastjóra er laus frá og með 1. ágúst
2004. Skólinn vinnur eftir Hjallastefnunni og er
með börn á aldrinum 1-6 ára. Leitað er eftir fagleg-
um stjórnanda með þekkingu á Hjallastefnu til að
leiða áframhaldandi starf skólans.
Umsóknir um stöðu skólastjóra skulu berast Skóla-
og fjölskylduskrifstofu Ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti
1, Ísafirði Leikskólafulltrúi skrifstofunnar veitir nán-
ari upplýsingar.
Staða aðstoðarleikskólastjóra á Sólborg Ísafirði
Staða aðstoðarleikskólastjóra við leikskólann Sól-
borg er laus frá og með 1. júní n.k. Einnig eru laus-
ar stöður deildarstjóra á yngstu deildunum. Leik-
skólinn er fjögurra deilda skóli fyrir börn á aldrin-
um 1-6 ára. Allar nánari upplýsingar veitir leikskóla-
stjóri Sonja E. Thomson, s. 456-3185, netfang:
solborg@isafjordur.is
Við bjóðum flutningsstyrk og
niðurgreidda húsaleigu
Umsóknarfrestur er til 25. apríl 2004.
Starfsferilskrá á að vera þannig úr
garði gerð að vinnuveitandi geti á
einfaldan og fljótlegan hátt séð hvað
umsækjandi hefur lært og gert. „Góð
starfsferilskrá er algjört lykilatriði
og oft forsenda þess að fólk komist í
atvinnuviðtöl,“ segir Gunnar Rich-
ardsson, deildarstjóri fag- og fyrir-
tækjasviðs Vinnumálastofnunar.
Hann segir flesta gera sér grein
fyrir mikilvægi slíkra yfirlita.
„Þarna þurfa að koma fram skýrar
upplýsingar um menntun og fyrri
störf. Við hvetjum fólk til að hafa
þetta ekki mjög langt og ég ráðlegg
fólki að hafa ferilskrána ekki lengri
en eina blaðsíðu. Þá er atvinnurek-
andinn fljótur að sjá menntun og
starfsferil umsækjandans og átta
sig á því hvort hann hentar í starf-
ið. Þarna er ég þó að tala um ein-
föld störf. Ef sótt er um flókin störf
þarf oft að setja fram meiri upplýs-
ingar. Best er líka að setja fram
meðmælendur og símanúmer
þeirra svo vinnuveitandinn þurfi
ekki að hafa fyrir að finna þau. Ég
tel líka mikilvægt að láta mynd
fylgja með umsókninni, þá man
vinnuveitandinn frekar eftir mann-
eskjunni.“
Ákveðnir þættir
þurfa að koma
fram í öllum feril-
skrám. Það eru
persónulegar upp-
lýsingar eins og
nafn, heimilisfang,
símanúmer, kenni-
tala, hjúskapar-
staða og fjöl-
skylduaðstæður.
Geta skal mennt-
unar, til dæmis í
framhaldsskóla,
háskóla eða sér-
skóla. Teljið gráð-
urnar upp í öfugri
tímaröð, þannig að
sú síðasta sé nefnd
fyrst. Einnig skal
tilgreina lengri
námskeið sem sótt
hafa verið og geta haft þýðingu fyrir
starfið sem sótt er um.
Mikilvægt er að gefa nokkuð ná-
kvæmt yfirlit yfir fyrri störf. Gott er
að byrja á síðasta starfi og telja rest-
ina upp í öfugri tímaröð. Fram þarf
að koma nafn fyrirtækis, starfsheitið
innan þess og hversu lengi var unnið
á hverjum stað.
Með því að greina frá áhugamál-
um og tómstundum fær vinnuveit-
andi betri mynd af umsækjanda sem
persónu. Það ýtir einnig undir að
hann muni eftir honum þegar ákvörð-
un er tekin.
Meðmælandi eða umsagnaraðili
gefur upplýsingar um hvernig um-
sækjandi hefur staðið sig við fyrri
störf og hvernig hann er sem einstak-
lingur. Meðmælandi er oftast fyrr-
verandi vinnuveitandi en getur þó
verið kennari eða vinnufélagi. Mikil-
vægt er að hafa alltaf samband við þá
sem tilgreindir eru sem meðmælend-
ur áður en ferilskrá er send til at-
vinnurekanda.
