Fréttablaðið - 04.04.2004, Blaðsíða 40
Sýningin hefur vakið mikla at-hygli, ekki síst íslenska hönn-
unin,“ segir Dorrit Moussaieff
forsetafrú en á milli 500 og 700
manns voru viðstaddir þegar hún
opnaði síðastliðinn fimmtudag
sýninguna Norræn hönnun –
Handan goðsagnarinnar í La
Triennale di Milano í Mílanó á
Ítalíu. Íslensk verk á sýningunni
eru fjörutíu talsins eftir tuttugu
og tvo hönnuði og Dorrit segist
hafa orðið þörf við mikinn áhuga á
þeim. Að minnsta kosti eitt banda-
rískt gallerí hefur þegar ákveðið
að kaupa verk á sýningunni.
„Sýningin er afar mikilvæg
fyrir íslenska hönnun en einnig
fyrir Ísland sem heild. Því meira
sem menn vita um Ísland því
fleiri tækifæri fá íslenskir hönn-
uðir til að sýna verk sín og selja
þau í verslunum og galleríum er-
lendis. Allir Íslendingar munu
njóta góðs af því,“ segir Dorrit.
Hún hefur mikinn áhuga á hönn-
un, enda hefur hún sjálf unnið við
að hanna skartgripi.
„Ef ég get orðið að liði við að
koma íslenskum hönnuðum á fram-
færi erlendis þá geri ég það af mik-
illi gleði. Þessi sýning er haldin í
Mílanó sem er höfuðborg tískunnar
og íslenska hönnunin sker sig úr,
þykir sérstök og vekur athygli. Ís-
lensk hönnun er í háum gæðaflokki.
Það er ekkert annað en jákvætt við
hana og það ánægjulega er að heim-
urinn virðist vera að uppgötva
hana,“ segir Dorrit.
Þegar sýningunni í Mílanó lýk-
ur er fyrirhugað að hún fari víðar
um Evrópulönd og einnig til
Bandaríkjanna og Kanada. Dorrit
segist gera sér góðar vonir um að
sýningin komi til Íslands og hefur
þegar rætt þá hugmynd sína við
sýningarstjórann. Verði af því
mun mörgum áberandi aðilum úr
hinum alþjóðlega tískuheimi verða
boðið hingað til lands á opnunina.
Víst er að slíkt myndi enn efla
áhuga á íslenskri hönnun.
Þeir íslensku fatahönnuðir sem
eiga verk á sýningunni í Mílanó
eru: Hrafnhildur og Bára Hólm-
geirsdætur, Ásta Guðmundsdóttir,
Björg Pjetursdóttir, Hanna Péturs-
dóttir, Ragna Fróðadóttir og Stein-
unn Sigurðardóttir. Skartgripir,
töskur og aðrir fylgihlutir eru eft-
ir Guðbjörgu Kr. Ingvarsdóttur,
Ásu Gunnlaugsdóttur, Guðlaugu
Halldórsdóttur og Sigrúnu Úlfars-
dóttur. Hér á opnunni má sjá
nokkra af gripum sýningarinnar.
kolla@frettabladid.is
28 4. apríl 2004 SUNNUDAGUR
Hver er maðurinn?
! #
$%
&
"
'()**+'(+,**+"
-. Traust og
trygg
Við spyrjum um konu aðþessu sinni. „Það er gáski í
henni og gott að hlæja með
henni,“ segir Þórunn Gestsdótt-
ir starfsmaður Ríkisútvarpsins.
Hún segir hana líka góðan fé-
laga, heiðarlega og vandvirka.
„Hún er fljót að greina smáat-
riðin frá aðalatriðunum, greina
hismið frá kjarnanum og er
fylgin sér þegar málefni henni
hugleikin eru annarsvegar,“
segir Þórunn.
Dagný Jónsdóttir alþingis-
maður hefur átt nokkur sam-
skipti við konuna að undanförnu
og segir hana afar skipulagða
og vandvirka. „Hún tekur líka
tillit til ólíkra sjónarmiða,“ seg-
ir Dagný og metur það sem mik-
inn kost. „Hún er óþreytandi að
gefa góð ráð og reynir að koma
reynslu sinni áleiðis til þeirra
sem minni reynslu hafa,“ segir
Dagný Jónsdóttir.
„Hún er afar traust og trygg
manneskja,“ segir Kristján Guð-
mundsson starfsmaður útgerðar-
félagsins Guðmundar Runólfs-
sonar en þau störfuðu saman um
skeið. „Það var mjög gott að
vinna með henni, hún var örugg
og frekar hugmyndarík í sínum
störfum,“ segir hann og bætir
við að hún sé ágætlega klár og
komi að auki afskaplega vel fyr-
ir.
Sú er við spyrjum um hefur
verið nokkuð áberandi á sínu
sviði þótt ekki sé hún í hópi
þeirra sem láta mest að sér
kveða. Líklegt er að það
breytist í bráð.
Og nú spyrjum við; Hver er
maðurinn? Svarið er að finna á
bls. 52. ■
Dorrit Moussaieff forsetafrú segir hönnunarsýningu í Mílanó mikilvæga fyrir Ísland:
Íslensk hönnun sker sig úr
5 x 40
Norræn hönnun – Handan goðsagnarinnar er farandasýning sem stendur saman af
200 munum, 40 frá hverju Norðurlandanna fimm. Palazzo Triennale-safnið í Mílanó
er annar áfangastaður sýningarinnar en hún opnaði í Hönnunar- og skreytilistasafni
Berlínar síðastliðinn nóvember. Ekki hefur verið ákveðið hvort og þá hvenær hún
komi til Íslands en það yrði þó aldrei fyrr en eftir maí 2006 því hún er bókuð á söfn
víða um Evrópu fram að þeim tíma. Þangað til geta áhugasamir séð sýninguna á eft-
irtöldum stöðum:
Hönnunarsafni Gent 2. júlí til 19. september.
Skreytilistasafni Prag 7. október til 3. janúar, 2005.
Skreytilistasafni Búdapest 16. janúar til 3. apríl, 2005.
Lighthouse í Glasgow 17. apríl til 19. júní, 2005.
Skreytilistasafni Riga 3. júlí til 4. september, 2005.
Hönnunar- og skreytilistasafni Kaupmannahafnar 15. september til 20 nóvember,
2005.
Hönnunar- og skreytilistasafni Rhöss í Gautaborg 3. desember til 26. febrúar,
2006.
Hönnunar- og skreytilistasafni Oslóar mars til maí, 2006.
DORRIT MOUSSAIEFF
Ásamt forstjóra sýningarhallarinnar og
Widar Halen skipulagsstjóra sýningarinnar.
APINN
Hvað? Leikfang
Hönnuður: Kay Bojesen (Danmörku)
Varð til: 1951
TRÉ
Hvað? Fatahengi
Hönnuðir: Michael Young og Katrín Pét-
ursdóttir (Englandi og Íslandi)
Varð til: 2002