Fylgiskjöl geta verið prófskírteini,
ýmis vottorð um menntun og störf
eða einkunnir úr skóla. Góð með-
mælabréf frá fyrrverandi vinnuveit-
anda eru alltaf til bóta.
Mikilvægt er að skrifa góða ís-
lensku. Helst ber að varast of mikinn
orðaflaum, illa skipulagða og illa upp-
setta ferilskrá.
Dæmi um uppsetningu ferilskrár
er að finna á vefsíðum flestra ráðn-
ingarþjónusta. ■
Best er að hafa ferilskrána einfalda Ekki leggja meira upp úr
útiliti en innihaldi. Ekki er heldur sniðugt að ýkja kosti sína og gera meira úr
menntun eða starfsferli en efni standa til.
Starfsferilskrá er líka kölluð CV, sem
stendur fyrir Curriculum Vitae. Það sem
þarf að koma fram á starfsferilskrá er
meðal annars:
Persónulegar upplýsingar
Menntun
Starfsreynsla
Áhugamál
Meðmælendur
Hvernig verður maður flugumferðarstjóri?
Viðbragðsflýtir og
einbeiting mikilvæg
Starfið
Á Íslandi starfa rúmlega
hundrað flugumferðar-
stjórar. Þeir vinna við flug-
turnsþjónustu, aðflug og
svæðisflugstjórn í flug-
stjórnarmiðstöð. Fyrir utan
beina stjórnun flugumferð-
ar byggist flugumferðar-
stjórn mjög á samvinnu.
Flugumferðarstjórinn
verður að vera mjög fljótur
að átta sig á aðstæðum og
taka réttar ákvarðanir í
samræmi við þær.
Inntökuskilyrði
Umsækjendur þurfa að
vera íslenskir ríkisborgar-
ar eða eiga lögheimili á Ís-
landi. Gerðar eru ýmsar
kröfur um heilbrigði, til
dæmis um sjón og heyrn.
Umsækjendur skulu hafa
lokið stúdentsprófi eða
sambærilegri menntun.
Inntökupróf
Auglýst er eftir nemum í
helstu fjölmiðlum þegar
halda skal námskeið. Námið
fer ýmist fram hér á landi
eða erlendis. Fjöldi nem-
enda fer eftir þörf á nýjum
flugumferðarstjórum.
Valferlið samanstendur
af prófum, kynnisferð og
viðtölum. Prófað er í ýms-
um þáttum er varða per-
sónuleika, minni, viðbragðs-
flýti og fleira. Einnig ensku-
kunnáttu, einbeitingu,
skipulagningu og vinnu
undir álagi og samstarfs-
hæfni.
Námið
Námið í heild tekur allt að
fimm ár með vinnu. Fyrstu
réttindum er þó yfirleitt náð
eftir 18 til 21 mánuð. Laun
eru ekki greidd á námstíma
fyrr en fyrstu réttindum er
náð. Hins vegar er greitt
uppihald á námskeiðum er-
lendis, ferðakostnaður og
námskeiðagjöld.
Grunnnám tekur 6 til 9
mánuði. Að því loknu hefst
réttindanám, ýmist flug-
turnsnám í Reykjavík eða
Keflavík eða í flugstjórnar-
miðstöð. Bóklegt réttinda-
nám tekur þrjár til fjórar
vikur. Verklegt réttinda-
nám tekur 8 til 12 mánuði
fyrir hver réttindi.
Til að öðlast réttindi þarf
að fá 75% lágmarkseinkunn
á skriflegu prófi og ganga
vel í verklegum æfingum.
Þjálfari á vinnustað þarf að
samþykkja að nemi sé hæf-
ur til að fara í próf og nem-
inn þarf að standast verk-
legt lokapróf. ■
Flugumferð Flugumferð-
arstjórar verða að vera fljótir
að átta sig á aðstæðum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Atvinnuleitin:
Góð starfsferilskrá lykilatriði
ATVINNA